Bræðrabandið - 01.11.1977, Side 7

Bræðrabandið - 01.11.1977, Side 7
að hann myndi koma aftur. Rétt áður en hann yfirgaf þennan heim sagði hann lærisveinum sínum að skelfast ekki. Trúið á Guð og trúið á mig“ (Jóh. 14, 1.). Þetta eru þýðingarmikil orð sem eiga rétt á óskiptri athygli okkar. Hér virðist frelsarinn vera að segja, Eins og þú trúir á tilveru og óumbreytanleika lyndiseinkunnar Guðs, og það eru margar ástæður fyrir því, hvers vegna þú ættir að trúa þessu, svo skaltu og trúa á mig. Þessi orð voru inngangsorð hins stórfengslegasta efnis — endurkomu Jesú. Við skul- um lesa annað og þriðja vers þessa kafla til þess að skilja hvað Jesú liggi á hjarta: „Ég (fer) burt að búa yður stað. Og þegar ég er farinn burt og hefi búið yður stað, kem ég aftur og mun taka yður til mín, til þess að þér séuð og þar sem ég er.“ Þetta loforð gaf Kristur sjálfur, og við getum gert kröfu til þessa loforðs. Ég trúi því. „Ég kem aftur.“ Endurkoma Krists er dásamleg von, eina von heimsins. Jesús er frelsari heimsins, eina von heimsins. Á sama hátt Annað loforð sem fullvissar okkur um þessa bless- uðu von var gefið eftir að Jesús hafði farið með lærisveinana til Olíufjallsins, ekki núna til þess að bíða í bæn heldur til þess að stíga upp til föðurins á himnum. Eftir að hafa kvatt þá var hann skyndilega hrifinn upp frá þeim. Lærisveinarnir horfðu undrandi til himins. Sá sem þeir höfðu lært að elska var tekinn frá þeim. Sorgmæddir horfðu þeir á uppstigningu Jesú. En Jesús sendi engla að hugga lærisveinana. Skyndilega birtust þeim tveir menn í hvítum klæðum er sögðu, „Galíleumenn, hví standið þér og horfið til himins? Þessi Jesús, sem var upp numinn frá yður til himins, mun koma á sama hátt og þér sáuð hann fara til himins." (Post. 1, 11.). Aftur sjáum við að Drott- inn vildi að hans elskuðu lærisveinar yrðu huggaðir með þessu dásamlega loforði. Og það hlýtur að hafa verið lærisveinunum mikil fullvissa einmitt þá. „Ég kem aftur.“ „Ég kem aftur,“ Loforðið er öruggt. Þetta loforð hefur verið von Guðs fólks um árin. Sem söfnuður höfum við gegnt forystuhlutverki í því að aðvara heiminn um bráða endurkomu Krists í þennan heim. Samt hafa 133 ár liðið síðan 1844 og Drottinn er enn ókominn. Má vera að sumir velti því nú fyrir sér hvort við séum ekki á villigötum í eftirvæntingu okkar á brátt-komandi frelsara. Hvað segir Biblían og Andi Spádómsins um hvenær megi vænta endurkomunnar? Hefur seinkun átt sér stað? Ef svo, nefnir Andi Spádómsins einhverja sérstaka ástæðu fyrir seinkuninni? Þetta eru nokkrar þeirra spurninga sem sumir okkar á meðal hafa reynt að forðast til þess að hollusta okkar við áreiðanleik hreyfingarinnar yrði ekki dregin í efa. Ef til vill hafa einstaka óttast að horfast í augu við staðreyndirnar. Seinkunin útskýrð I svari sínu til ákveðinna gagnrýnenda árið 1883 gaf Ellen White grundvallarútskýringu á seinkuninni og áreiðanleik endurkomu Drottins. Ein fullyrðing sérstaklega, frá 1851, virtist gefa til kynna að endir náðartímans væri á næstu grösum. „Ég sá að tími Jesú í hinu allra helgasta var nærri því búinn og að tíminn mun endast aðeins mjög stutta stund í viðbót.“ — Early Writings, bls. 58. En árin liðu og allur heimurinn varð starfssvið hins vaxandi safnaðar Sjöunda dags aðventista, en að boða boðskapinn öllum heiminum hefur alltaf virtst ofar mannlegum hæfileikum og möguleikum. Nú var fullyrðing Ellen White dregin í efa. Hvernig gat Innblásturinn sagt að tíminn væri allt að því á enda þegar áratugirnir liðu og heimsstarfið að því er virtist ofvaxnara en nokkru sinni áður? „Englar Guðs í boðskap sínum til manna segja ætíð að tíminn sé mjög stuttur. Þannig hefur það ávallt verið lagt fram fyrir mig. Rétt er það að tíminn hefur haldið áfram lengur en við reiknuðum með á fyrstu dögum þessa boðskapar. Frelsarinn kom ekki eins fljótt og við höfðum vonað. En hefur orð Drottins brugðist? Aldrei! Við skyldum minnast þess að bæði loforð og aðvaranir Guðs eru skilyrðum háð. „Guð hafði gefið fólki sínu verk að vinna á jörðinm. Það átti að boða boðskap þriðja engilsins, það átti að beina hugum hinna trúuðu að hinum himneska helgidómi sem Kristur hafði gengið inn í til að friðþægja fyrir fólk sitt. Það átti að vinna að hvíldar- dagssiðbót. Það átti að fylla í skarðið í lögmáli Guðs. Boðskapinn átti að boða hárri röddu svo allir íbúar jarðarinnar gætu fengið aðvörunina. Fólk Guðs yrði að hreinsa sálir sínar fyrir hlýðni við sannleikann, og vera undir það búið að standa lýtalaust frammi fyrir honum við komu hans.“ — Selected Messages, 1. bók, bls. 67, 68. Við spyrjum, „Hvenær kemur Jesús aftur?“ Ef til vill ættum við að spyrja, „Hvenær getur hann komið aftur?“ Við segjum að við séum að bíða eftir honum. Væri ekki réttara að segja að hann sé að bíða eftir okkur? Endurkoman hefði getað verið fyrir 1883. „Hefðu endurkomusinnar (hinn mikli fjöldi sem bjóst við komu Drottins árið 1844), eftir vonbrigðin miklu 1844, haldið fast við trú sína og haldið áfram, sameinaðir, þar sem forsjón Guðs opnaði leið, tekið við boðskap þriðja engilsins og boðað hann í krafti Heilags anda öllum heiminum, myndu þeir hafa séð hjálpræði Guðs, Drottinn hefði unnið stórlega með starfi þeirra, verkinu hefði verið lokið og Kristur hefði þegar verið kominn að sækja sitt fólk til að veita þeim launin. „En á dögum efasemda og óvissu sem kom í kjölfar vonbrigðanna misstu margir hinna aðvent-trúuðu trú sína. Deilur og flokkadrættir komu inn. Meirihlutinn (af Millerítahópnum) snérist í ræðu og riti gegn hinum fáu sem fylgdu forsjón Guðs og tóku við hvíldardagssiðbótinni og byrjuðu að boða boðskap þriðja engilsins. Margir sem hefðu átt að verja tíma sínum og talentum með það eitt fyrir augum að aðvara heiminn, voru nú uppteknir við að berjast gegn sannleikanum um hvíldardaginn, og þar af leiðandi varð það nauðsynlegt fyrir málsvara hvíldar- 7

x

Bræðrabandið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.