Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2004, Side 33
32 LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2004
LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2004 33
Helgarblað W
DV Helgarblað
Islendingar eru jafnan uppteknir
af frægðinni og stundum er sagt
að hver sem er geti orðið frægur
hér á landi. Þó að sannleikskorn
kunni að leynast í því er það
aftur á móti staðreynd að það
getur ekki hver sem er orðið
FRÆGUR, hvað þá náð langt í
útlöndum. En hver er mæli-
kvarðinn á frægðina? Er hægt
að finna einhvern óháðan sem
getur ákvarðað hver er frægasti
íslendingurinn? DV leitaði til
saklausasta og ómengaðasta
hóps álitsgjafa landsins - grunn-
skólakrakka. Fjórir mismunandi
bekkir í íjórum skólum á höfuð-
borgarsvæðinu fengu þetta
verðuga verkefni i vikunni og
hér eru niðurstöðurnar.
Birgitta Haukdal
Frægð Birgittu var hreint ótrúleg á íslenskan mælikvarða fyrir um
það bil ári. Hún var í vinsælustu hljómsveit landsins, lék í vinsælasta
söngleiknum og kom fram í fjölda auglýsinga svo fátt eittsé nefnt.
Síðastu mánuði hefur aðeins minna farið fyrir stúlkunni en það ætti
þó að breytast fyrir jólin þegar hún gefur út barnaplötu og dúkka
hennar ferlsölu. Þarmeð herjar Birgitta beint inn á helsta markað
sinn sem eru ungar stúlkur. Það er líka ekkert skrýtið að ungar stúlk-
ur elski hana og dái; Birgitta er eitthvaö svo lítil, sæt og saklaus. Svo
ekki sé minnst á hvað hún er nú indæl. í viðtölum hefur Birgitta
jafnan gert litið úr ágangi aödáenda sinna en vitaö er að hann er
þónokkur. Þannig skiptir Birgitta jafnan reglulega um slmanúmer
og lögheimili hennar er hjá foreldrunum á Húsavík svo eitthvert
hlýtur ónæðið að vera. Birgitta er ekki nema 25 ára og mun efað
líkum lætur halda stórstjörnustatus sínum um mörg ókomin ár.
Eiður Smári Guðjohnsen
Besti knattspyrnumaður okkar Islendinga fyrr og síðar trónir örugg-
lega efst á listanum yfir frægustu Islendingana! dag. Okkar maður
hefur náð ótrúlega langt í íþrótt sinni og gæti enn náð lengra.
Fregnir herma að Eiður sé meö um 30 milljónir króna ámánuöií
laun og þaö eitt sýnir hversu mikils hann er metinn hjá Chelsea.
Demantseyrnalokkurinn sem hann skartar á myndinni ergott
dæmi um velmegun þá sem hann nýtur. Ekki þarfað fjölyrða um að
hann er mörgum klössum fyrir ofan aðra landsliðsmenn Islands í
getu. Þegar Eiður fær frí frá knattspyrnunni nýtur hann Ijúfa llfsins í
London eða skýst I heimsókn heim til tslands. Þá er ekki óalgengt að
hann eyði tíma með besta vini sínum, Sveppa á Popptivi. ístuttu
máli sagt er strákurinn úr Breiðholtinu stórstjarna á sínu sviöi og
það ferekki framhjá ungviöinu á Islandi.
Björk Guðmundsdóttir
Það eru komin tiu ár frá því Björk okkar Guðmundsdóttir hófsóló-
feril sinn eftir aö hafa gert þaö gott með Sykurmolunum. Á þessum
tíu árum hefur Björk sent frá sér fjölda vinsælla hljómplatna sem
hafa náö að heilla heimsbyggðina alla, þó að Björk hafí markvisst
unnið að þvi að vera eins tilraunakennd og hún framast geturí tón-
list sinni. Björk hefur fengið að kynnast verri hliðum frægöarinnar
því nokkrir geðsjúklingar hafa setið um hana oghúná stundum
óttast um lífsitt. Söngkonan fræga reynirhvað hún getur að forðast
sviðsljósið, alla vega úti í löndum; Reykvikingar geta enn hitt á
hana ÍVesturbæjarlauginni eða Melabúðinni.
