Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2004, Qupperneq 6
Fréttir DV
6 MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 2004
-------í------------------------
Milljóna-
mæringar
á Akranesi
Miðaldra hjón á Akra-
nesi unnu 37 milljónir í
Lottóinu um síð-
ustu helgi. Einn
var með allar
fimm tölurnar
réttar þegar dreg-
ið var í sexföldum
pottinum á laug-
ardagskvöldið. Miðinn var
seidur í Skeljungi á Skaga-
braut 43 á Akranesi. Skaga-
hjónin vitjuðu vinningsins
seinnipartinn á mánudag-
inn. Hjónin höfðu orð á því
við starfsmenn íslenskrar
getspár að þau ætluðu að
leggja peningana inn á
banka og njóta hans í ell-
inni. „Þau vilja alls ekki að
þetta spyrjist út. Voru ekki
viss um hvort þau ætluðu
einu sinni að segja börnun-
um sínum þetta,“ sagði
Guðbjörg Hólm hjá Lottó-
inu sem afhenti þeim millj-
ónirnar 37 á mánudaginn.
Græða 350
milljónir
Tekjur Seltjarnames-
bæjar vegna sölu lands
og bygginga á Hrólfs-
skálamel og Suðurströnd
verða 350 milljónir
króna samkvæmt fjár-
hagsáætlun bæjarins fyr-
ir næsta ár. Tekjur aðal-
sjóðs sveitarfélagsins og
stofnana þess eru áætí-
aðar 1.432 milljónir
króna en gjöldin 1.254
milljónir. Hagnaðurinn
er því áætlaður 177
milljónir króna. Út-
svarsprósentan á Sel-
tjarnarnesi er og verður
12,46%. í mörgum öðr-
um sveitarfélögum,
meðal annars Reykjavík
frá og með næsta ári, er
útsvarið 13,03% - sem er
leyfilegt hámark.
Ertu sáttur við
útsvars-
hœkkunina?
Kari Hjaltested
veitingamaður
„Nei. Alls ekki. Mér fínnst það
alveg með ólíkindum að þeim
skuli detta þetta í hug. Mér
fínnst borgarfulltrúar eiga að
hafa eitthvað þarfara fyrir
stafni en að hækka á okkur
álögurnar."
Hann segir / Hún segir
„Já, alveg hiklaust. Sérstaklega
í Ijósi kennaradeilunnar sem
nú stenduryfir. Efþað er
greinilegt að sveitarfélögin
eiga ekki fyrir launahækkun-
um þessarar stéttar er í raun
eitt að gera. Afla meira fé."
Steinunn Birna Ragnarsdóttir
píanóleikari
Félag löggiltra endurskoðenda þurfti að aflýsa árshátíð sinni um síðustu helgi.
Áhugaleysi félagsmanna var ástæðan þó svo sjálfur forsætisráðherra hafi verið
auglýstur ræðumaður kvöldsins en Halldór Ásgrímsson er sem kunnugt er mennt-
aður endurskoðandi.
Félag löggiltra endurskoðenda aflýsti árshátíð félagsins sem
halda átti á Hótel Sögu um síðustu helgi. Aðalræðumaður
kvöldsins hafði verið kynntur Halldór Ásgrímsson forsætisráð-
herra sem jafnframt er endurskoðandi og kenndi það fag til
skamms tíma við Háskóla Islands. Forystumenn endurskoð-
enda aftaka með öllu að niðurfelling árshátíðarinnar hafi nokk-
uð með auglýstan ræðumann að gera.
Þung spor
Sjálfur þurfti formaður Félags
löggiltra endurskoðenda ekki
taka á sig þann kross að tilkynna for-
sætisráðherra að ekkert yrði af fyrir-
hugðum ræðuhöldum hans á ársha
tíð kollegana: „Það fór eftir öðrum
leiðum eins og gengur og gerist í
svona málum," segir formaðurinn.
