Bræðrabandið - 01.11.1977, Blaðsíða 27

Bræðrabandið - 01.11.1977, Blaðsíða 27
FRÉTTIR BASAR í REYKJAVÍK Systrafélagið Alfa £ Reykjavík hélt basar að Hallveigarstöðum þann 9.október s.l. Mjög fallegir munir voru á boðstólum og mikið úrval. Var mikil aðsókn og seldust nær allir mun- irnir sem sýnir að meira hefði selst ef til hefði verið. Á basarnum seld t- ist fyrir kr. 325.000.- Nokkru fyrir 9.október var farið að hringja að Hallveigarstöðum og spyrja um basarinn. Synilega er beðið eftir barsarnim þvi að hann er þekktur fyrir að hafa á boðstólum vandaðar vörur á sanngjörnu verði. Þeir sem sendu vörur á basarinn og hjálpuðu til við afgreiðslu eiga þakkir skyldar. Starfsemi systranna er veiga mikill þáttur í verki safn- aðrins og verður það seint fullmetið. DEILAN MIKLA Áríðandi er að systkinin muni eftir þessari bók og selji hana og gefi. Útsöluverð bókarinnar er kr. 2800. Safnaðarsystkini sem kaupa bókina hjá forlaginu fá hana á kr. 2100. NÚ hefur verið tekin ákvörðun um það að safnaðarsystkini geti fengið bókina á kr. 1635 séu keypt 10 eintök eða fleiri í einu. Er þetta gert til að örva systkini til að gefa bókina og stuðla þannig að dreifingu þessarar þýðingarmiklu bókar. DESIRE OF AGES Ákveðið hefur verið að þýða bók E.G.W Desire of Ages sem fjallar um ævi Jesú Krists. Verkið er hafið og vinnur það Gissur Ó.Erlingsson sá sami sem þýddi Deiluna miklu. VESTMANNAEYJAR Föstudaginn 14.október hefjast £ Aðventkirkjunni í Vestmannaeyjum opin- berar samkomur sem standa munu nokkrar vikur. Steinþór ÞÓrðarson og fleiri munu tala og ungt fólk frá fastalandi mun aðstoða eyjaskeggja í söng og öðru er að samkomuhaldi lýtur. Söfnuðinum í Vestmannaeyjum barst góð gjöf á liðnu vori er þeirri fjárhæð varið í að standa straum af kostnaði við sam- komurnar. BÆNAVIKAN Þetta eintak Bræðrabandsins er helgað bænavikunni sem stendur yfir 29.október til 5.nóveniber. Lestrarn- ir verða lesnir í öllum söfnuðum á auglýstum samkomutíma. Systkinin eru hvött til að sækja þessar andlegu stundir til að hlýða á þann boðskap sem undirbúinn hefur verið og leita Guðs £ bæn. Börn Guðs þurfa á þv£ að halda að fara afs£ðis og njóta samvista við Guð. Bænavikan er til þess að minna okkur á andleg verðmæti og nauð- syn okkar á samfélagi við frelsarann. Andi spádómsins hvetur okkur til "að leggja hart að okkur að sækja samkomur Guðs barna." Það gefur til kynna að börn Guðs ættu ávallt að sækja sam- komur safnaðarins nema sérstakar ástæður séu fyrir hendi. Á þessari "yfirstandandi vondu öld" þurfum við sannarlega á bænaviku að halda sem færir okkur andlega vakningu. S.B. AUKA-AÐALFUN DUR Stjórn Samtaka Sjöunda dags aðventista á íslandi boðar hér með til auka-aðalfundar um elliheimilis- málið. Fundurinn hefst £ Aðvent- kirkjunni Reykjav£k hv£ldardaginn 10. desember kl.15. Söfnuðirnir eru beðnir að senda fulltrúalista til ritara, Ólafs Kristinssonar, eigi s£ðar en l.desember n.k. Sömu reglur gilda \mi fulltrúafjölda sem um venjulegan aðalfund væri að ræða. JÓLAGJÖF TIL STARFSINS INNANLANDS Samtökin eru með £ undirbúningi útgáfu nýrra barnalex£a fyrir hv£ldar- dagsskólann. Verða þær gefnar út prentaðar, myndskreyttar og £ bókar- formi. Útgáfa þessi verður að sjálf- sögðu dýr vegna fárra útgefinna ein- taka. Ákveðið hefur verið að fórnin 17.desember renni til þessarar útgáfu. 27

x

Bræðrabandið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.