Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2004, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2004, Side 24
24 MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 2004 Menning DV Cameron Corbet, Jóhann Freyr Björg- vinsson og Lovísa Gunnarsdóttir, en auk þeirra dansa fimm böm í sýning- unni, þau Inga Huld Hákonardóttir, Jó- hanna Stefánsdóttir, Kolbeinn Ingi Bjömsson, Lilja Rúriksdóttir og Níels Thíbaud Gírerd. Auður segir: „Svo varð ég fyrir þeirri blessun að fá bömin í sýninguna og það í verkfalli skólanna. Það var yndis- legt því þá var hægt að æfa þau betur. Það er svo gott að fá sakleysi þeirra inn í myndina." Leikarar taka þátt í danssýningunni: Ambjörg Hlíf Valsdóttir, Baldur Trausti Hreinsson, ívar Öm Sverrisson, Kjartan Guðjónsson, Nanna Kristín Magnús- dóttir, Ólafi'a Hrönn Jónsdóttir og Ragnheiður Steindórsdóttir. „Leikararnir em fólk sem er til í að prófa eitthvað nýtt og reyna nýjar að- ferðir í vinnu. Þannig að það var gaman að vinna með þeim," segir Auður og er svo þotin. Lýsing er í höndum Ásmundar Karlssonar og Harðar Ágústssonar og um leikmynd og búninga sér Rebekka A. Ingimundardóttir. Sýningar á verkunum tveimur verða þrjár: ffumsýning er á miðvikudag, en síðan verða sýningar á þriðjudag í næstu viku, þann 23. og svo miðviku- daginn 1. desember. Flugur Umsjón: Páll Baldvin Baldvinsson pbb@dv.is VANDA Rlkisútvarpsins var skemmtilega lýst I löngum Kastljós- þætti i fýrrakvöld. Tveir spyrlar, starfsmenn RÚV, reyndu að hafa stjórn á prógrammi sem hafði verið kastað upp í flýti kringum könnun sem RÚV hafði pantað um sjálft sig. Þeir ræddu við enn fleiri starfsmenn RÚV, fyrrverandi og núverandi, ráð- herra RÚV og formann Vinafélags RÚV og útvarpsstjóra RÚV. Þá var spjallað um línur við einstaklinga i þremur landshornum. Þátturinn fór úr böndunum: hljóðvarpshlutinn gleymdist, það var rétt tæpt á rás 2. ÁTAKANLEGAST var að heyra fyrr- verandi Heimdelling og flokksmann Sjálfstæöis- flokksins, útvarpstjór- ann sjálfan, þvo sér I þrigang afáburöi um pólitísk afskipti af Ríkisútvarpinu. Nei það haföi bara ekki gerst, var nánast þjóðsaga, alla vega ekki I seinni tíð, tautaði Markús oní bringuna á sérþegarhann upp- götvaði hvaö hann var búinn aö skrökva mikið. MENNTAMÁLARÁÐHERRA virðist vera kominn á þá skoðun að það eina sem geti bjargaö andliti henn- arsé að tönnlast á því í tima og ótíma að hún leyfi ekki eyðslu, þvæla fram og tilbaka um forgangsröðun. Enda hvað getur stelpugreyið sagt? Hall- dór og Davið nýbúnir öðru sinni að ganga gersamlega yfir hana og framundan sama pattstaða I mál- efnum RÚV og rikt hefur um árabil. FRAMTÍÐ RÚV ræðst afsamkomu- lagi flokka vinstra megin við miðju þarsem Sjálfstæðisflokkurinn verð- ur skilinn eftir. Höggva verður á hnút eftirlaunagjalda og gefa stofn- uninni kost á að endurskipuleggja lífeyrisskuldbindingar sínar. Losa verður hljóövarpshlutann frá Sjón- varpinu sem er frekari parturinn í samsteypunni og siðan losa haft Sinfóníunnar af hljóðvarpinu. Það er fáránleg staða að ráðamenn skuli þora og geta gert Sinfóniuna aö sjálfstæðum aðila og lýsir engu öðru en metnaðarleysi og heigulshætti pólitískra flokka i landinu. Áð þess- um forsendum gefnum er hægt að ræða af viti um stöðu og stefnu Rlk- isútvarps og Ríkissjónvarps í flóru fjölmiðlunar i landinu, fyrr ekki. RÁÐHERRA fann fljótt i þættinum að hann var umkringdur, ekki bara af