Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2004, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2004
Helgarblaö DV
Fallegt gólf er prýði heimilisms
Porkcfslipun
Lok k un
Oliuburður
B<«;sun
Ðonhrcin^un
oq bonun
Vióhnld f/rir
honuða duko
■ , VT
’jAA Attia, . 2A • 701
H.tlonij : trifo «yolfth|bnw'.lun.U
Sögulegar sættír
Bós og pressunnar
„Þá sjaldan sem maður lyftir sér
upp,“ segir sjálfur Bó Hall, eða Björg-
vin Halldórsson stórsöngvari, sem nú
er á fleygiferð með hljómsveitina sína
frábæru, Brimkló. Þessir „köntrí-bolt-
ar“ munu koma fram á Players í
Kópavogi í kvöld og víst er að þar
verður stemmning. Eða eins og segir í
tilkynningu frá hljómsveitinni: „Að-
dáendur Brimklóar eru á einu máli
um að skemmtilegast sé að skemmta
sér á dansleik með hljómsveitinni
Brimkló. Nýjasta hljómplata liljóm-
sveitarinnar „Smásögur" er nýkomin
út og hefur fengið frábærar móttökur
hjá landsmönnum sem og ljósvaka-
miðlum ölium."
Það var nefnilega það oghárrétt.
Hins vegar vekur sérstaka athygli að
Björgvin, sem auk þess að vera
söngvari hljómsveitarinnar hefur
tekið að sér að reka apparatið, hef-
ur verið duglegur við að vekja at-
hygli á og sendíi á ýmsa pósta gagn-
rýni Arnars Eggerts Thoroddsens á
Mogganum á nýja plötu Brimklóar.
Skemmst er frá því að segja að Arn-
ar Eggert gefur plötunni fullt hús og
segir:
„En hvernig er platan svo? Hún
er einfaldlega skotheld. (...] Björg-
vin, þessi magnaði „karakter", held-
ur þessu svo öllu saman með inn-
blásnum söng og auðheyranlegt að
hann er með hjartað í þessu. Setn-
ingin „þeír hafa aldrei verið betri" á
sjaldan við, er iðulega notuð til að
lýsa upplognum mikilfengleik út-
brunninnar sveitar. En hér hljómar
hún kórrétt. Þessi plata ber aukin-
heldur með sér „skáldlegt réttlæti".
Brimkló hlýtur hér uppreisn æru og
sagnffæðileg endurskoðun er í raun
nauðsynleg. Eða eins og segir í
„Dansinum": „...Brimkló upp’á
sviði er í góðum gír, svo gefðu séns,
einntveirog þrír".“
Þama kemur Amar Eggert
reyndar óbeint inn á stormasama
sambúð gagnrýnenda/blaða-
manna og Björgvins sem ekki hefur
ætíð notið sannmælis. En nú er öld-
in önnur. „Málið er að Brimkló hef-
ur ekki verið í uppáhaldi hjá hinum
ýmsu pennum landsins. Þess vegna
kemur þetta skemmtilega á óvart
hjá meðlimum Brimklóar," segir
Bó. Og: „Svo verður maður bara að
vera fyrir ofan „ noice level" í allri
þessari áreitni." jakob&dv.is
coKum o mon
opum OLLC 03
íoo monn$
Bó ÞaÖ er afsem áöur var og viröast
hafa tekist fullar sdettir með gagnrýnend
um og blaðamönnum þeim sem þykjast
framsæknir og Bó og Brimklóar.
Konungur ítalska dægurlagasöngsins, sjálfur Pino Marcucci, er
væntanlegur til landsins. Óttar Felix Hauksson og fleiri unnend-
ur ítalskrar tónlistar kunna sér ekki læti.
Félagamir Pino, Óttar og Robertino
Það fór vel á með þessum þremur hjarta-
knusurum þegar þeir hittust í sumar. Þá
varOttar að afhenda Robertino gullplötu
enÞað ereinungis vegna kunningsskap-
ar Robertinos og Pinos að það tekst að fá
mann afhans„kaliberi' hingað tillands
Sjálfur Pino Marcucci er vænt-
anlegur til landsins. Hvaða Pino?
