Bræðrabandið - 01.11.1977, Page 18

Bræðrabandið - 01.11.1977, Page 18
Boðberar endurkomunnar Júdas segir að „Enok, sjöundi maður frá Adam,“ hafi boðað komu Krists í dýrð og með krafti. (Júdas 14, 15.). Job prédikaði og sagði, „Ég veit að lausnari minn lifir og hann mun síðastur ganga fram á foldu.“ (Job 19, 25—27). Davíð boðaði endurkomuna, og sagði, „Guð vor kemur og þegir ekki.“ (Sálm. 50, 3.). Postulinn Páll lýsti hinum kristna manni sem „bíðandi hinnar sælu vonar.“ (Tít. 2,13.). Með postulasöfnuðinum hófst tímabil boðunar og vitnisburðar sem gaf af sér ríkulega uppskeru sálna. Söfnuðurinn hafði hleypt af stokkunum nýjum og lífgandi trúarbrögðum. Þetta voru nýir tímar í reynslu hans. Eftir hvítasunnuna fóru hinir trúuðu inn á torgin, út á strætin og inn í musterin og boðuðu sannleikann með sannfæringu og krafti. Sálnavinnandi starf efldist mjög. Hinir fyrstu aðventistar prédikuðu hvar sem áheyrendur var að finna. Oft fór þetta fram eins og á dögum postulasafnaðarins á einkaheimilum og stundum úti í náttúrunni. Hjarta William Millers brann af ákefð hinnar nýfundnu trúar. Hann boðaði boðskapinn stað úr stað knúinn guðlegum kærleika. Miller prédikaði í tjaldi sem tók milli 3.000 og 4.000 manns í sæti. Eitt sinn, þar sem ekki var völ á tjaldi, prédikaði hann í „stórri járnbræðslu" (járnsteypusmiðju) sem tók um 5.000 manns. Hann prédikaði í vélsmiða salnum. Hann boðaði endurkomuna af „þrepum dómshússins" og í kirkju öldungakirkjunnar. í hvert skipti söng fólkið endurkomusálma á leiðinni heim til sín eftir samkomurnar. (Sjá Francis D. Nichol, The Midnight Cry, bls. 114—120.). Hið óslökkvandi áhugamál fyrstu frumherjanna var að boða endurkomuna fjær og nær. J. N. Loughborough varð kristinn ungur að árum og um tvítugt heyrði hann greinargóða útleggingu á hinum þrefalda boðskap 14. kafla Opinberunarbókarinnar. Hann tók strax við honum og fór samstundis að boða hann öðrum. Tveimur árum síðar var hann vígður og aðalsamtökin völdu hann til þess að hefja útbreiðslustarf á Kyrrahafsströndinni. Seinna var hann sendur til Bretlandseyja að stjórna boðun aðventboðskaparins þar. Þannig var helgunin og hollustan hjá fyrstu frumherjunum við að boða endurkomuna. Vakin upp til að boða endurkomuna Guð vakti upp hreyfingu Sjöunda-dags aðventista til þess að boða endurkomuna. Ekki bara nokkrar raddir hér og þar. Ekki bara tvo eða þrjá útbreiðsluprédikara í sambandi eða samtökum, eins og núverandi stefna er í sumum svæðum, heldur eins og Ellen G. White hefur sagt: „Þjónar Guðs munu hraða sér með upplýstar ásjónur og geislandi af heilagri helgun frá einum stað til annars til þess að flytja boðskapinn af himnum. Varnaðarorðin munu hljóma þúsundrödduð um alla jörðina... Þannig munu íbúar jarðarinnar verða leiddir til að taka afstöðu sína.“ — Deilan mikla, bls. 639, Leturbreyting B. L. A. Það er augljóst að ábyrgðin að boða endurkomuna hvílir á sérhverjum presti, sér- hverjum starfsmanni safnaðarins, sérhverjum leið- toga, sérhverjum safnaðarmeðlim og sérhverju ung- menni í söfnuðinum. Skipunin er, Farið og boðið boðskapinn á opinberum samkomum, samkomum á heimilum, í samskiptum við einstaklinga, bóksölu, útbreiðslustarfi frá húsi til húss, og öllum greinum kristinboðsstarfs. Ef við raunverulega trúum á endurkomu Drottins, ef við höfum trú og traust á boðskap okkar til heimsins, ef við höfum eitthvað að segja, þá ættum við að segja það núna. Við eigum að boða boðskapinn skýrt og greinilega án þess að hika eða tvístíga. Engin tvíræðni né óvissa má eiga sér stað því dýrmætar sálir eru í veði og hættustund aldanna hefur skollið á. Nú er tíminn fyrir presta, alla starfsmenn hverrar greinar sem er, safnaðarmeðlimi, hvort sem þeir eru ungir eða gamlir, að taka saman höndum og boða af fullvissu hinn eilífa fagnaðarboðskap og skjóta endurkomu frelsarans. Við erum að reyna fæðingarhríðir hins komandi nýja heims — fæðingarhríðir komu Drottins okkar og meistara. Við erum í heimi sem er að detta í sundur — glötuðum heimi. Og það er kominn tími til að rísa upp og skína! Við, meðlimir safnaðar hinna síðustu leifa, verðum að ganga fram i einlægri og ósvikinni trú á að Guð lýsi veginn. Við verðum að ganga fram fyrir skjöldu knúin óstöðvandi hvöt til að boða endurkomu frelsarans, hans sem er voldugur að frelsa. Við verðum að fara út og benda syndurum á „Guðs-lambið er ber synd heimsins.“ Sjöunda dags aðventistar um allan heim ættu að hafa auglýsingaskilti alls staðar þar sem segði að mesti viðburður heimssögunnar væri um það bil að gerast — hin skjóta endurkoma Drottins okkar og konungs. Skipunin til safnaðarins sem þú ogég tilheyrum er FARIÐ, og boðið aðvent-boðskapinn, endurkomuboðskapinn, öllum heiminum í þessari kynslóð. FARÐU til þeirra sem eru á heimilinu þínu og í fjölskyldunni. FARÐU til þeirra meðlima safnaðarins sem hafa helst úr lestinni. FARÐU til þeirra í hvíldardagsskólanum sem eru niðurbeygðir. FARÐU til nágranna þinna sem búa í myrkri og. þarfnast Ijóss. FARÐU til þeirra sem hafa sundurmarið hjarta og segðu þeim frá honum sem kom til þess að lækna hina hrjáðu. FARÐU í borgirnar sem aldrei hefur verið farið í, bæina, eyjarnar og löndin því „margir eru við þröskuld guðsríkis og bíða aðeins eftir að þeim verði safnað inn.“ — The Acts of the Apostles, bls. 109. FARÐU og láttu síðasta náðarkallið hljóma til hjálp- ræðishátíðarinnar — síðasta boðið um að búa sig undir hina dyrlegu endurkomu Drottins. Ný vakning útbreiðslustarfs Trúsystkini, það er kominn tími til að rísa upp! Það er kominn tími til að hervæðast! Það er kominn tími til að vinna sálir! Því það er áliðið! 18

x

Bræðrabandið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.