Bræðrabandið - 01.11.1977, Side 17

Bræðrabandið - 01.11.1977, Side 17
kringumstæðnanna* vilja gjarnan að við trúum því að sérhver maður sé sitt eigið úrskurðarvald. Enginn hafi rétt til þess að segja öðrum fyrir varðandi staðal hegðunar. En orð Drottins er staðall hegðunar okkar og hin svo kallaða nýja siðfræði er ekkert annað en gamli saurlifnaðurinn sem var velþekktur á dögum postulans. „Hafið gát á yður, að þér látið eigi dragast með af villu þverbrotinna manna og fallið frá yðar eigin staðfestu." Postulinn lýkur sínum áríðandi boðskap með þessari hjartanlegu hvatningu: „En vaxið í náð og þekkingu Drottins vors og frelsara Jesú Krists. Honum sé dýrðin bæði nú og til eilífðar dags. Amen.“ Og yið svörum innilega, af hjarta, Amen og Amen. Til umrœöu 1) Hverja telur þú vera stærstu hindrunina á því að við séuð fyllilega undir komu Drottins búin? 2) Hvernig getum við losað okkur við þessarar hindranir? 3) Hvers vegna er það svo mikilvægt fyrir okkur að rannsaka Guðs orð daglega og gaumgæfilega? 4) Hvaða stórkostlegum blekkingum verðum við að mæta á síðustu dögum þessarar heimssögu? 5) Hvers konar söfnuður heldur þú að myndi best hæfa nýjum meðlimum að sameinast? 6) Hvað getum við gert til þess að hafa þannig söfnuð? 7) Hvernig er það hægt fyrir hinn kristna að vaxa í náð og þekkingu á Kristi? Fimmtudagur 3. nóvember B OÐ UN END URKOMUNNA R Ekkert minna en altækt útbreiðslustarf þarf til á þessum alvarlegu tímum. „Eitthvað sögulegt mun gerast hér.“ Þessi hrífandi orð á auglýsingaskiltum um allt í Dallas, Texas, árið 1972. Samkvæmt frásögnum blaða og annara fjölmiðla kom yfir 65.000 kristið æskufólk, ásamt 10.000 kristnum leikmönnum frá 100 þjóðum ýmist gangandi, hlaupandi, fljúgandi, hjólandi og „á puttanum" til Dallas til þess að taka við fyrirskipunum um aðgerðir til þess að snúa heiminum til Krists fyrir 1980. Verndari mótsins sagði í opnunarávarpi sínu: „Flestir hinna kristnu og leiðtogar þeirra hafa ekki tekið alvarlega skipun Drottins um að fara og kristna allar þjóðir, að boða boðskapinn alls staðar. Við höfum verið að fást við algjör aukaatriði.“ Viðstaddir svöruðu þessari áskorun með því að heita því að vitna, ekki aðeins í öllum Bandaríkjunum og Kanada og vinna að þjálfun og hervæðingu allra afla safnaðanna, heldur í öllum heiminum, og boða Krist alls staðar fyrir 1980. Fyrir nítján hundruð árum stóð Jesús aðeins eitt. skref frá sínu himneska hásæti, með takmarkalaust vald, og gaf lærisveinum sínum tilskipunina og áskorunina, „Farið því,“ sagði hann, „og kristnið allar þjóðir" (Matt. 28, 18. 19.). „Farið út um allan heiminn og prédikið gleðiboðskapinn allri skepnu." (Mark. 16, 15.). Farið út í hvern krók og kima lands ykkar; farið út til endimarka hins byggilega heims og boðið komu hins blessaða Drottins. Til þess að lærisveinarnir gripu hina raunverulegu þýðingu áskorunarinnar voru orð þessarar miklu tilskipunar endurtekin aftur og aftur. Hver er ábyrgð okkar? „Það eru banvæn mistök,“ sagði systir White, „að álíta að sálnavinnandi starfið sé eingöngu undir hinum vígða presti komið... Allir sem taka við lífi Krists eru vígðir til þess að vinna að sáluhjálp náungans." DA. bls. 822 17

x

Bræðrabandið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.