Bræðrabandið - 01.01.1978, Blaðsíða 7

Bræðrabandið - 01.01.1978, Blaðsíða 7
OG HEGÐUN 4- KENNETH H. WOOD Vitnisburður þessara tveggja einstaklinga, Reed og Brown, er áhuga- veður fyrir Sjöunda dags aðventista sökvnn þess að um marga áratugi hefur "heilsuumbót" verið hluti af boðskap safnaðarins. Aðventistar hafa lýst því yfir að það séu skýr tengsl milli ástands líkamans og ástands hugarins. Þeir hafa kennt að einstaklingur sem fylgir góðum heilsureglum sé betur fær nm það að hugsa skýrt og skilja andlegan sannleika en sá sem brýtur meginreglur heilsunnar. Röksemd þeirra hefur verið sú að líklegt er að góður magi og gott skap fari saman og gagnstætt að einstaklingur sem ertir maga sinn með kryddi og ómeltanlegum efnum sé líkleg- ur til að vera fyrtinn í lund. Aðvent- istar hafa ekki látið á sig fá gagnrýni þeirra sem hafa reynt að benda á að áhersla aðventista á næringu og góðar heilsuvenjur séu hjálpræði fyrir verk og hafa þeir boðað kosti hvíldar, hreins lofts, hreins vatns, jurtafæðis og trausts á Guð. Góð heilsa og góð hegðun eru náskyld hafa þeir sagt. Afstaða aðventista til góðrar heilsu byggist á þeirri hugsun að líta á alla mannvéruna sem eina heild. SÚ afstaða byggist aftur á Ritningunni. Þó að Biblían segi ekki mikið um sambandið á milli líkamlegrar og andlegrar heilsu gerir hún það ljóst að einstaklingurinn er ein órofa heild og að Guð varðar um það hvernig við meðhöndlum líkama okkar. Þegar Páll postuli skrifaði til Korintimianna um illar afleiðingar hór- dóms sagði hcinn: "Vitið þér ekki að líkamir yðar eru limir Krists?... eða vitið þér ekki að líkami yðar er musteri Heilags anda í yður sem þér hafið frá Guði? Og ekki eruð þér yðar eigin, því að þér eru verði keyptir. Vegsamið því Guð í líkama yðar" (l.Kor. 6,15-20). Síðar í sama bréfinu skrifar Páll: "Hvort sem þér því etið eða drekkið eða hvað sem þér gjörið þá gjörið það allt Guði til dýrðar" (10,31).Við Rómverjana sagði hann: "Svo áminni ég yður, bræður, að þér vegna miskunnar Guðs bjóðið fram líkami yðar að lifandi heilagri, Guði þóknanlegri fórn og er það skynsamleg guðsdýrkun af yðar hendi."(Róm.12,1). 1 ljósi þessara ráðlegginga geta kristnir menn ekki með góðri samvisku látið undan spilltri matarlyst, valdið líkamskerfinu erfiðleikum með því að neyta sykurs og fitu, drekka áfenga diykki og reykja, ofþyngt huga sínum, hjarta og taugum eða gert neitt það sem skaðar heilsuna. FYLLRI VITNESKJA UM MEGINREGLUR í kærleika sínum og náð hefur Guð fyrir Ellen G.White veitt síðustu kynslóð manna fyllri vitneskju um höfuðmeginreglur heilsusamlegra lifnaðarhátta eins og þær eru gefnar í Ritni'ngunni og gert lýðum ljóst það nána samband sem er á milli mataræð- is og hegðunar. Takið eftir þessum setningum úr bókinni Counsels on Diet and Foods (Ráðleggingar um mataræði og fæðu): "Eftirlátssemi við matar- lystina er orsök ágreinings, deilu og ósamlyndis og margs annars ills. Menn eru óþolinmóðir í tali, óvingjarn- legir í framkomu og óheiðarlegir í líferni sínu og láta eftir ástríðum sínum og allt þetta vegna þess að taugar heilans eru sjúkar sökum þess að maganum hafði verið misboðið." 7

x

Bræðrabandið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.