Bræðrabandið - 01.01.1978, Side 2

Bræðrabandið - 01.01.1978, Side 2
í upphafi árs stöndum við á vega- mótum. Að baki er árið 1977. Þar er skráð saga sem við getum ekki breytt - glötuð tækifæri, brostnar vonir en líka sigrar fyrir náð Krists. Framtindan er árið 1978. Þegar við horfum þangað minnvimst við orða spá- mannsins: "Það eru engin takmörk fyrir nytsemi þess manns sem ýtir eigin vilja til hliðar og gefior Heilög- um anda svigrúm til að verka á hjarta sitt og lifir algerlega Guði helguðu lífi." Boðskapur til safnaðrins bls.110. Þegar Páll postuli stóð sem við nú á tímamótum í lífi sínu skrifaði hann: "Ég gleymi því sem að baki er en seil- ist eftir því sem fyrir framan er og keppi þannig að markinu." Fil.3,14. Engum finnst gott að vera gleyminn en samt er gott að geta gleymt. Vissum hlutimi má samt ekki gleyma: handleiðslu Guðs, forsjón hans og umhyggju á liðnum tíma. Við megum jafnvel ekki gleyma mistökimi ef við mættum læra af þeim. En ef við getum ekki tekist á við vanda líðan'di stundar vegna þess að við erum í sorg og sút yfir mistökum og óförum fortíðarinnar væri betra að vera gleyminn. Við gerðum vel við áramót að lesa síðasta kaflann í Veginum til Krists: Fögnuður í Drottni. Það eru margar blikur á lofti í íslensku þjóðlífi í dag. Margs konar sjúkleikamerki hafa komið fram. Spilling og glæpir virðast magnast. Þjóðin lifir um efni fram og safnar háum skuldaupphæðum. TÍmarnir munu ekki batna. Minnumst þess að við lifum á einu hættulegasta skeiði sög- unnar. Stórfelldar imnbreytingar eiga sér stað í heiminum. Verðmætaskyn manna breytist hratt. Breytingar sem áður fyrr gerðust á heilli öld verða nú á örfáum árum. Varpað er fyrir róða reglum um siðferði og hegðun sem um langan aldur hafa verið taldar eðli- legar og sjálfsagðar. Það sem áður var gert í skjóli nætur fer nú fram í allra augsýn. Ofbeldi og voðaverk setja mikinn svip á mannlegt líf. Ný og ný vandamál skjóta upp kollinvun sem ekki virðast vera á valdi manna að leysa. Það er augljóst að við búum í ráðvilltum heimi. Guðs orð hefur að geyma svör við þeim vanda sem við er að etja en mannkynið vill ekki hlíta leiðsögn Drottins. 2

x

Bræðrabandið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.