Það má alveg bóka að nafnið hljóm-
ar kunnuglega í eyrum þeirra sem
eitthvað hafa beint sjónum sínum
að ítahu. Pino er nefnilega kallaður
konungur ítalska dægurlagasöngs-
ins hvorki meira né minna og tók
við þeirri nafnbót þegar Nino Rota,
sá hinn sami og samdi hið ódauð-
lega stef í Godfather-trílógíuna, féll
frá.
Ástæða hingaðkomu Pino Mar-
cucci eru tónleikar Robertinos,
barnastjörnunnar ódrepandi, en
Pino mun stjórna hljómsveitinni
sem leikur undir hjá Robertino.
„Þetta er alveg stórkostlegt,"
segir Óttar Felix Hauksson um-
boðsmaður Robertinos og á vart
orð í eigu sinni til að lýsa því hversu
frægur og flinkur Pino Marcucci er.
„Þetta eru fyrstu tónleikar Ro-
bertinos í Austurbæ í 40 ár og til að
þeir verði sem allra veglegastir
kemur Robertino hingað til lands
ásamt hinni þekktu ítölsku Univer-
sal
rythmasveit sem svo sjálfur Pino
Marcucci stjórnar."
Nú þylur Óttar upp hina ýmsu
sem Marcucci hefur spilað með og
útsett fyrir: José Carreras, Placido
Domingo, Elton John... „Og svo
hefur hann samið yfir 2000 lög og
gert tónlist fyrir 50 kvikmyndir.
Þetta er stórkostlegt og verður öllu
til tjaldað."
Tónleikarnir verða 1. desember
og er nú þegar byrjað að teikna sér-
staka leikmynd sem verður sett
upp. „Björn Björnsson,
Savannatríósmaður og leikmynda-
gerðarmeistari, mun hanna leik-
mynd. Þarna verða blóm og nota-
legheit. Ekta Napólí-stemming,"
segir Óttar og getur vart leynt til-
hlökkun sinni.
Þeir Robertino og Óttar hittu
Pino þegar Óttar fór utan til að af-
henda Robertino gullplötu sína en
íslenskir plötukaupendur tóku út-
gáfu Óttars á „Mammmmma..." og
fleiri lögum fagnandi um síðustu
jól. „Þetta er bara vegna kunningss-
kapar hans og Robertinos sem
þetta gengur upp að fá mann á borð
við Pino en það fór vel á með okkur
þegar við hittumst."
jakob@dv.is
Kona með regnhlíf Þessi mynd sem er
signeruð Scheving fór á 270 þúsund á uppboði i
Danmörku i vikunni.
Scheving sleginn fyrir lítið fé
Þessi gullfallega Scheving-mynd (sjá meðfylgjandi Ijósmynd af málverkinu) var
slegin i vikunni á uppboði sem Lauritz-uppboðshús i Danmörku stóð fyrir i sýning-
arsal sinum i Árhúsum. Þ6 svo að málverkamarkaðurinn sé i verulegri lægð núna
eftir fölsunarmálið mikla og furðulegar staðhæfingar mannaþess efnis aðá
markaði séu um þúsund falsaðra verka þá hlýtur verðiö á góðu
oliuverki eftir Gunnlaug Scheving að slaga hátt imilljón. Hann gerðiþvi góð
kaup, maðurinn sem keypti þetta verk á uppboði og gaf fyrir með gjöldum 23 þús-
und danskar. Það leggur sig á um 270 þúsund krónur.
Verkið er tiltölulega nett eða 45 x 56 og er líkast til frá Danmerkurárum meistar-
ans. Scheving er einn frumkvöðla hins íslenska málverks og hefur einkum verið
kenndur við expressionisma.
Scheving þróaði siðar list sina út í einkar sérstæðan og persónulegan stil. Þessi
mynd má hins vegar heita i impressíóniskum stil að hætti Manet, Degas og hinna
frönsku snillinga sem kenndir eru við þann stil.