Bræðrabandið


Bræðrabandið - 01.11.1977, Qupperneq 13

Bræðrabandið - 01.11.1977, Qupperneq 13
arinnar mun verða þurrkuð út úr alheiminum um alla eilífð. Koma frelsarans í skýjum himinsins mun valda ofsahræðslu og dauða meðal hinna óguðlegu. En hinum réttlátu mun dagurinn færa gleði, hamingju og lausn. Nú taka þeir við ríkinu. Hingað til hafa þeir aðeins átt ríkið í vændum sem erfingjar en nú eru þeir orðnir erfingjar (DM, bls. 323). Satan hefur ráðið allt of lengi. Nú byrjar stjórn hinna réttlátu. Kristur kemur í mætti og dýrð og þetta táknar lokasigur hinna trúföstu. Réttlátir burt numdir Annar tilgangur endurkomu Krists er að nema burt hina réttlátu sem lifa. Að nema burt þýðir bókstaflega að flytja frá einum stað til annars! Hinir heilögu sem lifa við endurkomuna munu verða fluttir frá jörðunni til himins án þess að reyna hvað dauðinn er. Guð hefur gefið sannanir fyrir mætti sínum og vilja til að nema menn burt. Páll segir okkur að „Fyrii trú \ ar Enok í burt numinn að eigi skyldi hann dauðann líta og ekki var hann framar að finna af því að Guð hafði numið hann í burt (Heb. 11, 5). Okkur er sagt að „í þrjár aldir hafði hann(Enok) gengið með Guði. Dag hvern hafði hann þráð nánara samband. Sambandið varð nánara og nánara þar til Guð tók hann til sín. Hann hafði staðið við þröskuld eilífðar- innar, aðeins skref milli hans og lands hinna bless- uðu. Nú opnuðust skrauthliðin, gangan með Guði, sem hann hafði svo lengi sóst eftir á jörðunni, hélt nú áfram og hann gekk gegn um hlið borgarinnar helgu — fyrstur manna að fá inngang." — Patriarchs and Prophets, bls. 87. Elía er annað dæmi um mann burt numinn. Guð nam hann ekki einungis burt heldur leyfði hann Pétri, Jakob og Jóhannesi að sjá hann á ummyndun- arfjallinu. Þannig eru Enok og Elía fulltrúar þeirra sem verða lifandi á jörðunni við endurkomu Krists og sem munu „umbreytast í einni svipan, á einu auga- bragði, við hinn síðasta lúður“ (1. Kor. 15, 51. 52). Fyrri upprisan Enn annar tilgangur með endurkomunni er að reisa við þá sem hafa dáið réttlátir. í rás alda og árþúsunda hefur fangelsi dauðans hrifið til sín hina heilögu einn eftir annan. Nú heyrist rödd konungs þeirra og lífgjafa um alla jörðina, sem kallar þá til nýs og eilífs lífs. Sjáið þá er þeir koma úr gröfunum þróttmiklir og sterkir, hrópandi lofgjörð til konungs- ins. Hlustið á þá er þeir hrópa sigurspurninguna: „Dauði, hvar er sigur þinn? Dauði, hvar er broddur þinn.“ (1. Kor. 15, 55). Nú sameinast þeir hinum réttlátu sem lifa, í mikilli skrúðgöngu til borgar hinna endurleystu. Þegar Páll ritaði fyrra bréf sitt til Þessalóníku- manna hafði hann í huga að sumir hinna trúuðu höfðu spurningar í huga varðandi örlög ástvina sem dáið höfðu meðan þeir biðu endurkomunnar. Páll sagði: „Ekki viljum vér, bræður, láta yður vera ókunnugt um þá sem sofnaðir eru til þess að þér séuð ekki hryggir eins og hinir, sem ekki hafa von. Því að ef vér trúum því, að Jesús sé dáinn og upprisinn, þá mun Guð sömuleiðis fyrir Jesúm leiða ásamt honum fram þá, sem sofnaðir eru; því að það segjum vér yður og höfum fyrir orð Drottins að vér, sem lifum og erum eftir við komu Drottins, munum alls ekki fyrri verða en hinir sofnuðu því að sjálfur Drottinn mun með kalli með höfuðengils raust og með básúnu Guðs, stíga niður af himni og þeir sem dánir eru í trú á Krist, munu fyrst upp rísa. Síðan munum vér, sem lifum, sem eftir erum, verða ásamt þeim hrifnir burt í skýjum til fundar við Drottin í loftinu; og síðan munum vér vera með Drottni alla tíma. Huggið því her annan með þessum orðum.“ (1. Þess. 4,13—18). Þvílík huggun! Engu máli skiptir hvort hinn trúaði lifir eða er dáinn þegar Kristur kemur annað sinn, því útkoman verður hin sama: Við munum verða hrifnir burt saman til að mæta Drottni. Þetta er hin sæla ráðstöfun fyrir alla trúaða, hvort sem þeir eru lifandi eða dánir við endurkomu Drottins. Við komu Drottins verður „lokasnerting ódauðleik- ans“ framkvæmd á hinum heilögu (E. G. W. 18. handrit, 1894). Ellen White talar um þessa reynslu sem það að „klæðast ódauðlegri dýrð.“ Hinir heilögu eru krýndir ódauðleikanum. Þeir umbreytast til ódauðleika." Ódauðleikinn er „veittur“ þeim. Við vinnum okkur ekki inn þessa dásamlegu reynslu, hún er ekki keypt fyrir tilverknað manna, hún er ekki árangur verka þó svo þau hafi verið góð. Þessi reynsla er ókeypis og ótakmörkuð gjöf hins himneska föður okkar. Það er undursamlegt að Guð hefur séð svo um að menn sem eiga að deyja geti öðlast ódauðleika. Fyrir blóð Jesú Krists öðlumst við hina „sælu von.“ Páll segir okkur að „hold og blóð getur eigi erft guðsríki, eigi erfir heldur hið forgengilega óforgengileikann.“ (1. Kor. 15, 50). Hér uppfyllist tilgangur Guðs aftur. Mannkynið er endurreist til hins syndlausa eðlis sem Adam og Eva nutu fyrir syndafallið. Þar að auki er líka fyrirheitið um að hið illa muni ekki uppvekjast aftur. Þjónn Drottins segir okkur: „Þá mun allur alheimurinn hafa orðið vitni að eðli og afleiðingu syndarinnar. Og gjöreyðing hennar sem í upphafi mundi hafa vakið ótta með englunum og hnekkt virðingu Guðs, mun nú færa kærleik hans sigurinn og staðfesta vegsemd hans fyrir alheiminum og íbúum hans, sem munu með fögnuði gera vilja hans og geyma lögmál hans í hjörtum sínum. Aldrei framar mun hið illa upp vekjast. ... Sköpunarverkið verður reynslunni ríkara og mun aldrei aftur láta snúa sér frá trúnaði við hann, sem hefur sýnt eðli sitt vera ómælisdjúp kærleika og ótæmandi visku.“ — DM, bls. 521. Einni spurningu er ósvarað. Munt þú, mun ég, meðtaka áform Guðs og tilgang með okkur? Áform hans munu uppfyllast. Vilt þú, vil ég, hjálpa til að flytja fagnaðarerindið til sérhvers hluta heimsins svo 13

x

Bræðrabandið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.