Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2004, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2004, Blaðsíða 54
54 LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2004 Fréttir DV Gangandi fólk er frík Ungur og efnilegur stjórnmála- maður, Dagur B. Eggertsson, er orðinn formaður skipulagsnefndar Reykjavíkur. Hann tekur við af nýja ^&orgarstjóranum, Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, sem satt að segja átti í mestu brösum með þetta starf. Þurfti sífellt að verja skrítnar ákvarð- anir. Vandinn er sá að það hafa verið gefin of mörg fyrirheit sem ekki er staðið við. Það hefur ekki tekist að snúa við hroðalega vondri þróun í byggð Reykjavíkur. Til þess hefur vantað alvöru pólitíska forystu og vilja. Borgarstjórnin er of þróttlítil - málamiðlanirnar of útvatnaðar. AUt bendir því miður til þess að öfug- þróunin haldi áfram, líkt og rakið verður í þessari grein. Á sama tíma gefur borgin ríkinu stórt land undir spítala- hverfi í grennd við gamla Landspítalann. Þetta hefur ekki farið sérlega hátt, en gjöf- ina má meta á marga milljarða. Eina leiðin að taka Vatnsmýr- ina undir byggð Flestir sem taka til máls um ^kipulag Reykjavíkur láta eins og þeir vilji efla byggðina í miðbænum og þar í grennd, draga úr bílaum- ferð, þétta borgina. í raun virðist þó vera stefnt í alveg þveröfuga átt. Verkin tala. Borgin færist óðfluga upp norður með sundunum og lengra upp í hæðirnar hér í kring. Enn sem komið er hefur þétting byggðarinnar verið óveruleg. Það er eins og dropi í hafið að fylla upp í einhver smágöt í borgarmyndinni fyrir vestan Kringlumýri. Sé mönn- um einhver alvara með þéttingu verður að taka Vatnsmýrina undir 4yggð - það er eina leiðin. Þaðan mætti hugsast að byggðin færi að ná út á Álftanes - með brú yfir Skerjafjörðinn. Löngu tímabært að flugvöll- urinn hverfi Þótt samþykkt hafi vérið í furðu- legri atkvæðagreiðslu fyrir nokkrum árum að flugvöllurinn skuli vera á bak og burt eftir tólf ár, hangir fram- tíð hans í lausu lofti. Enn er ekki búið að samþykkja skipulag þar sem gert er ráð fýrir hvarfi flugvallarins, þótt það sé löngu tímabært - ætti í ’sllra síðasta lagi að vera tilbúið fyrir næstu kosningar. Umhverflsráðherra, sem þá var Siv Friðleifsdóttir, neitaði að stað- festa þann hluta aðalskipulagsins þar sem var búið að teikna brott- hvarf flugvallarins. Bak við tjöldin Egill Helgason " lýsir eftir stefnu I Wmtaim- WF miðborgarmálum. sfc. iL, Laugardagskj allari hömuðust landsbyggðarþingmenn og ráðamenn í samgöngumálum. Það var sett einhvers konar sátta- nefnd í málið - hún gat ekki komist að neinni niðurstöðu. Að endingu ræddi ráðherrann um að setja lög til að koma í veg fyrir að flugvöllurinn færi. ... minnir á borgir í Austur- Þýskalandi í staðinn eru teikn um að farið hafi í gang kapall þar sem stefnt er að því að styrkja flugvöllinn í sessi - tryggja að hann verði þarna til eilífð- arnóns. Það er verið að taka smá- bletti kringum Vatnsmýrina og skipuleggja þá alveg úr samhengi við alla hefldarhugsun - lflct og menn vilji gleyma því að hugmynd- in var að setja svæðið í alþjóðlega skipulagssamkeppni. Upp við Valsvöll er verið að setja saman hverfl sem minnir á borgir í Austur-Þýskalandi. Það eru flóknir peningahagsmunir sem ráða því að nýtingin á svæðinu er svona léleg - maður spyr lfka um möguleika verk- taka til að þrýsta á ráðamenn í borg- inni. Þetta gengur þvert á öll yfirlýst markmið um skipulag þessa borgar- hluta. Ný Hringbraut knúin í gegn með hroka Ekki hefur tekist að færa al- mennileg rök fyrir því að leggja nýja fjölakgreina Hringbraut. Málið hef- ur verið knúið í gegn með miklum valdhroka, í trássi við skynsamleg andmæli - ekki síst vegna þess að ríkið var loks tilbúið að borga. Báðar þessar framkvæmdir eru í þeim anda að að maður hlýtur að ætla að flugvöllurinn sé ekki á leiðinni burt - og að borgarstjórnin viti það fullvel. Á sama tíma gefur borgin ríkinu stórt land undir spítalahverfl í grennd við gamla Landspítalann. Þetta hefur ekki farið sérlega hátt, en gjöfina má meta á marga milljarða. Kannski hátt í flmm. Engin greiðsla kemur fyrir - sem hlýtur að teljast skrítið í ljósi þess að ríki og sveitar- félög eru vön að þrátta um hverja krónu sem