Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2004, Page 3
T3V Fyrst og fremst
MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 2004 3
Ása Hólmgeirsdóttir,
, j,.., *-inda Péturs-
dótHr og Pétur Olgeirsson Linda íjóla-
i tru heima hjá f/ölskyldunni á Vopnafirði
þarsem heimamenn tóku fagnandiá
móti fegurstu konu heims árið 1988
„Ég held að þetta sé þegar hún kom heim frá London eftir að
hún hafði verið krýnd ungfrú heimur," segir Pétur Olgeirsson,
faðir Lindu Pétursdóttur fegurðardrottningar. Hann segir
mikinn fjölda fólks hafa beðið á flugvellinum á Vopnafirði
þegar Linda lenti þar rétt fyrir jólin árið 1988. „Keppnin fór
fram í byrjun nóvember en hún komst ekki heim fyrr en rétt fyr-
ir jól þar sem hún þurfti að sinna erindum sem tmgfrú heimur
___ áður en hún gat komið heim í
jólafrí," segir Pétur. Hann man
vel eftir þeirri stundu þegar
keppnin fór fram í London þar sem öll fjölskyldan var saman
komin til að fylgjast með Lindu taka þátt í keppninni. Pétur átti
ekki vona á því að dóttir hans yrði kosin fegursta kona heims.
„Þetta var mjög skrítin tilfinning úti í London. Það hvarflaði
aldrei að manni að svona gæti farið, ekki einu sinni þegar við
vorum komin til London. Við vorum að sjálfsögðu mjög ánægð
með að þetta skyldi ganga svona vel hjá henni,“ segir Pétur sem
var í kjölfarið boðið í svakalega veislu sem haldin var í kjölfarið
á keppninni Lindu til heiðurs. „Við vorum náttúrulega ekki vön
allri þessari athygli. Það var mikið um blaðamenn og fjölmiðla-
fólk í kringum okkur þarna. Það er eiginlega ólýsanlegt þegar
dóttir manns verður allt í einu orðin svona allsherjareign,'1 segir
Pétxu. Hann segir breytinguna hafa verið mikla fyrir alia fjöl-
skylduna. Hann hlakkar nú til að fá Lindu heim frá Vancouver
þar sem hún býr. „Hún kemur um mánaðamótin frá Kanada.
Hún fór þangað upphaflega til náms en kunni svo vel við sig að
hún ákvað að setjast þama að. Linda er grafi'skur hönnuður og
hefur séð um allar auglýsingarnar fyrir fyrirtækið okkar. Hún
kemur hingað tO þess að vinna auglýsingar fyrir það,“ segir Pét-
ur sem er ánægður að fá börnin sín heim en bróðir Lindu býr á
Nýja-Sjálandi. „Það er mjög erfitt að hafa börnin sín svona í
langt í burtu. Við eigum bara einn son hérna heima. Við eigum
barnabörn á Nýja-Sjálandi sem við sjáum alltof sjaldan," segir
Pétur. Hann er farinn að hlakka til jólanna þegar hann fær þess
loks notið að hafa börnin sín þrjú hjá sér, auk barnabarnanna
sem hann sér svo sjaldan.
Spurning dagsins
Hvernig líst þér á fyrsta snjóinn?
Algjör snjókerling
„Mér líst vel á snjóinn. Ég er algjör snjó-
kerling og finnst satt best að segja æðis-
legt að vera úti í snjónum. Vantar reynd-
ar tilfmnanlega nýjan samfesting I
útiveruna í snjónum."
Guðrún Ögmundsdóttir
„Mér líst mjög
vel á snjóinn.
ég erþeirrar
gerðarað ég vil
hafa vetur á
veturna og
sumar á sumr-
in. Hreinar línur
í þessu eins og öðru."
Ögmundur Jónasson
„Mériístnú
bara svona
mátuiega á
hann enda
vanur honum
að norðan.
Verð þó að við-
urkenna að ég
er nú enginn sérstakur aðdá-
andi hans."
Birkir J. Jónsson
„Mér finnst nú
ailtaf
skemmtilegt
að upplifa
fyrsta snjóinn.
Fá hreint loft í
andrúmsloftið
er mér sveita-
stelpunni alltafað skapi. Ég
fagna honum enda innilega og
í hófi erhann kærkominn, allt
að því rómantískur þegar hann
birtirsvona upp skammdegið."
Drífa Hjartardóttir
„Ég erkominn
á nagladekk
svo að hann
fer ekkert
voðalega i
mig.Annars
finnst mér
hann fínn, svo lengi sem maður
er undir hann búinn."
Sigurjón Þórðarson
Fyrsta alvörusnjókoman kom í gærá höfuðborgarsvæðinu og
eins og vanalega flestum að óvörum. Sitt sýnist hverjum um hvítu
flyksurnar sem fylgja jafnan vetrinum - sem hingað til hefur
komið í kjölfar haustsins.
Oskaplegt atvjnnuleysi
Þegar kemur að tölum yfir þau lönd þar sem atvinnuleysi er mest í heiminum fer Afríka enn fremst
álfa. Miðað er við flölda atvinnulausra af hverjum 100 vinnufærum mönnum.
Gaidurinn viö
að halda sér
ungum er aö
liía heiöarlegu
líii, matast
hægt og Ijúga
til um aldur.
- Lucille Ball 1911-1989
Það er staðreynd...
...aðal- f
gengasta
manns-
nafná
Ítalíu er
Mario
Rossi.
— III ■ I 11 Hi II M
Formaðurinn & rithöfundurinn
Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda
flokksins, og Eyvindur Pétur Eiríksson rithöf-
undur eru bræðrasynir. Báðir eru Stranda-
menn, synir Kristjáns og Eiríks Guðjónssona
frá Skjaldabjarnarvík i Strandasýslu. Guðjón er
fyrrverandi skipstjóri sem komst í pólitískar
álnir og Eyvindur er menntaður íslenskufræð-
ingur og starfaði lengi sem háskóiakennari en
hefur helgað lífsitt iistinni hin síðari ár. Hann
á að baki skáldsögur, Ijóðabækur og leikrit.
IVALO Í2 LÉTTNAGLADEKK
STÆRÐ VERÐ KR. M/NÖGLUM
175 / 70 R 13 8.100,-
175 / 65 R 14 8.990.-
185 / 65 R 14 9.900.-
195 / 65 R 15 11.250.-
Helstu útsölustaðir:
ALPIN VETRARDEKK ÁN NAGLA
STÆRÐ VERÐ KR.
175 / 70 R 13 8.100,-
175 / 65 R 14 9.150.-
185 / 65 R 14 10.275.-
195 / 65 R 15 11.625.-
Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Mosfellsbær, Garðabær.
HJÓLBARÐAVERKSTÆÐI STAÐUR ■■■■ SÍMI
Gúmmívinnustofan Réttarhálsi 2 587 5589
Gúmmívinnustofan Skipholti 31 553 1055
Höfðadekk Tangarhöfða 15 587 5810
Hjólbarðav. Sigurjóns Hátúni 2 551 5508
Hjól-Vest Ægissíðu 102 552 3470
Barðinn Skútuvogi 2 568 3080
Hjólkó Smiðjuvegi 26 557 7200
Nýbarði Garðabæ 568 8600
Dekkið Reykjavíkurvegi 56 555 1538
Bæjardekk Mosfellsbæ 566 8188
Hjólbarðastöðin Bíldshöfða 8 587 3888
Þegar konimgur hjólbarðanna
tekur sig til er vaiidad til hlntanna
vcntju/civn: