Barnadagurinn - 25.04.1935, Blaðsíða 2
2
BARNADAGURINN 1935
/
Katipfélag Reyfeíavíktir,
Bankastræti 2. — Sími 1245.
Hefir fjölbreytt úrval af matvörum, nýlendu-
vörum, hreinlætisvörum, snyrtivörum, tóbaks-
vörum og sælgæti. — Einn.ig all-mikið úrval af
vasahnífum, eldhúshnífum, rakspeglum, ilm-
vatnssprautum o. fl.
Kaupfélagsbrauðgerðin, —ó Simi 4562,
selur allskonar kökur og brauSvörur meÖ lœgsta verSi
bnjarin*.
Góðar vörur. Sanngjarnt verð.
KAUPFÉLAG REYKJAVÍKUR.
Verið íslendingar!
Kaupið og notið
„álafoss-föt
fis
r
AlafOSS, Þingholtsstræti 2.
Kaupið
timbur, glugga, hurðir og listd
hjá stærstu timburvcrsl-
un og trésmiðju ldndsins.
livergi bctrq^ timburverð.
Kaupið gott efni og góða vinnu.
Þegar húsin fara að eldast, mun
koma í ljós, að 'pað margborgar sig-
Timburverslunin
VÖLUNDUR Li F.
Reykjavík- Sími 1431, Símnefni: Völundur.
r
Avarp.
Dagur baraanna er senn runninn upp. Dagurinn, sem
börnin hjer í Reykjavík hlakka til eins og jólanna. Blað
dagsins, „Barnadagurinn", kemur nú út í annað sinn og
minnir á minnstu bræðurna, börnin. Beinn og óbeinn bagn-
aður af útgáfu blaðsins varð svo mikill i fyrra, að stjórh
Barnavinafélagsins þótti sjálfsagt að láta það halda áfram
að koma út. Þess ber að geta hér með þakklæti, hve aug-
lýsendur hafa verið fúsir að styrkja blaðið. Sumir bafa
jafnvel boðið auglýsingar. Og er þessa hér getið sem góðs
fordæmis, er léttir mjög starf þess, sem sér um útgáfu
blaðsins. Það skal viðurkennt, að auglýsingarnar eru ó-
beinn styrkur til blaðsins, enda þessi leið valin til að gefa
verzlunum og verzlunarfyrirtækjum kost á að leggja lið
góðum málefnum, æskulýð borgarinnar til heilla. En sá
greiði er goldinn með meiri útbreiðslu auglýsinga en hér
tíðkast, með því að blaðið kemur út í 9000 eint., og verður
séð um, að það komist til almennings.
Ekkert mál, sem börn varðar, er Barnavinafélaginu
Sumargjöf óviðkomandi. ,,Barnadagurinn“ hefir leitað til
ýmsra þekktra skólamanna og hafa þeir sýnt þá vinsemd,
að skrifa í blaðið greinar um ýms aðkallandi vandamál
uppeldisins.
Dagskrá hátíðahaldanna er sem sjá má fjölbreytt að
vanda. Hefir undirbúningur hennar reynst forstöðunefnd
barnadagsins erflðari nú en áður, sökum veikinda í bænum.
En vegna vaxandi skilnings á starfsemi fél. og góðs.vilia
þeirra, sem skemmt geta, hefir allt farið vel og betur en
áhorfðist. Skrúðganga barnanna hefir vakið mikla eftir-
tekt undanfarin ár og mun ekki síður gerá það nú. Inni-
skemmtanirnar fara fram í 4 húsum, og tvær skemmtanir
í tveimur þeirra. Skemmtiatriði þessara hátíðahalda eru í
30 liðum alls, og einstaklingarnir sem skemmta eru allt
frá þeim óþekkta til þess víðfræga. en yngsti skemmtand-
inn er aðeins 3 ára. í fyrra fylltust öll hús á svipstundu.
Margir urðu óánægðir frá að hverfa. Þeim má gefa þetta
ráð : AthugíS vel skemmt:skrána, ákveðiS ykkur fl jótt, —
tryggiS ykkur aSgöngumiSa í tíma! Barnadagurinn er aS-
eins e’nu sinni á ári.
Þegar rætt er um starfsemi „Sumargjafar" og
hátíðahöld barnadagsins, kemur eitt orð eins og kökkur
upp í hálsinn á einstaka manni: „Góðgerðastarfsemi". Og
þetta orð hefir þá sérstakan hljóm og ákveðna merkingu.
Þessu skal nú hér svarað: Það er mankmið „Sumargjafar"
að hefja og styðja góðgerðastarfsemi í þess orðs víðustu
og beztu merkingu, — þá góðgerðastarfsemi. sem öllum
mönnum þykir sér skylt að vinna dags daglega, með hægri
og vinstri hendi, fyrir yngri sem eldri, — nema þeim, sem
enn spyrja: Á ég að gæta bróðnr míns? Það eru, sem kunn-
ugt er, einkum þeir vngri, sem „Sumargjöfin" ber fyrir
briósti. I daglegu vafstri og hringiðu hraðans vilja oft þeir
minnstu gleymast. Virðist kenna nokkuð afls og hæðar-
munar í þeim viðskiptum, svo að land er telrið nesnámi, og
leikvöllum gleymt. Barnavinaf-élagið Sumargjöf velur einn
dag á ári til þess að minna á börnin og vekja stemningu
Framh. á 3. síðut