Bræðrabandið - 01.01.1978, Síða 10
\
yfir þá. "Og konungar jaröarinnar og
gæðingarnir og hersveitarforingjarnir
og auðmennirnir og makarmennirnir og
hver þræll og þegn fálu sig í hellum
og í hömrum fjalla. Og þeir segja við
fjöllin og hamrana: Hrynjið yfir oss,
og felið oss fyrir ásjónu hans,sem í
hásætinu situr og fyrir reiði lambs-
ins; því að kominn er dagurinn, hinn
mikli dagur reiði þeirra, og hver mun
geta staðist?" (Op.6,15.16).
Hefur nokkur áður séð svo skelfi-
lega sjón? Aldrei.' Hefur nokkur
áður heyrt svo lamandi hljóma? Aldreií
Hinir óguðlegu eru svo yfir sig komnir
yfir því sem þeir sjá og heyra að þeir
' biðja fjöllin að hylja sig. Og þá mun
básúnan hljóma. " Og hann mun senda út
engla sína með hljómsterkum lúðri, og
þeir munu safna saman hans útvöldum frá
áttunum fjórum, himinsendanna á milli."
(Matt.24,31). Á öðrum stað segir Páll:
"Sjá, ég segi yður leyndardóm: Vér munum
ekki allir sofna, en allir munum vér
umbreytast í einni svipan, á einu auga-
bragði, við hinn síðasta lúður, því að
lúðurinn mun gjalla, og hinir dauðu munu
upp rísa óforgengilegir, og~vér munum
umbreytast" (1.Kor.51.52).
EKKI "TVÆR" ENDURKOMUR
Þeir sem halda fram kenningunni irni
það að Guðs börn verði hrifin leynilega
segja að nokkrum árum eftir að Kristur
komi leynilega og hrífi hina réttlátu
í burtu muni hann koma í dýrð. En
Biblían talar hvergi um tvær endurkomur.
Það er ein endurkoma og hún fer fram
fyrir opnum tjöldum. Hún verður svo
vel sýnileg öllum að það yrði útilokað
að vera á lífi og ekki að sjá hana.
Aldrei í sögunni verður eins mikil
dýrð eins og við endurkomuna. Dýrð
Guðs er svo skær að hún mun eyða óguð-
legum. Hugmyndin um leynilega komu
og "dýrðaropinberun" á eftir er algjör-
lega óbiblíuleg. Það er ein dýrleg
endurkoma. "Og þá munu menn sjá manns-
soninn komandi í skýjum með miklum
mætti og dýrð. Og þá mun hann senda
út englana og hann mun safna saman
sínum útvöldum frá áttunum f jórxam, frá
endimörkum jarðar til endimarka himins."
(Mark.13,26.27).
Guðs börn verða sannarlega hrifin
í burt og aörir skildir eftir. En
eins og við höfum séð verður þetta
ekki leynilegur atburður. Hann verður
gerður í augsýn alls mannkynsins og alls
alheimsins.
Það þýðingarmesta hvað okkur snertir
er að vera tilbúin fyrir þennan viðburð.
Þetta mun verða upphaf dásamlegrar fram-
tiðar fyrir alla þá sem verða tilbúnir.
Þeir munu eiga hlut í endurkomunni fyrir
augsýn allra. Þeir eru hrifnir upp frá
jörðinni til þess að hitta Drottin.
í loftinu og verða teknir til himins.
Og síðan munu þeir verða með Drottni
alla tíma. *
"Við þurfum að læra það að eftir-
látssemi við matarlystina er stærsta
hindrunin fyrir andlegum þroska og
helgun sálarinnar." bls.45.
"Engin sem játar guðrækni ætti að
vera hiröulaus xom heilsu líkamans
eða blekkja sig með því að bindindis-
leysi sé engin synd og hafi engin
áhrif á andlegt líf þeirra. Náin
tengsl eru á milli hins líkamlega
og siðferðilega eðlis." bls.62.
"Guð ætlast til að mikil áhersla
sé lögð á heilsuumbót og að það sé
efni sem almenningur sé hvattur til að
athuga því það er ómögulegt fyrir fólk
meðan það heldur í syndugar og heilsu-
spillandi venjur sínar að greina
heilagan sannleika sem á að helga það,
göfga og fága og vera gert hæft fyrir
samfélag heilagra engla." bls.70
Þar sem vaknaður er mikill áhugi
fyrir heilsusamlegu lífi ættu aðventist-
ar að veita heilsuiambót meiri athygli
með því að lifa hana og boða hana.
Ef söfnuðurinn sýndi meiri áhuga á
þeim oombótiam sem Guð sjálfur leitast
við að nota til þess að gera hann hæfan
fyrir komu sína mundi áhrif hans vera
miklu meiri en þau nú eru... Satan og
árar hans eru að leitast við að hindra
þetta siðbótastarf og munu gera allt
sem þeir geta til þess að valda þeim
óþægindum og vandræðum sem af hjarta
taka þátt í því. Samt ætti enginn að
missa kjarkinn yfir þessu eða hætta
viðleitni sinni sökum þess....
fylgjendior Krists ættu ekki að tala um
mistök eða vonbrigöi en fremur að
minnast þess mikla gjalds sem greitt
var til að bjarga manninum." Sama
bók bls.76.77. *
10