Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2004, Blaðsíða 54
54 LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2004
Fréttir DV
Gangandi fólk er frík
Ungur og efnilegur stjórnmála-
maður, Dagur B. Eggertsson, er
orðinn formaður skipulagsnefndar
Reykjavíkur. Hann tekur við af nýja
^&orgarstjóranum, Steinunni Valdísi
Óskarsdóttur, sem satt að segja átti í
mestu brösum með þetta starf.
Þurfti sífellt að verja skrítnar ákvarð-
anir. Vandinn er sá að það hafa verið
gefin of mörg fyrirheit sem ekki er
staðið við. Það hefur ekki tekist að
snúa við hroðalega vondri þróun í
byggð Reykjavíkur. Til þess hefur
vantað alvöru pólitíska forystu og
vilja. Borgarstjórnin er of þróttlítil -
málamiðlanirnar of útvatnaðar. AUt
bendir því miður til þess að öfug-
þróunin haldi áfram, líkt og rakið
verður í þessari grein.
Á sama tíma gefur
borgin ríkinu stórt
land undir spítala-
hverfi í grennd við
gamla Landspítalann.
Þetta hefur ekki farið
sérlega hátt, en gjöf-
ina má meta á marga
milljarða.
Eina leiðin að taka Vatnsmýr-
ina undir byggð
Flestir sem taka til máls um
^kipulag Reykjavíkur láta eins og
þeir vilji efla byggðina í miðbænum
og þar í grennd, draga úr bílaum-
ferð, þétta borgina. í raun virðist þó
vera stefnt í alveg þveröfuga átt.
Verkin tala. Borgin færist óðfluga
upp norður með sundunum og
lengra upp í hæðirnar hér í kring.
Enn sem komið er hefur þétting
byggðarinnar verið óveruleg. Það er
eins og dropi í hafið að fylla upp í
einhver smágöt í borgarmyndinni
fyrir vestan Kringlumýri. Sé mönn-
um einhver alvara með þéttingu
verður að taka Vatnsmýrina undir
4yggð - það er eina leiðin.
Þaðan mætti hugsast að byggðin
færi að ná út á Álftanes - með brú
yfir Skerjafjörðinn.
Löngu tímabært að flugvöll-
urinn hverfi
Þótt samþykkt hafi vérið í furðu-
legri atkvæðagreiðslu fyrir nokkrum
árum að flugvöllurinn skuli vera á
bak og burt eftir tólf ár, hangir fram-
tíð hans í lausu lofti. Enn er ekki
búið að samþykkja skipulag þar sem
gert er ráð fýrir hvarfi flugvallarins,
þótt það sé löngu tímabært - ætti í
’sllra síðasta lagi að vera tilbúið fyrir
næstu kosningar.
Umhverflsráðherra, sem þá var
Siv Friðleifsdóttir, neitaði að stað-
festa þann hluta aðalskipulagsins
þar sem var búið að teikna brott-
hvarf flugvallarins. Bak við tjöldin
Egill Helgason
" lýsir eftir stefnu I Wmtaim- WF
miðborgarmálum. sfc. iL,
Laugardagskj allari
hömuðust landsbyggðarþingmenn
og ráðamenn í samgöngumálum.
Það var sett einhvers konar sátta-
nefnd í málið - hún gat ekki komist
að neinni niðurstöðu. Að endingu
ræddi ráðherrann um að setja lög til
að koma í veg fyrir að flugvöllurinn
færi.
... minnir á borgir í Austur-
Þýskalandi
í staðinn eru teikn um að farið
hafi í gang kapall þar sem stefnt er
að því að styrkja flugvöllinn í sessi -
tryggja að hann verði þarna til eilífð-
arnóns. Það er verið að taka smá-
bletti kringum Vatnsmýrina og
skipuleggja þá alveg úr samhengi
við alla hefldarhugsun - lflct og
menn vilji gleyma því að hugmynd-
in var að setja svæðið í alþjóðlega
skipulagssamkeppni.
Upp við Valsvöll er verið að setja
saman hverfl sem minnir á borgir í
Austur-Þýskalandi. Það eru flóknir
peningahagsmunir sem ráða því að
nýtingin á svæðinu er svona léleg -
maður spyr lfka um möguleika verk-
taka til að þrýsta á ráðamenn í borg-
inni. Þetta gengur þvert á öll yfirlýst
markmið um skipulag þessa borgar-
hluta.
Ný Hringbraut knúin í gegn
með hroka
Ekki hefur tekist að færa al-
mennileg rök fyrir því að leggja nýja
fjölakgreina Hringbraut. Málið hef-
ur verið knúið í gegn með miklum
valdhroka, í trássi við skynsamleg
andmæli - ekki síst vegna þess að
ríkið var loks tilbúið að borga. Báðar
þessar framkvæmdir eru í þeim
anda að að maður hlýtur að ætla að
flugvöllurinn sé ekki á leiðinni burt -
og að borgarstjórnin viti það fullvel.
Á sama tíma gefur borgin ríkinu
stórt land undir spítalahverfl í
grennd við gamla Landspítalann.
Þetta hefur ekki farið sérlega hátt, en
gjöfina má meta á marga milljarða.
Kannski hátt í flmm. Engin greiðsla
kemur fyrir - sem hlýtur að teljast
skrítið í ljósi þess að ríki og sveitar-
félög eru vön að þrátta um hverja
krónu sem ber í milli.
