Bræðrabandið - 01.11.1977, Síða 21
í hverri kynslóð hefur Guð séð fyrir vottum sem
boðuðu sannleika þess tíma og hver skilyrðin væru
fyrir inngöngu í guðsríkið. Á tímum Gamla
Testamentisins voru ættfeður, t.d. Nói, spámenn t.d.
Samúel og konungar t.d. Davíð. Þá var líka
helgidómsþjónusta sem benti á frelsi fyrir
guðslambið. Á tímum Nýja Testamentisins voru
Jesús og postularnir. Eftir tímabil Nýja
Testamentisins átti Guð líka sína votta.
í okkar kynslóð heldur Guð áfram að vara íbúa
jarðarinnar við, og hjálpa þeim að búa sig undir
endurkomuna. Lítum á fjögur atriði: spádómleg
hreyfing, hreinsandi boðskapur, persónulegur
boðberi, hvítasunnu-prestþjónusta.
Spádómleg hreyfing
Guð hefur hrundið af stað spádómlegri hreyfingu á
hinum síðustu dögum til þess að boða síðasta
aðvörunarboðskapinn og til þess að sýna jarðarbúum
hvers Guð krefjist af þeim svo að þeir séu viðbúnir
endurkomunni sem í nánd er. Þrennt er það sem
vitnar um guðlegan uppruna hreyfingarinnar: hún
byrjaði nákvæmlega stundvíslega; hún er að uppfylla
alþjóðlegt hlutverk sitt sem búið var að segja fyrir;
og hún boðar þann boðskap sem búið var að segja
fyrir. Fólk þessarar hreyfingar er kallað „leifarnar" í
Ritningunni, sem er jafnvissulega hluti af kirkjunni
um allar aldir eins og söfnuðurinn á dögum
postulanna. Þetta er ekki nýr félagsskapur heldur
framhald safnaðarins í eyðimörkinni og safnaðarins á
tímabili Nýja testamentisins.
Söfnuður leifanna mun sigra. Opinberarinn
Jóhannes lýsir því yfir að boðskap englanna þriggja
eigi að boða „Sérhverri þjóð, og kynkvísl og tungu
og lýð.“ (Op. 14, 6). Þjónn Drottins segir: „Engillinn,
sem tekur undir boðskap þriðja engilsins, á að lýsa
öllum heiminum með dýrð sinni. Hér er greint frá
starfi, sem mun gæta um veröldina alla og máttur
þess mun verða áhrifamikill. Endurkomuhreyfingin
frá 1840—44 var dýrleg staðfesting á valdi Guðs.
Boðskapur fyrsta engilsins náði til allra
trúboðsstöðva í veröldinni, og í sumum löndum varð
meiri trúarvakning en orðið hefur í nokkru landi
síðan í siðbót sextándu aldar, en hin volduga
hreyfing, sem rís af síðasta boðskap þriðja engilsins,
mun taka henni fram.“ — Deilan mikla, bls. 638.
Spádómlega hreyfingin sem Guð hefur hi’undið af
stað til þess að búa heiminn undir komu Drottins
mun koma ætlunarverki sínu til leiðar:
Sannleikurinn mun sigra siðvenjur.
Hið góða mun sigra hið illa.
Guð mun sigra gullið.
Manns-sonurinn mun hrósa sigri yfir syndum
mannanna.
Ást á skaparanum mun verða ofar ást á hinu
skapaða.
Ljósmyndari við stórt dagblað tók við dagskipan
sinni og hljóp að bíl sínum og flýtti sér af stað. Hann
hafði ekki unnið lengi við þetta blað og var að reyna
að skapa sér gott álit. Hann varð svo niðursokkinn í
að horfa í kring um sig að hann lenti í harkalegum
árekstri við bíl sem kom á móti honum. Hann var
rauður í framan þegar lögreglan kom á vettvang, og
einnig ljósmyndarar sem fóru að taka myndir.
Verkefni hans þennan dag hafði verið að taka myndir
sem nota átti á stór spjöld um að gæta ávallt fyrst og
fremst fyllsta öryggis.
Aö setja upp skilti um öryggi
Hversu svipar þessu ekki til margra í
Aðventsöfnuðinum. Þeim er falið af Drottni Jesú
Kristi að kynna hann heiminum svo að karlar og
konur geti fundið fulla frelsun. Þeir eru sendir til þess
að reisa upp „skilti um öryggi," til að vara fólk við
komandi eyðingu. Skiltið sýnir boðskap englanna
þriggja í Op. 14, 6—12. Þetta er síðasta
aðvörunarskilti Guðs handa þessum heimi.
Aðventistar hinsvegar, á leið sinni eftir þjóðvegi
lífsins, fá oft mikinn áhuga á því sem er að sjá í
umhverfinu, í stað þess að leggja alla kraftana í
starfið sem þeim hefur verið falið. Þeir dást að
landslaginu — skemmtunum og fýsnum heimsins,
félagsskap heimsins, stöðum í heiminum.
Það virðist sem a.m.k. sumir sem játa sig vera
fylgjendur Krists hafi ákveðið að njóta þess sem
þessum heimi tilheyrir um stund áður en þeir taka til
við af alvöru undirbúning undir komu Krists. Aðrir
játa að þeir vanrækji að byggja sig upp með
andlegum stundum og persónulegri guðrækni, og enn
aðrir halda fast við ýmsar venjur sem eru þeim
kærar, þótt þeir viti að þessar venjur stöðva vöxtinn
„í Kristi.“
Ef við fáum of mikinn áhuga á skemmtunum og
lystisemdum þessa lífs, verðum of kærulaus um
andlegan vöxt, eða of löt í kristniboðsstarfi okkar, þá
stefnum við beint í árekstur. Rétt eins og
ljósmyndarinn lenti í árekstri við vinnu sína getum
við rekist á heiminn í erindagjörðum konungsins. Ef
til vill hafa einhverjir lent í harkalegum árekstri við
eðli holdsins og óska eftir að komast hjá öðru slíku
slysi. Allir þeir sem rannsaka orðið og skilja tímana
sem við lifum á þekkja þörfina á að vaka og biðja.
Þeir sem sannarlega þekkja frelsarann eru að biðja,
„Kom þú, Drottinn Jesú.“
Hreinsandi boðskapur
Hið annað sem Guð hefur gefið fólki sínu til að
hjálpa því að búa sig undir endurkomuna er
hreinsandi boðskapur. Boðberanum er lýst sem
„vottinum trúa og sanna“ og er enginn annar en
Jesús sjálfur. Boðskapurinn er skráður í
Opinberunarbókinni 3, 15—20 af Jóhannesi, og er
þekktur sem Laódíkeuboðskapurinn.
Um þetta segir Robert H. Pierson, formaður
aðalsamtakanna, „Við sjáum í þessum orðum
alvarlega áminningu, fagurt heimboð, dásamlega
21