ber í milli. Ríkisvaldið loks tilbúið Á móti bendir allt til þess að ríkis- valdið sé loks tilbúið að leggja fé í framkvæmdir við Sundabraut. Þar Það er himinn og haf milli orða og efnda í skipulagi Reykjavík- ur. Borgarstjórnin kemst aldrei hraðar en sá tregasti í sam- starfinu leyfir og því er látið reka á reið- anum í svo mikilvæg- um málum. verður farið að vilja samgönguráð- herra, farin innri leiðin svokallaða, inn fyrir Sundahöfn. Sundabrautin er forsenda þess að byggðin geti haldið áfram að færast í norður. Meðan smávægilega hefur verið fyllt upp í borgarmyndina vestan Elliða- HAMBORGARI, FRANSKAR, GOS Uúffengir hamborgarar í hádeginu sAUAí Langholtsvegi 89 • 104 Reykjavík Sími 588 7999 • texmex@texmex.is áa, hafa heilu hverfin verið að rísa í Grafarvogi, Grafarholti og Norð- lingaholti. Næst er Úlfarsfell, Geld- inganes, Blikastaðaland og Gufunes. Fyrir eru á svæðinu 40 þúsund manns - Mosfellsbær og Árbær þá taldir með. Samkvæmt skipulagi er gert ráð fyrir að önnur 40 þúsund geti bæst við á næstu áratugum. Samanlagt 80 þúsund. Sumardvalarstaður fyrir túrista Þannig erum við að horfa á byggðir með tugþúsundum manna norður með ströndinni - á sama tíma og íbúum í gamla bænum fjölgar kannski örlítið. Hápunktur- inn í þessari þróun yrði líklega bygg- ing verslunarkringlu í grennd við Korpúlfsstaði. Þar yrði til vísir að nýjum miðbæ fyrir allan þennan íjölda - sem yrði enn til að draga lífið úr gamla miðbænum. Engin ástæða er til að ætla að verslunar- miðstöðin verði minni í sniðum en Smáralind. í þessari framtíðarsýn - sem er fullkomlega raunsæ - er ekkert sem bendir til þess að flugvöllurinn fari. Hann er þvert á móti styrktur í sessi. Það er svo sem ósköp vinalegt að sjá flugvélamar taka á loft og lenda í vetrarhúminu, en afleiðingin er sú að hér verður útkjálki með alþingis- húsi, dómkirkju, spítala, flugstöð og drukknu fólki um helgar. Sumardvalarstaður fyrir túrista. íbúarnir sjálfir verða mestanpart annars staðar. Reykjavík líkist verstu bíla- borgunum í Ameríku Á meðan eykst bílaumferðin um borgina, þvert ofan í markmiðin sem voru sett í svokallaðri Staðar- dagskrá 21. Henni var mikið flaggað af sveitarstjórnarmönnum um tíma - átti að vera eins konar stefnuskrá fyrir umhverfisvæna og vel skipu- lagða borg. Þar voru fögur fyrirheit um minni akstur og bætta nýtingu lands. Veruleikinn verður líklega þveröfugur. Bílaumferðin eykst, byggðin verður áfram strjál og miklu landi er sólundað. Innan tíðar gæt- um við átt á hættu að almennilegt byggingarland verði uppurið á svæðinu - það er nefnilega ekki ótakmarkað lflct og margir virðast halda. Vegna vinds er Kjalamesið nánast óbyggilegt. Það vorar seint uppi í Heiðmörk. Nú þegar er Reykjavík farin að líkjast verstu bíla- borguntun í Ameríku - enginn kemst leiðar sinnar nema akandi. Gangandi fólk er einhvers konar frík. Himinn og haf milli orða og efnda Það eru himinn og haf milli orða og efnda í skipulagi Reykjavíkur. Borgarstjórnin kemst aldrei hraðar en sá tregasti í samstarfinu leyfir og því er látið reka á reiðanum í svo mikilvægum málum. Þrýstingur frá flokksforingjum og landsbyggðar- pólitíkusum er vísast mikill. Meiri- hluti og minnihluti eru nokkurn veginn á sama róli - maður sér eig- inlega engan mtrn. Það er spuming hvort borgin þolir yfirleitt annað tímabil af þessu. Verður þá ekki orð- ið um seinan að snúa þróuninni við? Maður hlýtur að binda ákveðnar vonir við Dag - og líka Steinunni Valdísi þótt henni hafi ekki farnast vel sem formaður skipulagsnefndar- innar. Þau em ungt fólk sem hafa vonandi nútímalega sýn á framtíð- ina. Vont er hins vegar þegar menn em að pukrast með málin, segja eitt og gera svo allt annað. Þá er stutt í að maður fari að hrópa: Svik! Svik! Er kannski engin stefna? Skárra er að nefna hlutina sínum réttu nöfnum, tapa sér ekki í póli- tískum hrossakaupum. Hafi verið gert einhvers konar samkomulag um byggðina í Reykjavík milli borg- arinnar og rfkisins, á að segja frá því. Það var samþykkt á sínum tíma að flugvöllurinn færi - sé önnur staða komin upp á að greina skilmerkilega frá því. Játa hreinskilnislega að það hafi orðið stefnubreyting. Eða er kannski engin stefna?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.