Bræðrabandið - 01.11.1977, Blaðsíða 26
letrað, og í öllum birtast auðæfi máttar hans.
„Og er eilífðarárin líða fram, munu þau færa
mönnunum enn dýrlegri opinberanir um Guð og um
Krist. Eins og þekkingin er framsækin, þá mun
kærleikur, virðing og hamingja vaxa. Því meira sem
menn læra um Guð, þeim mun meiri verður aðdáunin
á eðli hans. Þegar Jesús opinberar þeim auðæfi
endurlausnarinnar og hið dásamlega afreksverk í
hinni miklu deilu við Satan, þá munu hjörtu hinna
endurleystu fagna í enn heitari hrifningu og frá sér
numdir munu þeir slá gullhörpurnar og tíu þúsund
sinnum tíu þúsundir og þúsundir þúsunda radda
munu fylla loftið máttugum lofsöngvum...
„Hin mikla deila er til lykta leidd. Synd og
syndarar eru ekki lengur til. Gjörvallur alheimurinn
er hreinn orðinn. Eitt hjarta samlyndis og fagnaðar
slær um óravíddir sköpunaraverksins. Frá honum,
sem skóp allt, flæðir líf og ljós og fögnuður um öll
svið hins endalausa geims. Frá hinni smæstu öreind
til hinnar stærstu veraldar, kunngjörta allir hlutir,
lifandi og dauðir, í skuggalausri fegurð sinni og
fullkomna fögnuði, að Guð sé kærleikur.“ — Deilan
mikla, bls. 707—708.
Þegar við nú ljúkum þessari bænaviku langar mig
til að koma með alvarlega hvatningu. Mig langar að
hitta hvern einasta ykkar í þessu dýrlega landi
„handan endurkomunnar". Ég er viss um að þið viljið
vera þar. Hvert okkar verður þar vegna þess að við
höfum kosið að vera þar, — ákveðið að vera þar, lagt
áform um að vera þar!
Nú er dagurinn til þess að sigrast á synd í lífi okkar
fyrir kraft Anda Krists sem dvelur í okkur. Nú er
dagurinn til þess að mynda lyndiseinkunnir sem
munu gleðja hjarta frelsarans.
Núna, þennan morgun, ef þú veist af synd í lífi
þínu, viltu þá ekki koma með þá synd til Jesú,
einmitt núna, og láta hann fyrirgefa þér og hreinsa
þig? Viltu ekki núna hefja göngu með meistaranum á
ný? Hér og nú er til reiðu hjálp og von um frið og
fögnuð „handan endurkomunnar."
Til umrϚu
1) Hvernig get ég flýtt fyrir endurkomu Krists?
(The Acts of the Apostles, bls. 11; The Desire of
Ages, bls. 633; Education, bls. 271; Evangelism,
bls. 696, 697; Testimonies, 9. bindi bls. 58.)
Boðskapur til safnaðarins bls. 63—69.
2) Get ég flýtt fyrir endurkomunni? Ef svo,
hvernig? (The Acts of the Apostles, bls. 600;
Testimonies, 6. bindi, bls. 475; Sama, 8. bindi,
bls. 22.).
3) Hvað þýðir það þegar sagt er að Jesús muni
koma sem þjófur að nóttu? (The Desire of Ages,
bls. 635; Deilan mikla, bls. 384.
4) Hver mun verða afstaða fólks Guðs til
endurkomunnar? (Messages to Young People,
bls. 166; Early Writings, bls. 110; Deilan mikla,
bls. 667—668.).
26