Bræðrabandið - 01.11.1977, Side 9

Bræðrabandið - 01.11.1977, Side 9
Mánudagur, 31. okt. NÁLÆGÐ END URK OMUNNA R Hvað líður tímanum á spádómsklukku Guðs? En á klukku andlegrar reynslu þinnar? Blaðamaður nokkur sem var að tala um framlag ákveðins löggjafa í stjórnmálum sagði: „Hann veit ekkert hvað tímanum líður. Klukkan hans er stopp og hann vill hafa hlutina eins og þeir voru.“ Það sem hann átti við var að þessi stjórnmálamaður gerði sér ekki grein fyrir því sem var að gerast kring um hann. Hann var ekki í sambandi við nútíðina eða framtíð- ina. Hann virtist vera ánægður með hlutina eins og þeir höfðu verið og gerði ekkert til að vera maður síns tíma. Þegar við lítum á heiminn í kring um okkur og berum saman það sem við sjáum við spádóma Biblí- unnar getum við spurt sjálf okkur: „Veit ég hvað tímanum líður?“ Jesús gerði sér glögga grein fyrir tímanum og hvernig hann tengdist messíasarhlutverki hans. Þegar bræður hans hvöttu hann til að fara á ákveðna hátíð í Jerúsalem svaraði Jesús: „Farið þér til hátíðarinnar; ég fer ekki að sinni til þessarar hátíðar, því að minn tími er enn ekki fullnaður." (Jóh. 7, 8). Stuttu síðar þegar tíminn sýnilega var réttur fór Jesús til Jerúsal- em. í annað skipti, eftir að hafa deilt við fólkið, slapp Jesús við fangelsun. „Þeir leituðust þá við að hand- taka hann en enginn lagði hendur á hann því að stund hans var enn ekki komin.“ (Jóh. 8, 30). Svo lesum við h'ka í Jóh. 8, 20: „Þessi orð talaði hann hjá fjárhirzlunni er hann var að kenna í helgidóminum og enginn lagði hendur á hann því að stund hans var enn ekki kornin." Þetta með tímann var mikilvægt Jesú og messíasarhlutverki hans. En takið nú eftir athyglisverðum og þýðingarmikl- um orðum Krists síðar þegar hann talar við læri- sveina sína. Þetta var rétt fyrir páska og Jesús sagði við þá: „Farið til borgarinnar til manns nokkurs og segið við hann: Meistarinn segir: Minn tími er í nánd; hjá þér vil ég halda páska með lærisveinum mínum.“ (Matt. 26,18). Nokkrum stundum síðar eftir hræðilegar þjáningar í Getsemane sagði hann við lærisveina sína: „Sofið þér áfram og hvílist. Það er nóg. Stundin er komin. Sjá, mannssonurinn er framseldur í hendur syndar- anna.“ (Markús 14, 41). Dómsdagur nálgast Hin mikla klukka Guðs gengur ennþá. Við færumst nær dómsdegi. „Guð hefir þá séð í gegnum fingur við tíðir vanvizkunnar, en nú boðar hann mönnunum að þeir allir skuli alls staðar gjöra iðrun, með því að hann hefir ákveðið dag, á hverjum hann mun láta mann, sem hann hefir fyrirhugað, dæma heimsbygð- ina með réttvísi, og hefir hann veitt öllum fullvissu um það, með því að hann reisti hann frá dauðum.“ (Post. 17, 30. 31). Rannsóknardómurinn á himnum fer nú fram. Þegar klukka Guðs sló gekk frelsari okkar og meðalgöngumaður inn í hið allra helgasta í helgidóminum á himnum. Síðan hefur dómurinn verið í framkvæmd. Þó svo að Guð vegna forvitundar sinnar vissi loka niðurstöðu jarðsögunnar, hefur hann ekki sagt fyrir dag endurkomunnar. Jesús sagði: „En um þann dag og stund veit enginn, ekki einu sinni englar himnanna né sonurinn, heldur aðeins faðirinn einn.“ (Matt. 24, 36). Eftir upprisuna sagði Jesús hinum forvitnu lærisveinum sínum: „Ekki er það yðar að vita tíma eða tíðir, sem faðirinn setti af sjálfs síns valdi.“ (Post. 1, 7). Þannig geta táknin aðeins bent okkur á hvenær atburðurinn er nálægur, en ekki nákvæmlega á stundina. Því megum við ekki frá mannlegu sjónarmiði álíta að endurkoman eigi sér stað á ákveðnum tíma sem Guð hefur ákveðið, eins og það sé ekkert sem einstak- lingurinn geti gert til að flýta eða seinka henni. Ellen White segir að endurkomunni hafi verið „frestað.“ „Hin langa drungalega nótt er erfið en af náð er morgninum frestað því ef meistarinn kæmi væru svo margir óviðbúnir. Guð vill ekki að fólk hans farist og er það ástæðan fyrir þessari löngu töf.“ Testimonies, 2. bindi, bls. 194. Engu að síður er lögð áhersla á nálægð endurkomunnar: „En koma morgunsins til hinna trúu og koma næturinnar til hinna ótrúu er alveg á næstu grösum." Sama. Hœgt er aó flýta endurkomunni. Ellen White segir einnig: „Það eru forréttindi sérhvers kristins einstaklings ekki aðeins að vænta heldur og að flýta fyrir komu Drottins okkar Jesú Krists (2. Pét. 3, 12).“ — COL, bls. 69. Frá þessum sjónarhóli verðum við að rannsaka tákn komu Krists. Nýlega sagði fyrrverandi þingkona og sendiherra um glæpi í Bandaríkjunum: „Það hefur einnig ein- kennt sjötta og sjöunda áratuginn að mikil aukning hefur orðið varðandi alkóhólisma og eiturlyfja- neyslu, sérstaklega meðal hinna ungu. ökumenn 9

x

Bræðrabandið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.