Barnadagurinn - 25.04.1935, Blaðsíða 9
BARNADAGURINN 1935
9
Sttmardagurínn fyrstí.
Sumardagurinn fyrsti er kominn og flytur frið inn yfir
ólgu mannlífsins. Grænar grasnálar stinga upp kollinum,
sjórinn er spegilsléttur, það er logn í lofti og við sjáum
í anda heiðblámann á bak við Ijósgráan, hlýlegan vorhím-
ininn. Tíguleg kyrrð náttúrunnar flytur frið yfir þennan
dag, dag barnanna og alls þess, sem er gróandi og uppvax-
andi í íslensku þjóðlífi.
Veturinn er liðinn hjá og sumarið komið, bjargræðistími
landsmanna og þroskatími barna og unglinga. Veturinn er
sterkur, en fábreyttur; litir hans eru blátt, hvítt og svart.
Hans mesta prýði er alstirndur stjörnuhiminn, sem vekur
lotningu fyrir jeyndardómum náttúrunnar.
En sumarið flytur tdbreytinguna, samspil hinna sterku •
lita, fjör og líf. Þá er líf og starf hjá þeim fullorðnu, ungl-
ingarnir hfa á takmörkum vinnunnar og leiksins, börnin
við fjölbreyttan leik, sem endurspeglar framtíðarstörf
þeirra. Ketlmgurinn leikur sér að hnykli, það er músin
hans; en barnið að legg og skel, sand og mold, það eru hús-
dýr þeirra og byggingar. Börnin klifra í klettum, vaða í
sjónum, byggja úr sandi, safna kufungum og skeljum. Það
er gott uppeldi, sem gróandi jörð og sendin sjávarströnd
veitir. Lóan kvakar og spóinn vellir, lundinn grefur sér hol-
ur og æður og önd reita sig fyrjr egg og unga. Kýrnar sletta
upp halanum og kálfarnir kasta sér um völlinn. Það er gott
uppeldi að lifa við gróanda vorsins og hjálpa til við upp-
skeru sumarsins. Það er tilætlun forsjónarinnar, að börnin
alist upp við brjóst náttúrunnar.
En hinu náttúrlega uppeldi er hætta búin í þorpum og
bæjum. Ef ráð er ekki tekið í tíma, þá eru bæirnir áður en
varir orðnir forugar götur, sólarlaus þorp og þéttbýlar
Bjarnaborgir, þar sem blessun sólskinsins og heilnæmi lofts-
ins ekki nær lengur til allra mannanna barna. Bæirnir mega
ekki svifta fólkið hinum nauðsynlegustu lífsgæðum. Það er
lífsskilyrði, að þeir rými ekki burt náttúrunni, taki ekki sum-
arið af hinni upprennandi kynslóð. Uppeldið heimtar það.
Sálin þarf meira svigrúm en líkaminn. Gróandi þjóðlífsins
getur ekki verið án sumarsins. Fólkið þarf að snerta jörðina
eins og risinn forðum daga, og nærast af hennar mætti.
Uppeldi barna og unglinga er engin krossgáta eða flækju-
speki. Upphaf uppeldisfræðinnar er það, að barnið eigi að
lifa sínu eigin lífi við starf og leik eftir því, sem eðli þess
og upplag segir til. Virðingin fyrir barnseðlinu hefir aldrei
birst í fegurri mynd en þegar Jesú tók barnið og setti það
meðal hinna fullorðnu og sagði, að barnið stæði nær ríki
Guðs en þeir. Barnshugurinn, opinn og hreinn, eins og hann
skín út úr djúpum, spyrjandi augum barnsins, er hið við-
kvæmasta og sterkasta afl á jarðríki. Hann getur mildað
hinn djarfasta illræðismann og mótast þó af hverjum áhrif-
um, sem að utan koma. Barnshugurinn er sú bók, sem saga
framtíðarinnar er rituð í. Foreldrar og kennarar hafa þar
mesta ábyrgð, og ábyrgðin er ekki minnst fólgin í því, að sjá
um, að sú saga sé ekki eingöngu rituð af eldri kynslóðinni
sjálfri. Skuggi fortíðarinnar má ekki kæfa hinn upprenn-
andi gróður. Barninu er ætlað að vaxa að vitsmunum og
þekkingu, framtaki og þrótti. En það verður ekki best með
því, að láta barnið vaxa innan í herklæðum fortíðarinnar.
Framhald á bls. 10.
gerir sér far um að haga ferðum sínum
þannig, að þær komi að sem mestum og
bestum notum fyrir landsmenn. — Spyrj-
ið því ávallt fyrst um ferðir ,,Fossanna“
og athugið hvort þær eru ekki hentugustu
ferðirnar til þess að flytja vörur yðar eða
ferðast með, hvaðan sem er og hvert sem
er
0
n
s
n
s
n
g
n
i
n
n
i
n
99
StlNNA
éé
er mest notuð á lampa og eldavélar,
hún er hrein og tær,
veitir bezta birtu og mestan hita.
Olíuverzltm Islands hf.
Simar 1690 og 2690.
0
ð
0
S
0
»
0
$
0
0
0
a
0
s
Happdrættí
Háskóla Islands
Endumýjun til 3. fl. er hafin.
Endumýjunarverð: 1.50 V4 miði.
Söluverð nýrra mioa: 4.50 V4 miði.
Dregið verður í 3. fl. 10. maí.
250 vinningar. — 48 800 krónur.