Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2004, Page 21
DV Sport
MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 2004 21
Haukar tefla fram einum sterkasta heimavelli landsliðs í körfunni það sést vel á
því að karlalið Hauka hefur unnið 17 af síðustu 19 heimaleikjum sinum í Inter-
sport-deildinni á heimavelli sínum á Ásvöllum. Það versta fyrir Hafnfirðinga er að
útisigrarnir í úrvalsdeildinni á síðustu tveimur vetrum eru aðeins Qórir.
Tvö lið Haukanna
MUNUR A LYKILMONNUM
Hér fyrir neðan má sjá hversu
miklu munar á framlagi þriggja
iykiimanna Haukanna eftir því
hvort þeir eru að spila á heima- eða
útivelli í Intersportdeildinni. Þetta
eru einmitt þrír stigahæstu leik-
menn liðsins í fyrstu sjö leikjum
tímabilsins. John Waller hefur
skorað 23,9 stlg (leik, Mirko
Virijevic skorað 14stig í leikog
Sævar Ingi Haraldsson er með 13,4
stig að meðaltali (leik.
JOHN WALLER
Meðaltöl í Intersportdeildinni:
Haukarnir tefla að því virðist fram tveimur liðum í Intersport-
deildinni í körfubolta, annars vegar liðið sem spilar leiki sína á
Ásvöllum og hefur unnið níu úrvalsdeildarleiki í röð og hins veg-
ar liðið sem spilar utan Hafnaríjarðar og hefur tapað öllum fjór-
um útileikjum sínum í úrvalsdeildinni á þessu tímabil og hefur
aðeins náð í 8 stig af síðustu 30 mögulegum.
Karlalið Hauka í körfunni vann á
sunnudagskvöldið sinn þriðja leik í
Intersport-deildinni, mikilvægan
sigur sem kom þeim upp töfluna.
Haukarnir mættu þar KR-ingum og
unnu 92-87 í leik þar sem þeir höfðu
frumkvæðið allan tímann.
Þegar litið er á ffammistöðu ein-
stakra leikmanna liðsins kemur vel í
ljós í tölfræðinni af hverju gengi liðs-
ins er svona miklu betra á Ásvöllum
en annars staðar því allir státa þeir
af miklu betri tölfræði á heimavelli.
Sævar Ingi hittir mun betur
Sævar Ingi Haraldsson, 20 ára
fyrirliði og leikstjórnandi Haukaliðs-
ins, hefur tekið við meiri ábyrgð í
vetur og staðið sig mjög vel. Sævar
Ingi er annar í stoðsendingum í
deildinni með 8,1 að meöaltali.
Það er samt mikill munur á fram-
lagi Sævars Inga á heimavelli þótt að
hann hafi spilað færri mínútur þar
en utan Ásvalla. Sævar Ingi hefur
þannig hitt 24,2% betur á heimavelli
og gefið 4,4 fleiri stoðsendingar að
meðaltali í leik sem á mikinn þátt í
að það munar 11,4 stigum á framlagi
hans eftir því hvort liðið er að spila á
heima- eða útivelli. Svipað var uppi
á teningnum á síðasta tímabili.
John Waller hefur ekki breytt út
frá venju félaga sinna í Haukaliðinu
því hann hefur skorað 7,3 stigum
fleiri að meðaltali á heimavelli en á
útivelli og státar meðal annars af
76,2% þriggja stiga nýtingu í þremur
leikjum liðsins á Ásvöllum þar sem
hann hefur nýtt 16 af 21 skoti sínu
fyrir utan þriggja stiga línuna. Alls
munar 12,3 stigum í framlagi Waller
til liðsins hvort hðið spilar á Ásvöll-
um eða utan þeirra.
Mirko Virijevic gekk til liðs við
Hauka fyrir tímabihð og það má líka
sjá mikinn mun á frammistöðu hans
á heima og útivelli. Mirko hefur sem
dæmi skorað 5,8 fleiri stig, tekið 4,0
fleiri fráköst og gefið 2,2 fleiri
stoðsendingar að meðaltali á
heimavelli en á útivelli það sem af í
Intersport-deildinni og alls munar
11,1 stigum í framlagsjöfnunni.
