Bræðrabandið - 01.11.1977, Blaðsíða 6
8) Hvaða þættir geta hafa valdið seinkuninni á
endurkomu Krists?
Tilvísanir.
1. Testimonies, 8. bindi, bls. 253.
2. Deilan mikla, bls. 348—353.
3. The Desire of Ages, bls. 832.
4. The SDA Bible Commentary, Ellen G. White Comments, á Lúk. 24, 39.,
bls. 1125.
5. Testimonies to Ministers, bls. 19.
6. The Desire of Ages, bls. 25,26.
7. The SDA Bible Commentary FHen G White Comments, á Post. 1, 11
bls. 1054.
8. Sama.
9. The Acts of the Apostles, bls 33.
10. Testimonies to Ministers, bls. 391
11. Deilan mikla, bls. 667, 668.
12. Christ's Object Lessons, bls. 421.
13. REVIEW AND HERALD, 22. okt., 1908.
14. Testimonies to Ministers, bls. 21.
15. Deilan mikla, bls. 674, 675.
16. Sama, bls. 675,676.
17. REVIEW AND HERALD, 7. maí, 1889.
18. Sama, 3. sept., 1903.
19. Sama, 3. jan., 1907
Sunnudagur, 30. október
FULL VISSAN UM ENDURKOMUNA
cN Eftir D. K. Bazarra.
Það er alvarleg staðreynd að við erum ekki á
himnum í dag, vegna þess að við erum ekki
reiðubúin.
Guði sé þökk fyrir það að Biblían segir okkur
hvernig hinir síðustu dagar muni verða. Pétur, einn af
postulunum 12, segir okkur að á hinum síðustu
dögum munu koma spottarar með spotti, er fram-
ganga eftir eigin girndum og segja: Hvað verður úr
fyrirheitinu um komu hans? Því að frá því feðurnir
sofnuðu stendur allt við sama eins og frá upphafi
veraldar." (2. Pét. 3, 3. 4.).
Þessi spádómur er að rætast á okkar dögum. Það
virðist sem margir líti á það sem merki um yfirburð-
ar-vísindamennsku og sönnun þess að viðkomandi
tilheyri úrvali menntamanna að hæðast að Guði og
loforðum hans. Þótt slíkt hryggi okkur ætti það ekki
að koma okkur á óvart, því Pétur hefur varað okkur
við því að þetta sé eitt af táknum endalokanna.
Vaxandi hópur spottara ætti miklu fremur að færa
okkur heim sanninn um að hin blessaða von um
endurkomu Drottins okkar Jesú, sem mun ná há-
marki sínu í endurlausn okkar, sé nær en nokkru
sinni fyrr.
Afturkoma vantrúar og heiðni í þeim löndum er
eitt sinn voru kristin, svo og í öðrum hlutum heims,
er eitt af táknunum sem benda til sólseturs þessa
gamla heims. Þessir hlutir fá að gerast til þess að
vekja okkur og hjálpa okkur að leita betri heims —
borgar sem Guð er smiður að og byggingarmeistari.
Án nokkurs vafa eru þetta hinir síðustu dagar. Það
er alvarleg staðreynd að við erum ekki á himnum í
dag, vegna þess að við erum ekki reiðubúin. „Eg veit
að hefði Guðs fólk varðveitt lifandi samband við
hann, hefði það hlýtt orði hans, væri það núna í hinu
himneska Kanaanlandi." — Ellen G. White, í Gener-
al Conference Bulletin, 30. mars, 1903. „ Hin langa
drungalega nótt reynir á; en morgninum er frestað í
náð, því ef Meistarinn kæmi myndu svo margir
reynast óviðbúnir. Ástæðan fyrir þessari miklu seink-
un er sú að Guð er ófús að láta fólk sitt glatast." —
Testimonies, 2. bindi, bls. 194. í náð sinni hefur Guð
frestað endurkomu sonar síns, svo að þú og ég komist
til iðrunar og mynd Guðs, sem er lyndiseinkunn
Krists, nái fyllilega að myndast í okkur. Þá mun
endirinn koma.
Róstur og hnignun margfaldast með ógnvekjandi
hraða og þúsundir á meðal Guðs fólks hrópa í bæn af
hreinum hug, „Hversu lengi, ó Drottinn? Hversu
lengi, ó Drottinn? Hversu lengi ætlar þú að bíða áður
en þú veitir okkur þá lausn sem þú hefur lofaó fyrir
munn þjóna þinna, spámannanna?“ Drottinn mun
ekki hlýða á bænir fólks síns með kæruleysi. Drottinn
segir, „Verið þolinmóð, treystið mér svolítið lengur;
ég kem og mér dvelst ekki.“ Ástandið í heiminum
núna krefst þess að Jesús hljóti að koma brátt.
Höfudinntak Biblíunnar
Bóksali var að selja bækur í áætlunarbíl. Hann
snéri sér að einum farþeganna, Asíubúa, í von um að
hann mundi reynast viðskiptavinur. Asíubúinn
beindi þá máli sínu að hinum farþegunum og sagði,
„Eg vil ekki kaupa þessa bók, því ég veit allt sem
stendur í henni.“ Bóksalinn bað Asíubúann um að
útskýra við hvað hann ætti með því að segja að hann
vissi allt sem stæði í bókinni. Honum til undrunar
sagði Asíubúinn, „Ef þetta er kristin bók þá segir hún
frá einum manni, Jesú að nafni, og engu öðru.“
Já, höfuðinntak Biblíunnar er þessi maður, Jesús
að nafni, og góðu tíðindin eru þau að hinn blessaði
sonur Guðs kemur brátt aftur til þessarar jarðar.
Endurkoma Jesú er svo mikilvæg að eitt af hverjum
20 versum í Nýja testamentinu er talið vera helgað
því hlutverki að boða þá staðreynd að Jesús komi
aftur til jarðarinnar.
Drottinn sjálfur fullvissaði okkur skýrum orðum
6