Ólafur Ragnar Grímsson
Forseti vorbreytti ímynd embættisins nokkuð þegarhann varð for-
seti árið 1996. Við fráfall fyrri eiginkonu hans var fjölmiðlaumfjöllun
önnur og meiri en áður hafði þekkstog í kjölfarið tóku dætur hans
við auknu hlutverki við embættisstörf hans. Varjafnan talað um
„konungsfjölskylduna“ á Bessastöðum. Eftir að Dorrit Moussaieff
kom inn í lífforsetans hafa vinsældir hans aukist mikið, ekki það að
forsetinn hafi verið óvinsæll. Glæsileiki Dorritar hefur einfaldlega
lyft embættinu á nýttplan og eftirmenn Ólafs munu eiga ierfiðleik-
um meö að fylgja honum eftir.
Sveppi á Popptíví
Sveppi hlýtureiginlega að vera óánægður með það að
rétt sleppa inn á topp tíu. Nóg hefur verið rætt og ritað
um það hvað allir krakkar glápi á 70 mínútur og þeir
félagar hljóta að vera búnir að fara í næstum alla skóla
og félagsmiðstöðvar og bjóða krökkunum að smakka
ógeðisdrykki. Með þessu virðist frægð þeirra og vinsældir
eitthvað ofmetnar. Eða kannski er þaö bara vitleysa því
enn er erfítt fyrir Sveppa og félaga að sinna vinnu sinni án
þessa aö krakkaskari hópist að. Hann og hans félagar
hafa þó aldrei kvartað og njóta frægðarinnar greinilega.
Magnús Scheving
Bæjarstjórinn I Latabæ haföi fyrir löngu skapað sér nafn
sem íþróttafrömuður og altmúllgmaður. Uppgötvun hans
á fyrirbærinu Latabæ hefur hins vegar breytt lífí hans.
Fullyröa máað Magnús þurfi ekki að hafa áhyggjur af
peningum í framtlðinni; slíkar eru vinsældir Latabæjar.
Þessa dagana erhann að leggja undirsig Bandaríkin og
húsmæður þar í landi halda vart vatniyfir þvíhversu
glæsilegur íþróttaálfurinn er. Þetta getur varla verið betra
fyrirMagga.
Krummi í Mínus
Rokkið lifir, það er augljóst á vinsældum Krumma. Tónlist
Mínuss verður seint talin mikið vinsætdapopp, þó að síð-
asta plata hafí höfðað til margra, og sýnir það vel hversu
flottur gæi Krummi þykir. Það gæti líka haft nokkuð með
þetta að gera að Mínus gerir alltaf vel viö ungviðið og
heldur tónleika sem allir komast inn á. Krummi nær þó
ekki þeim vinsældum sem Bó faðir hans hafði á svipuðum
aldri. Kannski eru tattúin ekki eins flott og brotin tönn?
Quarashi
Strákarnir í Quarashi eru greinilega vinsælasta hljóm-
sveitin hjá krökkunum ídag. Þeir hafa enda spilað vel úr
sínum málum - sent frá sér hvern smellinn á fætur öðrum
og láta flott og skemmtileg myndbönd fylgja með, nokk-
uð sem myndbandakynslóðin kann vel að meta.
Jóhannes í Bónus
Vægast sagt undarlegasta nafnið á þessum lista, en
krakkarnir fylgjast augljóslega með fréttum. Jóhannes
Jónsson í Bónus hefur lítið látið fyrir sér fara síðustu árin
en gleymist greinilega ekki.
Davíð Oddsson
Efþessi könnun hefði verið gerð fyrirhálfu ári hefði Davíð
að líkindum verið ofar á listanum. Hann má líklega bara
vera ánægður með þessa niðurstöðu. Sérstaklega í Ijósi
þess að Halldór Ásgrimsson varekki nefndureinu sinni!
9
Geiri á Maxim's
Auðunn Blöndal
Jón Ásgeir Jóhannesson
Ingvar E. Sigurðsson