Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2005, Page 8
SÆTI FLYTJANDI LAG
1. J.Z. & Unkln Park Numb/Encore
2. Snoop Dogg/Pharrell Drop It Uke It’s Hot
3. 50 cent Dlsco Inferno
4. Blue Get Down On It
5. Eminem Llke Toy Sollders
6. Gavln Degraw 1 Don’t Wanna Be
7. Maroon 5 Sunday Mornlng
8. The Streets Bllnded By The Ughts
9. Quarashl Pro
10. Fabalous Breathe
31. Nelly Over and Over
12. Jet Look What You Have Done
13. Keane Thls Is The Last Tlme
14. Á móti sól Traustur vinur
15. Ashlee Slmpson Shadow
16. Natasha Bedingfleld Unwrltten
17. Justln Tlmberlake Good Foot
18. Nylon Síöasta sumar
19. Green Day Boulevard Of Broken Dreams
20. Sálln hans Jóns míns Timlnn og vlð
21. Kelly Clarkson Slnce You Been Gone
22. Robble Wllliams Misunderstood
23. The Game How We Do
24. Brltney Spears Do Somethln
25. í svörtum fötum Meðan ég sef
26. Igore R&B
27. Marlo Let Me Love You
28. Armand Van Helden My My My
29. Destlny's Child Loose My Breath
30. Kalll Bjarni Sátt
ra loksins
Þaö er alltaf gaman að því þegar íslensku hljómsveitirnar reyna fyr-
ir sér í löndunum í kring. Ekkert er eðlilegra, það verður að stækka
hljóðheiminn. Jan Mayen er á leiðinni á By:Larm-hátíðina í Noregi
en fer'síðan í stuttan túr á Bretlandi, þar sem sveitin hittir fyrir
Skáta og Reykjavík! á alíslensku London-kvöldi.
Þeir ætla aö vísu aö sigra Bret-
land í leiðinni en Norðmenn bíöa
spenntir eftir Jan Mayen.
Frá stofnun hljómsveitarinnar
Jan Mayen hefur það legið í
loftinu að Noregsmeik væri óhjá-
kvæmilegt. Ef Norðmenn ættu
hijómsveitina Hríséy væri lítið
annað mögulegt en að hún kæmi
hingað til að slá í gegn.
Risahátíðin By:Larm
Þetta rætist loksins eftir rúma
viku þegar liðsmenn Jan Mayen
halda til Stavangurs að spila á
By:Larm-tónlistarhátíðinni.
Hljómsveitin Tenderfoot verður
samferða henni þangað. By:Larm
er ekkert smá dæmi. Aðstandend-
ur segja hátíðina stærsta sinnar
tegundar í Skandinavíu. Hún fer
fram dagana 10. til 12. febrúar og
þar koma fram tæplega tvö hund-
ruð hijómsveitir, aðallega norskar.
Þar eiga hljómsveitir á borð við
Röyksopp og Kings of Convenience
rætur sínar.
Eftir hátíðina gerir Jan Mayen
eins og sönnum Norðmönnum
sæmir, tekur fjarðaferjuna yfir til
Bergen og Osló til að halda tón-
leika.
Skátar á sömu buxunum
Með Noreg í vasanum verður
síðan haldið yfir til Bretlands og
tekin gigg úti um allt land. Sú töm
endar í London en útsendarar vef-
tónlistarsetursins Drowned In
Sound og tónlistarstöðvarinnar
Xfm hrifust nógu mikið af Jan
Mayen, ísfirðingunum í Reykja-
vík! og djókurunum í Skátum á
Airwaves í haust til að vilja fá þá
yfir.
Skátarnir verða þá væntanlega
komnir í góða æfingu. Þeir ætla
nefnilega að gera eins og Jan
Mayen, taka stutta tónleikatörn í
Bretlandi áður en hinir sameigin-
legu tónleikar í London verða
haldnir. Annars blása þeir á morg-
un til útgáfuveislu í Stúdentakjall-
aranum til að fagna sinni fyrstu
löngu ep-plötu, Heimsfriður í
Chile: Hverju má breyta, bæta við
og laga. Hljómsveitin Brite Light
Skellibjöllurnar í Skátum fagna plöt-
unni sinni í Stúdentakjallaranum á
morgun en halda síöan tii Bretlands.
fagnar við sama tækifæri sínum
frumburði, Mary’s theme. Þeir
tónleikar hefiast klukkan 22 og
aðgangseyrir er aðeins 250 kall.
Annars er hægt að fræðast nán-
ar um risahátíð Jan Mayen á
By:Larm.no og velgjöröarmennina
í London á drownedinsound.co.uk.
i *.
* 1
Síöasta mánudag kom í verslanir þriðja plata M83, Before The Dawn Heals
Us. M83 er listamannsnafn Anthonys Gonzales. Hann er franskur, frá Antibes-
eyjum. önnur plata M83, Dead Cities Red Seas & Red Ghosts þótti afbragð og
varö til þess að EMI gerði samning við hann.
Anthony er yfirlýstur Mogwai-aðdáandi, en á meðal annarra áhrifavalda á
tónlist hans má nefna Can, Tangerine Dream, My Bloody Valentine, Pink Floyd
og Squarepusher. Fyrstu tvær plöturnar voru að mestu unnar með aðferðum
raftónlistarinnar, en á nýju plötunni er meira af hefðbundnum hljóðfærum; -
á henni eru gítarar, bassi og trommusett áberandi. Anthony setti saman fiög-
urra manna hljómsveit siðasta haust og fór á tónleikaferð um Bandaríkin og
fékk fínar móttökur.
Tónlist M83 er mjög sérstök og gott dæmi um tónlistarmann sem fer sínar
eigin leiðir. Það hefur ekki farið mikið fyrir honum í fiölmiðlum, en gæði tón-
listarinnar hafa spurst út og hlustendum fer sífellt Qölgandi. Before The Dawn
Heals Us hefur hefur fengiö fina dóma í helstu tónlistarmiðlunum.
mm
gpr?
O f o k u
jynií
S 28. janúar 2005