Bræðrabandið - 01.11.1977, Síða 20
heimssafnaðarins þessa Bænaviku, biðja um kraft
hvítasunnunnar og fara skjótt út og búa fólk undir
endurkomu Drottins okkar og konungs.
„Kom þú, Drottinn Jesú.“
Til umrϚu
1) Hvaða samband, nákvæmlega, er á milli loforðs
Guðs um að „Gjöra upp reikning sinn á jörðinni,
binda endi á hann og ljúka við hann í skyndi“ og
ábyrgðar mannsins að hlýða hinni guðlegu
skipun í Matt. 28,18—20?
2) í ljósi gífurlegrar fólksfjölgunar víða um heim,
hvernig getur söfnuðurinn á fullnægjandi hátt
uppfyllt guðlega köllun sína að boða
fagnaðarerindið „sérhverri þjóð og kynkvísl og
tungu og lýð“ (Op. 14, 6. 7 j?
3) Ræðið The Desire of Ages, bls. 818, 819;
Christian Service, bls. 67, og Deiluna miklu, bls.
639, sem hugsanlegt svar við 2. spurningu.
Hvernig er hægt að vekja, hvetja og hervæða
alla safnaðarmeðlimina til fullrar samvinnu við
prestana í að ljúka starfinu og flýta fyrir komu
Krists?
4) Hvernig getur söfnuðurinn, á heimsvíðtækum
mælikvarða, hrundið af stað fullri þátttöku
leikmannanna með áherslu á slíkum aðferðum
sem Biblíurannsókn, dreifing á ritum,
vitnisburði frá húsi til húss, hjálparstarfsemi í
byggðarlaginu? Gæti vöntun á slíkri altækri
þátttöku seinkað komu Drottins
ófyrirsjáanlega?
5) Ætti að líta á vitnisburðarstarf hins kristna sem
nauðsynlegt skilyrði fyrir að verða meðlimur
safnaðarins? Hvernig myndi það styrkja
útbreiðslustarfið?
7) Ræðið Christian Service, bls. 72. Erum við sem
söfnuður fyllilega helguð þessari tegund
skipulags á kristnum vitnisburði?
Föstudagur 4. nóvember
VIÐB ÚIN END URKOMUNNI
Eftir Desmond B. Hills
í náð sinni og kærleika hefur Guð séð til þess
að allir sem óska þess geti gengið inn í
himininn.
Þessa viku höfum við séð að endurkoman er
aðlaðandi vegna þess að Jesús er miðdepill hennar
örugg vegna þess að Guð ábyrgist hana
í nánd vegna -.pádómlegra tákna sem sýna það
algjör vegna þess að við erfum eilíft líf.
Okkur hefur einnig oi'ðið ljóst að það er þörf á að
búa sig undir endurkomuna og að það er okkar
ábyrgð að boða hana.
Ég hugsa gjarnan um endurkomuna sem
dásamlegt mót. Við endurkomuna hittast
konungurinn og þegnar hans, og fjölskyldur og
foreldrar sameinast á ný og byrja gleðiríka samvist
um eilífar aldir. Lesturinn síðasta hvíldardag lagði
áherslu á þá staðreynd að miðdepill endurkomunnar
er persóna — hinn dásamlegi Drottinn Jesús. Það er
aðeins fyrir hann að nokkur maður getur verið
viðbúinn endurkomunni. Við eigum ekkert í sjálfum
okkur sem mælir með inngöngu okkar í ríkið. Við
vitum að það er ekki hægt að kaupa aðgöngumiða né
ávinna sér stað á himnum með eigin verkum.
Sama bókin sem lýsir guðsríkinu fullvissar okkur
um að innganga sé möguleg öllum sem þess óska.
Pétur fullvissar hinn trúaða að honum sé „geymd á
himnum“ (1. Pét. 1, 4) arfleifð. Himinninn er staður
sem er búinn undir viðbúið fólk. Þegar Jesús var á
þessari jörð sagði hann að hann færi burt að búa
okkur stað. (Jóh. 14,1—3.).
í óendanlegum kærleika sínum hefur Guð séð fyrir
því í Jesú að allir geti orðið reistir upp frá dauðum
eða ummyndaðir við endurkomuna. Hinsvegar neyðir
Guð engan til þess að búa sig undir að ganga inn í
guðsríkið. Þeir sem halda fast við syndina munu
útilokast sjálfkrafa. Þeir einir sem kjósa Jesúm sem
frelsara sinn og konung verða viðurkenndir af honum
sem væntanlegir borgarar. Örlögin ákvarðast af vali
en ekki tilviljun.
20