Bræðrabandið - 01.11.1977, Page 2

Bræðrabandið - 01.11.1977, Page 2
BOÐSKAPUR FRA YFIRMÖNNUM AÐALSAMTAKANNA Hinn óstöðvandi straumur tímans hefur borið okkur að annarri bænaviku. Embættismenn heimssambandsins biðja fyrir þessari sérstöku hátíð, þegar aðventsöfnuðirnir um heim allan sameinast í bænagjörð, og biðja þess að hún verði meira en bara enn ein bænavika. Þessir tímar stórviðburða sem við lifum á, krefjast mjög sérstakrar guðrækni, helgunar og hollustu þeirra sem teljast til leifanna af Guðs fólki. Eftir því sem tákn tímanna halda áfram að koma fram, verður okkur æ Ijósara að koma Drottins er í nánd. Leiðtogunum við aðalstöðvar heimssambandsins er það mikið hjartans mál að allt fólk Guðs sé reiðubúið að mæta Drottni. Nafnið Sjöunda dags aðventisti bendir heiminum á tvö mikil sannleiksatriði: hið fyrra, að við höldum helgan sjöunda daginn sem hvíldardag; hið síðara, að við trúum á endurkomu Jesú, Drottins okkar. Frumherjar okkar boðuðu endurkomuna af krafti og sannfæringu. Nú, meir enn nokkru sinni áður ætti áköf eftirvænting nálægrar endurkomu Krists að einkenna okkur sem fólk. Kristur kemur ekki bara „einhvern tíma.“ Sannleikurinn er að hann kemur brátt. Það verður að sjást í lífi okkar og starfi að þetta sé áríðandi. Við erum fólk sem höfum fengið ákveðinn skilafrest, Koma Krists er í nánd. Við vitum ekki daginn né stundina, en við vitum að hann kemur brátt. Spurningin sem beinist að okkur öllum er þessi: „Erum við undir það búin að Jesús komi?“ Komum við þannig fram í önnum dagsins eins og við tryðum því að Jesús komi brátt? Þetta efni um endurkomuna og hinn nauðsynlega undirbúning sem henni fylgir ætti að hljóma út yfir heiminn frá öllum ræðustólum aðventista. Við verðum að vera viðbúin og við verðum að hjálpa öðrum að vera viðbúin. Þetta liggur okkur á hjarta, embættismönnunum við aðalsamtökin, og því biðjum við alla safnaðarmeðlimi að íhuga gaumgæfilega bænavikulestrana, en efni þeirra er „Verið ... viðbú- in.“ Við biðjum þess, að boðskapur þeirra snerti hjörtu okkar og leiði okkur til iðrunar, vakningar og siðbótar, er við búum okkur undir að mæta Drottni okkar. Við bjóðum sérhverjum meðlimi fólks Guðs, hinna síðustu leifa, um heim allan að taka þátt í þessari blessunarríku bænaviku. Útgefendur: Aöventistar á íslandi. BRÆÐRABANDIÐ Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Siguröur Bjarnason. 0

x

Bræðrabandið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.