Predrag Bojovic gerðist aðstoðar-
þjálfari Haukaliðsins fyrir þetta
tímabil og það er athyghsvert að
skoða hversu meira hann spilar á
útivelli en á heimavelli. í fjórum úti-
leikjum liðsins hefur „Kúki" spilað
HEIMA EÐA ÚTIVÖLLUR
Sigrar-töp og sigurhlutfall:
Heimavöllur Útivöllur
3-0 2004-05 0-4
100% % 0%
9-2 2003-04 4-7
81,8% % 36,4%
12-2 Frá 2003 4-11
85,7% % 26,7%
22.8 mínútur að meðaltali en aðeins
9.8 mínútur að meðaltali á heima-
velh liðsins á Ásvöllum. Bojovic er
einn af fáum leikmönnum liðsins
sem skila meiri til liðsins utan
Ásvallanna.
Þegar tölfræði liðsins er skoðuð
Athyglisverðir vináttulandsleikir á dagskránni í kvöld
48. landsleikurinn undir stjórn Svens
f kvöld er landsleikjakvöld á
dagatali FIFA og þá fara fram bæði
leikir í undankeppni HM 2006 sem
og nokkrir vináttulandsleikir hjá
virtustu knattspyrnuþjóðum heims.
Stærsti leikurinn er örugglega
vináttulandsleikur Englendinga og
Spánverja sem fer fram á Bernabeu-
vellinum, heimavelli Real Madrid.
Tveir af landshðsmönnum Englend-
inga, David Beckham og Michael
Owen spila þar á sínum daglega
heimavelli.
Þetta verður 48. landsleikurinn
sem Englendingar spila undir stjórn
Svens-Görans Ericksson sem hefur
stjómað landshðinu síðan 2001.
Árangur liðsins er vel ásættanlegur
enda einu töpin gegn Brasih'u (HM
2002) og Portúgölum (EM 2004).
„Ég vona og óska þess að við
stöndum okkur vel í framtíðinni því
það skiptir mestu fyrir mig sem
þjálfara þessa liðs að liðið standi sig
á stórmótum," sagði Eriksson á
blaðamannafundi fyrir leikinn en
enska landsliðið hefur dottið út úr
átta liða úrslitum á síðustu tveimur
stórmótum.
„Ég elska mest við þetta starf að
þar er hægt að vinna titla en það
sem er vandamálið að tæki-
færið til þess gefst á aðeins ..
tveggja ára fresti. Þetta
ólíkt því að þjálfa
félagslið og það er
ljóst að enginn sættir
sig við að komast í
átta liða úrslitin," I
segir Eriksson um
árangurinn.
Þrjú Uð úr okkar riðh
spila vináttulandsleiki í
kvöld, Króatar sækja íra
heim, Svíar fara í heimsókn
til Skota og Búlgarir /
sækja Asera heim í
Bakú. Tvær þjóðir
sem hafa legið
undir mikill
48. leikurinn Sven-Göran Eriksson
fer meðjsína menn til Madríd ikvöld.
betur er skotnýting liðsins mun betri
á Ásvöllum en mestu munar þó ör-
ugglega um fráköstin. Haukarnir
hafa tekið 61,1% frákasta í boði á
heimavehi en aðeins 44,7% frákasta
á útivelh þar sem mótherjarnir hafa
náði í 64 sóknarfráköst eða 16 að
meðaltali í leik.
Níu sigrar í röð
Haukarnir hafa nú unnið 9
heimaleiki í röð og nálgast óðum fél-
agsmet sitt frá árinu 1996 þegar liðið
náði að leika 15 heimaleild í úrvals-
deildinni í röð án þess að tapa. I þá
daga léku Haukarnir heimaleiki sína
í íþróttahúsinu við Strandgötu en
núverandi sigurganga er hins vegar
sú lengsta hjá Haukum í nýja
íþróttahúsinu á ÁsvöUum. Haukarn-
ir unnu átta heimaleiki í röð á Ás-
vöUum árið 2003. ooj@dv.is
Frábær á Ásvöllum Sævar Ingi Haralds-
son, hinn ungi fyrirliði Haukanna, hefurspil-
að vel í vetur og þá sérstaklega á heimavelli
sínum á Ásvöllum en þar státar hann af
tvennu að meðaltali, hefurskorað 14,3 stig
og gefið 10,7 stoðsendingar að auki.
