Jólagjöfin - 24.12.1921, Side 43

Jólagjöfin - 24.12.1921, Side 43
Jólagjöfin 41 þar tók ekki betra viS. Þar komst hann ekkert fyrir snjó. Bæjardyrnar voru hálfar í fönn og mokuö stór kvos fram frá dyrunum, til þess aS hafa greiðan gang fram á hlaöiö. Arngrímur klifraði upp úr kvosinni og gekk út á hólinn fyr- ir utan bæinn. Þar haföi hann verið vanur aö hafa gullin sín á sumrin þegar hann var drengur. Hann leit yfir túniö. Alt var hulið snjó og mótaöi varla fyr- ir fjárhúsunum upp úr fönninni. Svo leit hann yfir sveitina. Það var byrjað að bregða birtu. Yfir öllu lá hvít og þykk rnjall- arbreiðan, og glórði að eins á stöku stað i bæjarþil eða fjár- húsvegg upp úr mjöllinni. Enginn maður sást á ferð, eða dýr, eða fugl, ekkert heyrðist, ekki einu sinni hundsgelt eða hrafna- krunk. Það var engu líkara en alt i kringum harin væri jökul- eyðimörk, þar sem engin lifandi vera ætti heima. Alt var svo ömurlegt og óþreyjan óx í huga hans. Hann nærri óskaði, að hann hefði aldrei farið heim. Það væri þó munur að vera í Reykjavík núna. Þar væri þó einhver meiri glaðværð og líf heldur en í þessari eyðimörk kuldans og kyrðarinnar. Faðir hans kom utan túnið, með moðpoka á bakinu. Hann gekk hægt og óð snjóinn upp í hné. „Þér leiðist nú líklega, Grímsi minn, hjá okkur. Hér er lítiíS um skemtanir, það er öðruvísi en þarna syðra, trúi eg. Hér lendir allur tíminn í stríðið fyrir lífinu og hrekkur ekki til hjá okkur gömlu körlunum, sem erum búnir að tapa því besta.“ Halldór staðnæmdist hjá Arngrími á hólnum og blés mæði- lega. Arngrímur virti föður sinn fyrir sér. Hann var orðinn lotinn og grár fyrir hærum og þreytusvipur á andlitinu. Skegg- ið stóð úfið út frá kjálkunum og var fult með hey og mosaagnir. Arngrimur hafði aldrei séð föður sinn jafn þrælkunnarlegan. „Já, eg er hræddur um, að þér leiðist hjá okkur um jólin, Grímsi minn. En mömmu þína langaði svo mikið til þess, að þú kæmir og yrðir heima um jólin. Hún hefir verið mesta skar í allan vetur og sumar, og í haust lá hún lengi, og við héldum að hún mundi þá ekki komast á fætur aftur. En þó varð það nú samt, en læknirinn sagði, að hún mundi ekki endast lengi úr þessu, hjartað væri alveg bilað. Eg vildi því ekki setja mig á móti því, að húri bæði þig að koma heim, þótt mig grunaði að þér mundi bregða við að hýrast hjá okkur um jólin.“ „Og, pabbi! Þú þarft ekki að óttast, aö mér leiðist mikið hér heima. Eg er bara þreyttur eftir ferðina; eg er orðinr, svo óvanur við alla hreyfingu.“
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Jólagjöfin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólagjöfin
https://timarit.is/publication/872

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.