Bræðrabandið - 01.11.1980, Page 8

Bræðrabandið - 01.11.1980, Page 8
^bcrnis ticr obbur aö fjalöa jólin? "JÓlin nálgast", þetta kveður við vítt og breitt. Þetta er fagnaðartírai fyrir æskuna - fyrir fulltíða fólk og jafnvel fyrir hina öldruðu. En hvað eru jólin, að þeim sé svo mikill gaumur gefinn? Talið er að 25.des. sé fæðingardag- ur Jesú Krists og að halda þann dag hátíðlegan hefur orðið vinsæll og út- breiddur vani. ÞÓ er engin vissa fyrir því að við séum með því að halda upp á hinn raunverulega fæðingardag Jesú. Sagan veitir enga fullvissu um það. Biblían segir ekkert um stund þessa viðburðar. Hefði Guð talið vitneskjuna um þetta vera nauðsynlega hjálpræði okkar, hefði hann veitt okkur hana gegnum spámenn sína og postula. En þögn Biblíunnar um þetta mál er sönnun þess að það sé okkur hulið samkvæmt viskuráði Guðs. í visku sinni faldi Guð staðinn þar sem Móse var grafinn. Guð greftraði hann og reisti hann síðar upp og nam hann upp til himins. Þannig kom hann í veg fyrir hjáguða dýrkun. Sá, sem fólkið hafði þjarmað svo að og móðgað meðan hann starfaði á meðal þess að framkoma þess hefði reynst hverjum manni ofraun - var allt að því tilbeð- inn eins og Guð, eftir dauða sinn. Ástæðan fyrir því að fæðingar- dagur Krists er mönnum hulinn, er sú að forða því, að hann hlyti þann heiður, sem Kristi, frelsara mannkynsins, einum ber. Þar sem jólin eru haldin sem fæð- ingarhátíð Jesú og börnum hefur verið innrætt að þetta sé gleðinnar hátíð - þá mun það reynast erfitt að láta þennan tíma líða án þess að honum sé nokkur gaumur gefinn. Hægt er að láta

x

Bræðrabandið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.