DV-mynd: Vilhelm
Heimavöliur Útivöllur
27,7 Mínútur 34,0
28,0 Stig 20,8
6,7 Fráköst 7,0
3,0 Stoðsendingar 3,0
30,0 Framlag 17,8
65,2% Skotnýting 49,3%
66,7% Vítanýting 60,0%
MIRKO VIRIJEVIC
Meðaltöl í Intersportdeildinni:
Heimavöllur
32.3
17.3
Mfnútur
Stig
Útivöllur
30,8
11,5
11,0 Fráköst 7,0
2,7 Stoðsendingar 0,5
20,3 Framlag 9,3
48,8% Skotnýting 41,3%
80,0% Vitanýting 80,0%
SÆVAR INGI
Meðaltöl í Intersportdeildinni:
Heimavöllur Útivöllur
29,7 Mínútur 34,5
14,3 Stig 12,8
5,0 Fráköst 4,8
10,7 Stoðsendíngar 6,3
24,7 Framlag 13,3
63,0% Skotnýting 38,8%
62,5% Vítanýting 62,5%
gagnrýni að undanförnu fá gott
tækifæri tU þess að sanna sig á
heimavelU því Þjóðverjar fá
Kamerúna í heimsókn og Frakkar
taka á móti Pólverjum
Það eru lfka fleiri leikir á
dagskránni, Norðmenn mæta sem
dæmi Áströlum á Craven
Cottage í Lundúnum en það
er heimavöUur Fulham.
önnur athyglisverð
viðureign er leUcur
nágrannaþjóðanna
Slóvakíu og Slóveníu, þá fá
ítalir Finna í heimsókn tU
þess að loka Norðurlanda-
þjóðaárinu sínu sem hefur
reynst þeim afar erfitt.
ooj@dv.is
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Auglýsing um breytingu á aðal-
skipulagi og deiliskipulagi í Reykjavík
[ samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst til
kynningar tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík
og breyting á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024 í
samræmi við 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997.
Sléttuvegur, breyting á aðalskipulagi.
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001 -
2024 vegna svæðis fyrir vestan Háaleitisbraut, milli
Sléttuvegar og Bústaðavegar.
Tillagan gerir ráð fyrir að hluti svæðis fyrir þjónustustofn-
anir, breytist í íbúðarsvæði.
Sléttuvegur, breyting á deiliskipulagi.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi, svæði sem er vestan
Háaleitisbrautar, milli Sléttuvegar og Bústaðavegar.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að nýir skilmálar verði gerði
fyrir lóð III á Sléttuvegi, reisa megi íbúðarhús á lóðinni að
hámarki 8000m2 fyrir utan bílastæði neðanjarðar, þrjár til
sex hæðir, hæsti hluti næst Landspítala Háskólasjúkra-
húsi (Borgarspítala) og lægsti hluti næst núverandi byggð
við Sléttuveg. Gert er ráð fyrir að hámarksfjöldi íbúða
verði 70.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipulags- og
byggingarsviðs Reykjavíkurborgar í Borgartúni 3, 1. hæð,
virka daga kl. 8.20 - 16.15, frá 17. nóvember til og með
31. desember 2004. Einnig má sjá tillögurnar á heimasíðu
sviðsins, skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hags-
muna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar.
Ábendingum og athugasemdum við þær skal skila skrif-
lega til skipulags- og byggingarsviðs (merkt skipulags-
fulltrúa) eigi síðar en 31. desember 2004.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 17. nóvember 2004
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SlMI 563 2600 • MYNDSENDIR 562 3219