Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2004, Side 25
DV Menning
MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 2004 25
Norræna ráðherranefndin efnir til ráðstefnu um norræna menningararfinn. Fullt af útlendingum er flog-
ið inn og tekur tvo langa daga að komast að niðurstöðu. Listamenn ræða endurvinnslu á fornum arfi
Mæta Púp og mim
IBBð ðBBBPBBP SÍBBP?
Á morgun hefst í sölum Nordica-
hótelsins við Suðurlandsbraut nor-
ræn ráðstefna. Það er norræna ráð-
herranefndin sem átti frumkvæðið
að ráðstefnuhaldinu og var Eyþór
Arnalds tónlistarmaður og athafha-
skáld ráðinn verkefnastjóri. Mun
ráðstefna standa í tvo daga og er
væntaniegt til landsins frítt föru-
neyti norrænna listamann sem eru
miícilvirkir á alþjóðlegum vettvangi.
Rætur reifaðar
Það sem er óvenjulegt er að lista-
menn eru miðpunkturinn þing-
haldsins en en ekki fræðimenn. Þá
telst það til nýnæma við þingið að
áherslan er á samtímann og alþjóð-
legt samhengi í notkun á minnum úr
sameiginlegum arfi norrænna
þjóða. Kvikmyndir verða áberandi,
en sýnt verður úr kvikmyndum á
vinnslustigi Beowulf sem byggir á
fornensku kvæði frá miðöldum,
Thor sem byggir á sögum og kveð-
skap frá íslenskum miðöldum og Eg-
ilssaga sem byggir á íslenskum
heimildum um hið fornfræga borg-
firska skáld.
Sameiginlegur arfur
Ráðstefnuhaldið er Ufandi sönn-
im þess að norðanmenn eiga sér
sameiginlegan arf sem hefur á síð-
ustu árhundr-
. uðum dreifst
víða. Fyrir fáum ,
árum sýndi Árni'
Björnsson fram á
íslenskur kveðskapur (
hefði verið Richard
Wagnes djúgt vegan-
esti við samningu j
Niflungahringsins
sem margir hafa áUtið að væri alfar-
ið byggður á germönskum heirrúld-
ARNÞÓR BIRGISSON
Heldur erindi a norrænni ráðstefnu þar
sem hann greinir frá þvi hvernig sænski
skólinn er að endurnýja efnisbanka
söngkvenna á borð við Janet Jackson
og Jennifer Loþez.
DV-mynd Teitur
um Niflungaljóðs.
AUir vita hvemig ToUden
dró að sér viðamikið efiii í sínar sög-
ur úr norrænum kveðskap og sög-
um. Þannig hefur norðrið nært sam-
eiginlega menningu vestrænna
þjóða á áhrifaríkan hátt á ýmsum
tímum.
Ný tækni
Margir góðir gestar tala á þing-
inu: Mikkel Egelund Lee og HUmar
Sigurðsson gera hvor í sínu lagi
grein fýrir hvernig forn minni hafa
kveikt líf í nýrri tækni tölvugerðra
teiknimynda. Valdimar Hafstein
mun rekja hinn forna vanda hefðar
og frumleika og Arnþór Birgisson
tónlistarframleiðandi í Svíþjóð gera
grein fyrir hvernig sænski skóUnn er
að endumýja efnisbanka banda-
rískra r&b söngvara, Janet Jackson
og Jennifer L.
Okkar menn verða á svæðinu og
státa af glæsUegu framtaki Smekk-
leysunnar og Hilmar Örn mun gala
sinn galdur. Einar Már Guðmunds-
son tekur til máls. Einar Kárason og
Friðrik Þór halda tölur um væntan-
lega kvikmyndun Þórðar sögu
kakala sem Einar reyndar skrifaði
skáldsögu uppúr.
Og gömul
Eivör Pálsdóttir syngur á sinn
einstaka máta og Dagur Kári kaUar
tU hóp ráðamanna úr rrkjurn Dana
og Svía til að ræða kvikmyndagerð-
ina á Norðurlöndunum.
