Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2005, Qupperneq 3
DV Fyrst og fremst
MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2004 3
Graíarvogsbúar skemmtu sér é brennu
Spurning dagsins
Hvað er þér eftirminnilegast á
nýliðnu ári?
Ég keypti mér íbúð
„Ég keypti mér íbúö á árinu og er
afar ánægð með hana. Það er mik-
ill munur að vera kominn í eigið
húsnæði, það er mjög fullorðins
Kamilla Ingibergsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Kópavogsdeildar
Rauða krossins.
„Það er eftir-
minnilegast að
ég varð barns-
hafandi á
árinu. Ég á von
á mér í apnV'
Hulda Vilhjálmsdóttir
listakona.
„Tiivera barns-
ins í maganum
á konunni
minni, litli
laumufarþeg-
inn. Hvernig
gat þetta
gerst?“
Valgarður Bragason
verkamaður.
„Mér fæddist
sonur árinu,
þann 2. nóv-
ember. Það er
eftirminni-
legt."
Helgi Þórar-
insson,
yfirmaður á Grænum kosti.
„Hvað ég spil-
aði mikinn fót-
boita á árinu.
Ég spila með
KR og við unn-
um 3-0 á jóla-
mótinu."
Vilhjálmur
Þórhallsson, 10 ára.
Skyndimyndin
Börn og fullorðnir
skemmtu sér hið besta við
áramótabrennuna í Grafar-
vogi í fyrrakvöld. Safnað hafði verið í myndarlegan báiköst
skammt frá Gufunesbænum og var kveikt í kestínum um hálf-
níuleytið að viðstöddu miklu fjölmenni. Voru viðstaddir á einu
máli um að vel hefði tekist til og litlu skipti að brennan væri
haldin að kvöldi nýársdags í stað gamlárskvölds.
Leyfi fyrir ellefu brennum á höfuðborgarsvæðinu voru
afturkölluð á gamlársdag vegna slæmrar veðurspár. Hittu
veðurfræðingar naglann á höfuðið í þetta skiptið því veður
var afleitt fram eftir kvöldi og rættíst ekki úr fyrr en
skömmu fyrir miðnætti. Sama sagan var víða um land og
var kveikt í áramótabrennum víða um land í gærkvöld og
fyrrakvöld.
Áramótagleðin fór annars vel fram um allt land að sögn
lögreglu. Árcunótabrennur fóru alls staðar vel ffarn og var
aðsókn með besta móti að sögn lögreglu.
Margt merkilegt gerðist á liðnu ári á opinberum vettvangi, en
oftast stendur persónuleg reynsla fólks upp úr.
Hættulegustu
lönd heims
Ekki er enn búið að taka saman tölur um mannfall úr röðum blaðamanna
á nýbðnu ári. En áratuginn á undan - frá 1994-2003 - voru alls 346 blaða-
menn drepnir við störf sín um víða veröld.
Flestir féUu árið 1994 eða 66 en ári seinna
51. Bæði 2001 og 2003 voru 37 blaðamenn
Blaðamennska
drepnir og árið 1999 voru þeir 36.
1. Alsír 51
2. Kólumbía 31
3. Rússland 30
4. Rúanda 16
5.-6. Indland 15
5.-6. Síerra Leóne 15
7.-8. irak 14
7.-8. Filippseyjar 14
9. Brasilía 12
10. Afganistan 11
ÞAÐ ER STAÐREYND...
... að skáldsagan
Catch-22 eftir Joseph
Heller (en titill henn-
ar er nú alkunnur
frasi yfir það þegar
menn standa frammi
fyrir tveimur ómögu-
legum kostum) átti
upphaflega að heita
Catch-18.
ÞAU ERU FEÐGIN
Leikarinn & leikkonan
Hinn landsþekkti leikari Arnar Jónsson er faöir leikkonunnar
Sólvegar Arnardóttur sem jafnframt er dóttir ieikstjórans Þór-
hildar Þorleifsdóttur. Arnar útskrifaðist úr Leiklistarskóla
Þjóðieikhússins árið 1964 og hefur umlangt skeið verið einn
afþekktustu ieikurum landsins og leikið í fjölda eftirminni-
iegra kvikmynda og ieiksýninga. Sólveig lærði hins vegar leik-
list við Hochschuie fúr Schauspieikunst Berlin„£rnst Busch“
og útskrifaöist þaðan árið 1999. Sóiveig var orðin þekkt fyrir
leik sinnhérá landi áður en hún hélt til náms en síðan hún
kom heim hefur frægðarsól hennar risið enn hærra.
Geymslu-
h og dekkjahillur
www.isold.is
ISOld ehf.
Nethyl 3-3a -110 Reykjavík
Sími 5353600- Fax 5673609
í bílskúrinn, geymsluna,
heimilið og fyrirtækið
Þessar hillur geta allir sett
saman. Skrúfufrítt og
smellt saman.
kr.7.700.-
viðbótareining kr. 5.586-