Bræðrabandið - 01.11.1980, Blaðsíða 3

Bræðrabandið - 01.11.1980, Blaðsíða 3
EKKIER ÖLL LÆKNING FRÁ GUÐI vegna þess að þeir eru fastir við spangirnar. Vegna góðvilja eins vinar míns, átti ég nýlega því láni að fagna að heimsækja son minn, ættingja og gamla vini í öðru fylki. í síðustu vikunni sem ég dvaldist þar, buðu vinir mínir mér að koma með sér á samkomur sem haldnar voru út á landsbyggðinni á vegum safnaðarins sem þeir tilheyrðu og hélt sunnudaginn helgan. Þær voru haldnar á fögrim mótstað. Ég sá ekkert athugavert við að fara með þeim - satt að segja virtist fólkið þar vera mjög sannkristið og ég var ánægð með sam- komurnar. Þar sem ég hef sérstaka ánægju af tónlist, naut ég út í ystu æsar tónlistarinnar sem flutt var yfir þessa helgi. Á sunnudagsmorgninum var ég hvött til að koma fram og gangast undir lækn- ingu. Hefði ég lesið það sem er að finna á blaðsíðu 124 og 125 í bókinni Early Writings eftir Ellen White, hefði ég ekki þurft að fara í gegnum reynslu vikunnar sem á eftir fylgdi, en það er versta vika sem ég hefi lifað. Þegar ég kom fram til að verða læknuð, fann ég ekki fyrir neinu fyrr en ég var komin til baka við hlið vinar míns. Þá fann ég til hitakenndar í handleggnum. Ég leit niður og sá að éq qat opnað hendina. Ég gat kreppt hnefann. Hnúturinn, þar sem sundur- skornar sinarnar höfðu dregist saman, var horfinn. Ég fór að gráta og einnig þeir sem voru í kringum mig. Ég var ekki viss um hvort ég gæti gengið, þar sem engin leið var að taka spangirnar af á meðal almennings. Ég átti að fljúga heim á mánudags- morgninum. Þegar við komum til baka á heimili vinar míns sunnudagskvöldið, tók ég spangirnar af mér og reyndi að standa. Ég gat staðið, jafnvel þó fæturnir væru reikandi eins og á ný- fæddum kálfi. Við grétum aftur saman og lofuðum Drottinn. Mér fannst ég svífal ímyndið ykkur hvernig mér leið eftir að hafa ekki gengið í 11 ár.' Beinaskurðlæknirinn hafði lagt ríkt á við mig að fara varlega vegna þess að vinstri öklinn gæti brotnað við minnsta þrýsting. Skór án spanga Áður en ég fór í flugvélina sem flutti mig heim, fóru vinir mínir með mig í skóbúð og keyptu handa mér fyrstu lausu skóna sem ég hafði átt í ellefu ár. Ég kom heim með spangirnar í hönldunum. Ég hringdi í eina af safnaðar- vinkonum mínum og bað hana að sækja mig á flugvöllinn. Hún gat ekki trúað sínum eigin augum. Hún sagði safnaðar- prestinum frá þessu. Hann hafði sínar efasemdir um þetta, en svaraði þessu til: "Ég verð að leggja þetta fyrir í bæn og fara að heimsækja hana." Ég varð undrandi yfir að þessi vitri, guðhræddi maður virtist ekki glaður yfir því kraftaverki sem hafði gerst i lífi mínu. Hann útskýrði fyrir mér að honum fyndist ég verða að ganga úr skugga um að það sem gerst hafði væri frá Guði en ekki frá Satan. Hann las fyrir mig það sem stendur í Early Writings bls.124 og 125. Ég fór að gera mér grein fyrir að ef til vill hefði það ekki verið samkvæmt vilja Guðs að ég sótti þessar samkomur. Ellen White segir okkur að þegar við gerum það "getum við orðið fyrir höggum óvinarins." Á síðustu dögum mun Satan hafa 3

x

Bræðrabandið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.