RÚV-liðinu, heldur líka afþegj- andalegum ungling- umápöllunum sem voru fulltrúar meirihlutans sem í könnunum vill eiga almennilegt Ríkissjónvarp og Hljóðvarp á j tveimur rásum. Þjóðin kærir sig ekki um hlutafélag um reksturinn eftir Símaævintýrin. Þegar ráðherrann fann að ætlast var til peninga úr rík- iskassanum í framleiðslu leikins efn- is fór hún öll að aka sér og sett talandann ígang og sagði ekkert af viti ismástund þar til henni leið að- eins betur. Tvö ný íslensk dansverk eftir Auði Bjarnadóttur verða frumsýnd á morgun í Þjóðleik- húsinu: Ern eftir aldri er sýningin kölluð og sam- anstendur af tveim- ur verkum sem börn og fullorðnir dansa, leikarar og dansarar. Svölu- leikhúsið stendur að sýningunni í samvinnu við Þjóð- leikhúsið V' ið gripum Auði fimm mínút- um fyrir rennsli í gær. „Ég er að reyna að tengja saman. Fjallkonuímyndin hefúr sótt á mig lengi. Ritgerð Ingu Dóru Bjöms- dóttur um þær hugmyndir sem eru að baki fjallkonutákninu var mjög inn- spírerandi og svo var mér bent á mynd- ina hans Magnúsar." Heilmildarmynd innblástur Fyrra verkið, Em eftir aldri, er inn- blásið af samnefndri heimildarmynd Magnúsar Jónssonar kvikmyndagerð- armanns og leikstjóra. Magnús stýrði tökum fyrir sjónvarpið af þjóðhátíðar- haldi um allt land sumarið 1974. Að loknu þjóðhátíðarsumrinu ákvað hann að gera sérstaka yfirlitsmynd um há- tíðahöldin og lauk við hana. Forráða- menn sjónvarpsins vildu ekki sýna hana og lá myndin ósýnd í fjölda ára, enda heldur háðuleg mynd af þjóð- rembingi og yfirborðskenndum þjóð- armetnaði. Þess mynd notar Auður sem gjafa fyrir dansverk. Auður segir: „Ég er að reyna að blanda saman pólitík og kannski svolitlum femínisma við dansinn, tengi það síðan saman við texta og mynd. Þetta er tilraun til að búa til íslenskt dansleikhús." Myndbandavinnslu sér Efisabet Rónaldsdóttir um og texta hefur Efisa- bet Jökulsdóttir samið. Tónlist hefur Jóhann G. Jóhannsson samið og flytur við þriðja mann. Ef væri ég fugl Hitt verkið, Ef ég væri fugl, er samið við tónlist Áma Egilssonar við ljóðið From the Rainbow eftir Dorette Egils- son konu hans, sem er ort til minning- ar um böm sem hafa orðið fómarlömb ofbeldis. Auður sagði verk sitt hafa sprottið fyrst og fremst af tónlist Áma: „Einn daginn vill maður reyna að gera eitthvað til að bæta heiminn, fara til Afríku eða eitthvað, annan daginn get- ur maður ekkert gert.“ Ámi og Dorette hafa búið í Banda- ríkjunum um árabil, en þessa dagana er Ámi í kastljósi hér heima: bæði er hér flutt nýtt dansverk við tónlist hans og einnig er flutningur á nýju verki með Mezzoforte fyrirhugaður í Langholts- kirkju innan fárra daga. Ljóðið verður flutt í sýningunni í þýðinguÁma Ibsen, og Ania Harre vinnur myndband við sýxúnguna. Sex manna strengjasveit leikur undir stjóm Hákonar Leifssonar. Auður Danshöfundurinn og leikstjórinn Auður Bjamadóttir hefur dansað með íslenska dansflokknum, við Bayerische Staatsoper í Múnchen, með Basler Ballet og Konunglega sænska ballettin- um. Frá 1987 hefur hún starfað jöfnum hönd- um við leik- hús og dans, sem höf- undur og leik- stjóri, hjá ís- lenska dans- flokknum, Listdansskóla íslands, Þjóð- leikhúsinu, Borgarleikhúsinu og Leik- félagiAkureyrar. Auður hefur verið forkólfur í rekstri sjálfstæðra danshópa sem komið hafa undan starfi íslenska dansflokksins. Hún var listrænn stjómandi íslenska dansflokksins frá 1989 til 1990 