Bræðrabandið - 01.11.1977, Page 19

Bræðrabandið - 01.11.1977, Page 19
Fyrir sex árum vaknaði mikill áhugi hjá leiðtogum, prestum og öðrum starfsmönnum og safnaðarmeðlimum Mið-Ameríku að láta til skarar skríða með boðun endurkomunnar. Þeir sáu „Ijós heimsins, eitt af öðru, slokkna." Þeir sáu að hert var á takmörkunum ýmissa þjóða Þeir fundu fyrir skertu trúarbragðafrelsi. Þeir stóðu andspænis innanlands- og alþjóða-róstum og ringulreið. Þeir ákváðu með sér að tími væri kominn til fyrir hina „sofandi risa“ safnaðarins að vakna af svefni: að tími væri kominn til að losa sig úr spennitreyju værðarinnar; að tími væri kominn til að notfæra sér aðferðir og tæki sem tækni nútímans gæfi kost á; og ganga djarfar fram en nokkru sinni áður í að boða endurkomu okkar blessaða Herra. Þeir ákváðu að „ganga fram; bæta við nýjum svæðum; fara inn í ný svæði með tjald og boða síðasta aðvörunarboðskapinn" þeim 74 löndum og eyjum sem eru í Mið-Ameríku. Saman tendruðum við sálnavinnandi eld — eld sem myndi brenna í hjarta sérhvers starfsmanns og sérhvers safnaðarmeðlims. Starfsmenn og leikmenn tóku höndum saman um að boða endurkomuna af meiri krafti en nokkurn tíma áður. Ungur safnaðarmeðlimur fór inn í nýtt svæði að boða fagnaðarerindið á sinn eigin einfalda hátt. Hann byrjaði með stíft heimsóknarstarf. Hann hélt samkomur á heimilum þar sem nokkrar fjölskyldur komu saman, og hann deildi út ritum. I lok ársins var búið að stofna söfnuð og 22 hópar héldu hvíldardag- inn og glöddust í „hinni sælu von“ um skjóta komu frelsarans. Á meðal þessara voru sex mótmælenda- prédikarar sem eru núna helgaðir leikprédikarar. I einum af menntaskólum okkar, smituðust kennararnir og nemendurnir af útbreiðsluáhuganum. Kennararnir skipulögðu nemendurna í 13 útbreiðsluhópa, héldu 22 stutta opinbera samkomuflokka á árinu, skírðu yfir 400, og skipulögðu tvo nýja söfnuði. Trúfastir í ofsóknum Einn safnaðarmeðlimur fór til bæjar þar sem engan sal eða kirkju var að fá til að halda samkomur í. Þarna var enginn Sjöunda dags aðventisti til þess að hjálpa honum, svo hann fór að vinna með hvítasunnufjölskyldu sem bjó þarna. I þessari fjölskyldu voru nokkrar ungar stúlkur. Leikmaðurinn bauð þeim að hjálpa sér við samkomuhald sitt. Þær tóku því boði. Ein stjórnaði sýningarvélinni, önnur vísaði til sætis og hinar hjálpuðu á annan hátt. Söfnuóurinn sem þessi fjölskylda tilheyrði fór að vinna gegn leikmanninum og reyndi að fá fjölskylduna til þess að koma ekki nálægt þessu starfi. En allt kom fyrir ekkert. í 30 daga var heimilið grýtt. í lok samkomuhaldsins voru 68 skírðir, þar á meðal hvítasunnu-fjölskyldan og einstaklingarnir þrír sem höfðu grýtt húsið þeirra. Á einu kristniboðssvæðinu sögðu skrif- stofustúlkurnar — ungar stúlkur — að þær vildu taka virkari þátt í sálnavinnandi starfinu. Þær skipulögðu sinn eigin hóp og heimsóttu heimili á sinn eigin hátt, deildu út ritum, rannsökuðu Biblíuna með fólki, prédikuðu fjórum sinnum á viku, og undirbjuggu, eftir átta vikna starf, 35 einstaklinga undir skírn. Einn prestur skrifaði að heilt þorp hefði tekið við boðskap þriðja engilsins er hann og aðstoðarmenn hans boðuðu endurkomuna. Allir tóku skírn, þar á meðal þrír mótmælendasöfnuðir og prestar þeirra. í einu landi, þar sem fólk okkar varð fyrir ofsóknum fyrir nokkrum árum, unnu safnaðarmeðlimirnir svo margar sálir að prestarnir höfðu ekki undan að skíra. Stundum varð skírnarathöfnin að fara fram við miðnætti. Þegar allar „raddir“ safnaðarins sameinast rödd prestanna í að boða endurkomuna mun Heilagur Andi gefa þann kraft sem lofaður hefur verið, og heiðarlegar sálir munu taka ákvörðun með Guði. Nú er tíminn fyrir allan söfnuðinn að ganga fram og vitna. Knýið dyra; heimsækið nágrannana; talið við vini ykkar; setjið upp Biblíurannsókn á heimili ykkar; prédikið opinberlega. „Við höfum engan tíma til að dvelja við efni sem hafa enga þýðingu. Við ættum að nota tíma okkar til að boða sekum heimi síðasta náðarboðskapinn." Testimonies, 8. bindi, bls. 36. Fyrir nokkru bankaði Vottur Jehóva á dyr Sjöundadags aðventista konu. Áður en hún opnaði dyrnar bað hún manninn að segja til sín. Hann svaraði að hann væri Vottur Jehóva og væri með boðskap handa henni. Hún sagði þá, „Ég er Sjöundadags aðventisti. Ég tilheyri söfnuði sem hefur hinn sanna boðskap um endurkomu Jesú.“ Maðurinn hrópaði þá til hennar, „Frú, ef þér raunverulega trúið að þér hafið hinn sanna boðskap og einlæglega teljið að þér hafið boðskapinn um skjóta endurkomu frelsarans, hvers vegna eruð þér þá ekki hér úti að knýja á dyr? Komið út, frú,“ krafðist hann, „og segið fólkinu í byggðarlaginu að Jesús komi brátt og segið því að búa sig undir að mæta honum.“ Kæru aðvent-trúsystkini, Drottinn er að bíða eftir að allir starfsmenn safnaðarins og safnaðarmeðlimir hrífist af skjótri endurkomu frelsarans og gangi út og boði endurkomuna með líkama, sál og anda. Hann er að bíða eftir að prestarnir, leiðtogarnir, kennararnir, bóksalarnir, læknarnir, hjúkrunarkonurnar, Biblíustarfskonurnar, skrifstofustúlkurnar, safnaðarmeðlimirnir og ungmennin taki höndum saman og fari með aðventboðskapinn, endurkomuboðskapinn, að hvers manns dyrum á þessari reikistjörnu í þessu fimm ára tímabili. Ekkert minna en altækt útbreiðslustarf dugir á þessum síðustu dögum. Sex þúsund ár horfa á. Spámenn Biblíunnar og hinir fyrstu frumherjar prédikuðu og hurfu svo í aldanna skaut. Við verðum að taka við kyndlinum og boða aðvent-boðskapinn öllum þjóðum. Við skulum eignast ósvikna vakningu 19

x

Bræðrabandið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.