Ólafur Elíasson, sá norræni
myndlistarmaður sem mest er met-
inn í löndum utan norðursins tekur
tU máls og Þorvaldur Þorsteinsson,
formaður Bandalags íslenskra lista-
manna, mun draga saman niður-
stöður.
Þá verða þarna á ferðinni hljóm-
sveitarstjóri frá Finnlandi, fræði-
menn frá Svíþjóð og Bandaríkjun-
um, og loks flytja Hilmar Örn og
Steindór Andersen rímur.
Það er menntamálaráðherra sem
er gestgjafi samkomunnar. Aðgang-
ur er öUum frjáls og geta áhuga-
menn skráð sig tU spjaUsins á
veffanginu www.roots.is. Sem er
sérlega norrænt og viðeigandi nafh
fyrir svona skandinavíska sammen-
komst.
Fjögur síðustu kvæðin flutt
Á morgun verður danskur gestur í
framlínunni hjá Sinfóníuhljómsveit ís-
lands þegar danska sópransöngkonan
Inger Dam Jensen flytur Vier letzte
Lieder, einhverja fallegustu erfðaskrá
tónlistarsögunnar, eftir Richard
Strauss. Önnur verk á dagskránni
verða Háskólaforleikurinn, tónlist
Brahms við vinsælar stúdentadrykkju-
visur.og frumflutningur á l.sinfóníu
Elgar.
Rumon Gamba, aðalhljómsveitar-
stjóri Sinfóníuhljómsveitar Islands,
verður á stjórnarpallinum. Rumon
vann til verðlauna við Konunglegu
Tónlistarakademíuna, sigraði slðan
hann í keppni ungra hljómsveitar-
stjóra á vegum BBC og varð I fram-
haldi afþví aðstoðarhljómsveitarstjóri
Fílharmónlusveitar Breska rikisút-
varpsins.
Rumon Gamba hefurkomið fram
sem gestastjórnandi með flestum
hljómsveitum Bretlandseyja og starfað
með fjölda þekktra hljómsveita á meg-
inlandinu svo sem: Fílharmóníusveit-
inni I Múnchen, Útvarpshljómsveitinni
I Berlín og Sinfóníuhljómsveitinni I
Barcelona auk þess að hafa nýlega
þreytt frumraun sína með Fílharmón-
iusveitinni í New York, Sinfóníuhljóm-
sveitinni í Toronto sem og Sinfóníu-
hljómsveitunum í Sydneyog
Melbourne.
Rumon Gamba hefur nýlega gert
fastan samning við Chandosútgáfuna.
Rumon Gamba tók við stöðu aðal-
hljómsveitarstjóra og listræns stjórn-
anda Sinfóníuhljómsveitar Islands í
september2002.
Danska sópransöngkonan vakti
heimsathygli þegar hún barsigur úr
býtum i hinni virtu söngkeppni i
Cardiffáriö 1993. Sama ár réðst hún til
starfa við Det Kongelige Teater og hef-
Gamba stjórnar frumflutningi á Elgar.
ur síðan hrifið óperugesti þar í burðar-
hlutverkum í óperum eftir m.a. Mozart,
Donizetti og Richard Strauss.
Hún er einnig vinsæll gestur í ýmsum
óperuhúsum, svo sem Covent Garden I
London og Bastilluóperunni í París. Á
undanförnum árum hefur Inger Dam-
Jensen komið fram með mörgum af
frægustu sinfóniuhljómsveitum heims.
Hún hefursungiö Des Knaben Wund-
erhorn með New York filharmóniunni
undir stjórn Sir Colins Davis, Les
illuminations með Berlínarfílharmóní-
unni undir stjórn Bernards Haitinks,
aðra sinfóníu Mahlers með Philharm-
onia Orchestra undirstjórn Christophs
von Dohnányis og verkið sem hún
syngur á fyrstu tónleikum sínum með
Sinfóniuhljómsveit íslands hefur hún
m.a. fluttmeð Tékknesku fílharmóní-
unni undirstjórn Vladimirs Ashken-
azys.