og stofn- aði Pars pro toto ásamt fleirum og síð- an Svöluleikhúsið árið 1990. Meðal verka hennar em sólóverkin Ertu svona kona og Andinn í rólunni, Mánans ar, Jörfagleði, Sálmar lífsins og Salka Valka sem íslenski dansflokkurinn sýndi á Listahátíð í Reykjavík. Auður leikstýrði Ástarsögu 3 eftir Kristínu Ómarsdóttur í Borgarleikhús- inu 1997, Söngvaseið á Akureyri 1998 og ópemnni Maður hfandi 1998 og bamaóperunni Ófelíu 1999 með Strengjaleikhús- inu. í janúar 2005 verður frumsýnt leikrit Kristínar Ómarsdóttur, Segðu mér allt, í leikstjóm Auðar í Borgarleikhús- inu. Hópurinn Svöluleikhús- ið stendur að sýningunni ásamt Þjóð- leikhúsinu. Það hefur verið styrkt af menntamálaráðuneyti, menningar- borgarsjóði og Henson. Dansarar em Ástrós Gunnarsdóttir, Jagúar sýnir tennurnar Þessir tveir diskar sýna bandið í sinu besta formi. Dansaðu fíflið þitt... var hljóðritaður í vor á Lista- hátíð. Vettvangurinn var Nasa og hafði bandið bætt við sig auka- mönnum til að takast á við tónlist Tómasar Einarssonar i nýjum út- setningum Samuels. Öllum viðstödd- um bar saman um að kvöldið hafi verið einstaklega vel heppnað. Sig- urður Flosason og Óskar Guðjóns- son settust í blásarasveitina þetta kvöld, Sigtryggur Baldursson skaust í slagverkið og Bogomil Font hóf raust sína við þeyting Gisla Galdurs. Alls voru níu lög fest í afrit á tveimur hljómleikum en bandið var fullskip- uð fjórtán manna sveit. Þriðja breiðskífa Jagúars kemur í verslanir á laugardag og verður efnt til margvislegra hátíðahalda í tilefni dagsins sem endar aftur i blástri við hljóðfæraslátt á Nasa. Hello Some- body hefur að geyma 10 lög en sú breyting hefur orðið á frá fyrri breið- skífum hljómsveitarinnar að textum og söng hefur verið bætt við laga- smíðarnar. Jagúarmenn halda sig við vandað gleðifönk sem höfðar til allra aldurs- hópa. Þeir hafa viðað efni í laga- smíðarnar að sér víða á undanförn- um þremur árum enda vinsæl tón- leikahljómsveit sem spilað hefur á mörgum virtustu tónleikastöðum Evrópu. Þá fóru sveitarmeðlimir í píla- grimsferð til Harlem í New York sl. sumar til að kanna rætur sálartón- listarinnar og þar fæddist nafnið á plötuna. Jagúar fengu Al Stone, upp- tökustjóra Jamiroquai, til að vinna að tveimur laganna á plötunni með sér og hafa nýverið ráðið sér um- boðsmanninn Keith Harris til að vinna að framgangi og útgáfu á efni sinu utan íslands. Hello Somebody var tekin upp í Stúdíó Silence sem er í eigu Jagúar- bræðranna Daða og Barkar Birgis- sona. Daði sá um upptökustjórn á plötunni fyrir utan þau tvö lög sem Al Stone vann að með honum. ívar Bongó sá um hljóðblöndun i Sýr- landi. Útgáfudagurinn verður annasam- ur hjá þeim sjömenningum. Þeir hefja daginn á djammi í nýju Smekk- leysubúðinni i kjallaranum i Kjör- garði klukkan 75.00. Siðan koma þeir fram í þætti Gísla Marteins um kvöldið og taka þar tvö afeigin lög- um. Harry Belafonte verður einnnig gestur i þættinum sem erindreki Sameinuðu þjóðanna og standa vonir til að hann taki eitthvað afsín- um lögum með hljómsveitinni. Út- gáfutónleikar sveitarinnar hefjast síðan á Nasa klukkan 22.00. Spila- bandið Runólfur sér um að kynda upp stemminguna. Hljómsveitin mun síðan fylgja útgáfu disksins eft- ir með uppákomum fram til jóla en þá hefst undirbúningur fyrir útgáfu disksins á merki Smekkleysu í Bret- landi og á meginlandi Evrópu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.