Ríkisvaldið loks tilbúið
Á móti bendir allt til þess að ríkis-
valdið sé loks tilbúið að leggja fé í
framkvæmdir við Sundabraut. Þar
Það er himinn og haf
milli orða og efnda í
skipulagi Reykjavík-
ur. Borgarstjórnin
kemst aldrei hraðar
en sá tregasti í sam-
starfinu leyfir og því
er látið reka á reið-
anum í svo mikilvæg-
um málum.
verður farið að vilja samgönguráð-
herra, farin innri leiðin svokallaða,
inn fyrir Sundahöfn. Sundabrautin
er forsenda þess að byggðin geti
haldið áfram að færast í norður.
Meðan smávægilega hefur verið fyllt
upp í borgarmyndina vestan Elliða-
HAMBORGARI, FRANSKAR, GOS
Uúffengir hamborgarar í hádeginu
sAUAí
Langholtsvegi 89 • 104 Reykjavík
Sími 588 7999 • texmex@texmex.is
áa, hafa heilu hverfin verið að rísa í
Grafarvogi, Grafarholti og Norð-
lingaholti. Næst er Úlfarsfell, Geld-
inganes, Blikastaðaland og Gufunes.
Fyrir eru á svæðinu 40 þúsund
manns - Mosfellsbær og Árbær þá
taldir með. Samkvæmt skipulagi er
gert ráð fyrir að önnur 40 þúsund
geti bæst við á næstu áratugum.
Samanlagt 80 þúsund.
Sumardvalarstaður fyrir
túrista
Þannig erum við að horfa á
byggðir með tugþúsundum manna
norður með ströndinni - á sama
tíma og íbúum í gamla bænum
fjölgar kannski örlítið. Hápunktur-
inn í þessari þróun yrði líklega bygg-
ing verslunarkringlu í grennd við
Korpúlfsstaði. Þar yrði til vísir að
nýjum miðbæ fyrir allan þennan
íjölda - sem yrði enn til að draga
lífið úr gamla miðbænum. Engin
ástæða er til að ætla að verslunar-
miðstöðin verði minni í sniðum en
Smáralind.
í þessari framtíðarsýn - sem er
fullkomlega raunsæ - er ekkert sem
bendir til þess að flugvöllurinn fari.
Hann er þvert á móti styrktur í sessi.
Það er svo sem ósköp vinalegt að sjá
flugvélamar taka á loft og lenda í
vetrarhúminu, en afleiðingin er sú
að hér verður útkjálki með alþingis-
húsi, dómkirkju, spítala, flugstöð og
drukknu fólki um helgar.
Sumardvalarstaður fyrir túrista.
íbúarnir sjálfir verða mestanpart
annars staðar.
Reykjavík líkist verstu bíla-
borgunum í Ameríku
Á meðan eykst bílaumferðin um
borgina, þvert ofan í markmiðin
sem voru sett í svokallaðri Staðar-
dagskrá 21. Henni var mikið flaggað
af sveitarstjórnarmönnum um tíma
- átti að vera eins konar stefnuskrá
fyrir umhverfisvæna og vel skipu-
lagða borg. Þar voru fögur fyrirheit
um minni akstur og bætta nýtingu
lands. Veruleikinn verður líklega
þveröfugur. Bílaumferðin eykst,
byggðin verður áfram strjál og miklu
landi er sólundað. Innan tíðar gæt-
um við átt á hættu að almennilegt
byggingarland verði uppurið á
svæðinu - það er nefnilega ekki
ótakmarkað lflct og margir virðast
halda. Vegna vinds er Kjalamesið
nánast óbyggilegt. Það vorar seint
uppi í Heiðmörk. Nú þegar er
Reykjavík farin að líkjast verstu bíla-
borguntun í Ameríku - enginn
kemst leiðar sinnar nema akandi.
Gangandi fólk er einhvers konar frík.
Himinn og haf milli orða og
efnda
Það eru himinn og haf milli orða
og efnda í skipulagi Reykjavíkur.
Borgarstjórnin kemst aldrei hraðar
en sá tregasti í samstarfinu leyfir og
því er látið reka á reiðanum í svo
mikilvægum málum. Þrýstingur frá
flokksforingjum og landsbyggðar-
pólitíkusum er vísast mikill. Meiri-
hluti og minnihluti eru nokkurn
veginn á sama róli - maður sér eig-
inlega engan mtrn. Það er spuming
hvort borgin þolir yfirleitt annað
tímabil af þessu. Verður þá ekki orð-
ið um seinan að snúa þróuninni við?
Maður hlýtur að binda ákveðnar
vonir við Dag - og líka Steinunni
Valdísi þótt henni hafi ekki farnast
vel sem formaður skipulagsnefndar-
innar. Þau em ungt fólk sem hafa
vonandi nútímalega sýn á framtíð-
ina. Vont er hins vegar þegar menn
em að pukrast með málin, segja eitt
og gera svo allt annað. Þá er stutt í
að maður fari að hrópa: Svik! Svik!
Er kannski engin stefna?
Skárra er að nefna hlutina sínum
réttu nöfnum, tapa sér ekki í póli-
tískum hrossakaupum. Hafi verið
gert einhvers konar samkomulag
um byggðina í Reykjavík milli borg-
arinnar og rfkisins, á að segja frá því.
Það var samþykkt á sínum tíma að
flugvöllurinn færi - sé önnur staða
komin upp á að greina skilmerkilega
frá því. Játa hreinskilnislega að það
hafi orðið stefnubreyting. Eða er
kannski engin stefna?