Húmoristi
Þrátt fyrir allt mun forsætisráð-
herra þó vera eftirsóttur ræðumaður
á alls kyns samkomum og eiga til
„Það er leiðinlegt þegar svona
kemur fyrir," segir Sigurður Birgir
Arnþórsson, formaður Félags lög-
giltra endurskoðenda. „Um 60
manns höfðu að vísu skráð sig á árs-
hátíðina en svo vildi til að tvær af
stærstu endurskoðunarskrifstofum
landsins höfðu sjálfar verið með árs-
hátíðir helgarnar á undan. Ég held
einfaldlega að menn hafi verið bún-
ir að fá nóg.“
Sjaldgæft er að aflýsa þurfi stór-
um árshátíðum eins og endurskoð-
endur ætíuðu að halda á Hótel Sögu.
Vel hafði verið vandað til alls og
miðaverð alls ekki í ódýrari kantin-
um. Sigurð Birgi formann minnir þó
að miðaverðið hafi verið undir níu
þúsund krónum.
„Það var líka fleira sem þarna
kom til. Haldnar hafa verið miklar
ráðstefnur að undanförnu sem oft
enda með einhverjum samsætum
þannig að endurskoðendur hafa
haft í nógu að snúast og í raun verið
að hittast. Það er á haustin sem end-
urskoðendur þurfa að bera saman
bækur sínar til að mæta nýjum regl-
um sem verið er að setja," segir Sig-
urður Birgir.
um."
Forystumenn endur-
skoðenda aftaka með
öllu að niðurfelling
árshátíðarinnar hafi
nokkuð með auglýst-
an ræðumann að
gera.
góða spretti þó hann nái sjaldnast
flugi forvera síns í embætti. Eða eins
og gamall framsóknarmaður
kaus að orða það:
„Halldór er
ágætur
húmoristi
þegar sá
gállinn
er á
hon-
Arnþrúður Karlsdóttir hótar að kæra meðeigendur sína til lögreglu
Útvarp Saga springur í loft upp
„Ég las í blöðunum að Arnþrúð-
ur ætlaði að kæra okkur til Ríkislög-
reglustjórans. Datt mér þá í hug
sagan af manninum fyrir austan
sem var stolið frá og hann eftir það
ekki kallaður annað en Siggi þjóf-
ur,“ segir Sigurður G. Tómasson,
útvarpsmaður og einn stofnenda
Útvarps Sögu, en þar er allt sprung-
ið í loft upp og Sigurður hættur
störfum. „Það sama gildir um félaga
mína þá Hallgrím Thorsteinsson og
Ingva Hrafn Jónsson," segir hann.
Arnþrúður Karlsdóttir útvarps-
kona náði fyrir skemmstu meiri-
hluta í stöðinni þegar hún keypti
Ingva Hrafn Jónsson út og lýsti því
þá yfir að á bak við hana stæðu fjár-
sterkir aðilar og í vændum væri
betri tíð með blóm í haga. Sigurði
G. Tómassyni þykir það ekki hafa
gengið eftir:
„Ég hef ekki fengið laun í hálfan
annan mánuð og ég er þannig stadd-
ur að ég verð að fá laun fyrir vinnu
mína. Kannski ekki há laun en ein-
hver. Amþrúður hefur ekld staðið við
neitt af því sem hún lofaði og sjálfur
hef ég ekki lagt það í vana minn að
svíkja fólk og ljúga. Ég kann það
ekki," segir Sigurður G. Tómasson
sem mætti ekki til vinnu sinnar í gær-
morgun og því þurfti Arnþrúður sjáif
að sjá um morgunútvarp stöðvarinn-
ar. Hélt hún því áfram fram að hádegi
og endurflutti hluta þess eftir hádegi.
Þá var sett í spóla með endurteknum
þætti Rósu Ingólfs frá því um síðustu
helgi. Allt er því upp í loft hjá Útvarpi
Sögu.
„Ég held að Arnþrúður ætti að
svara því hverjir þessir fjársterku
aðilar eru sem hún ætlaði að koma
með inn í reksturinn,“ segir Sigurð-
ur G. Tómasson.
Ekki náðist í Arnþrúði Karlsdótt-
ur í gær. Hún var sögð á fundum.