Meðal fjölmargra hljómdiska með
söngkonunni má benda á disk frá
Naxosútgáfunni með sönglögum Carls
Nielsens.
Vier letzte Lieder - fjórir hljómsveit-
arsöngvar eru einhver fallegasta
erfðaskrá tónlistarsögunnar. Strauss
samdi þá sumarið 1948, ári fyrir andlát
sitt, og vissi að hverju stefndi. Hann
fann huggun og hugsvölun í nokkrum
Ijóðum eftirJoseph Eichendorff og
Hermann Hesse og klæddi þau I tón-
listarbúning eins og til að búa sjálfan
sig undir hið óumflýjanlega. Lífið, ást-
in, ævikvöldið og skrefið úti hið
óþekkta eru umfjöllunarefni þessara
undurfögru laga sem eru óbrotgjarn
minnisvaröi hins besta sem síðróman-
tiska stefnan hafði upp á að bjóða.
Eins og svo oft áður hafði Strauss
sópranrödd eiginkonu sinnar, Pauline, í
huga þegar hann samdi söngvana.
Strauss heyrði síðasta verk sitt aldrei
flutt og heldur ekki Pauline. Hún lést
átta mánuðum á eftir manni sínum og
níu dögum áður en Kirsten Flagstad
frumflutti söngvana í RoyalAlbert Hall
með Philharmonia Orchestra undir
stjórn Furtwánglers 22. maí 1950.
Hér er um að ræða snilldartónsmíð
og tímamótaverk íenskri tónlistar-
sögu. Sagt hefur veriö að þetta hafi
ekki einungis verið fyrsta sinfónia
Elgars, heldur sú fyrsta sem England
eignaðist og eitthvert gagn var í. Og
sinfónian féll óneitanlega í góðan
jarðveg. Það vareins og tónlistarheim-
urinn hefði hreinlega beðið eftir henni,
því rétt rúmu ári eftirfrumflutninginn
hafði hún hljómað yfir hundrað sinn-
um víðsvegar í heiminum.
Enn hefur hún ekki verið leikin hér á
landi, en þvimun Sinfóníuhljómsveitin
kippa í liðinn 18. nóvember 2004.
Önnur tónleikakynning vetrarins á
vegum Vinafélags Sinfóniuhljómsveit-
ar Islands fer fram I Sunnusal Hótels
Sögu klukkan 18.00 tónleikadaginn.
Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræð-
ingur kynnir efnisskrá kvöldsins.
Mikil aðsókn var á fyrstu tónleika-
kynningu vetrarins þarsem Árni Heim-
ir tók upp þráöinn frá síðasta starfsári
Sinfóníunnar og Vinafélagsins. Hann
leiðir fólk á lifandi hátt inn íheim tón-
Inger hin danska syngur Strauss.
listarinnar, kynnir iónskáldin og leikur
helstu stefverkanna á pianó.
Vinafélag Sinfóníuhljómsveitarinnar
varstofnað árið 2002. Markmið þess er
að efla áhuga á starfi Sinfóníuhljóm-
sveitar Islands og mynda tengsl viö þá
sem bera hag hennar fyrir brjósti.
VinafélagSinfóníuhljómsveitarinnar
styrkir fjárhagslega ákveöin verkefni
tengd hljómsveitinni.Á þessu starfsári
naut gerð heimildamyndar um tón-
leikaferð Sinfónluhljómsveitar Islands
til Þýskalands í desember 2003 stuðn-
ing úrsjóðum félagsins.
I síðasta mánuði hélt Vinafélagið
umræðufund í Iðnó um stöðu Sinfóni-
unnar i samtímanum og hyggst áfram
vera vettvangur fyrir umræðu um mál-
efni hljómsveitarinnar.