Bræðrabandið - 01.11.1980, Page 9

Bræðrabandið - 01.11.1980, Page 9
hann þjóna mjög góðum tilgangi. Varlega skyldi farið með æskuna. Á jólunum ber ekki að láta hana leita eigin skeramtunar í hégóma og lélegri dægrastyttingu, sem er skaðleg and- legu lífi. Foreldrar geta stjórnað þessum málum með því að snúa hjörtum barna sinna til Guðs, að málefni hans og velferð annarra manna. Foreldrar verða að leggja sig vel fram í því að hafa heillavænleg áhrif á skemmtanalíf barna sinna í stað þess að ráðast á það með ströngum regl- um. Löngun þeirra til að gefa gjafir máileiða inn á hreinar og helgar braut- ir - svo að þær verði til blessunar og efli hið mikla verk, sem Jesús kom til að framkvæma í heiminum. Sjálfs- afneitun og fórn auðkenndu lífsstefnu hans. Þetta ætti einnig að auðkenna lífstefnu okkar sem játum að elska Jesúm. Hátíðin nálgast óðum með gjöfum sínum, ungir og gamlir hugleiða hvað þeir geti gefið vinum sínum. Það er ánægjulegt að taka á móti gjöf - hversu lítil sem hún kann að vera - frá þeim sem okkur þykir vænt um, hún sýnir að við erum ekki gleymd - hún tengir okkur nánar vinum okkar. Það er rétt að veita öðrum tákn vináttu og kærleika, ef það verður ekki til þess að við gleymum Guði, besta vini okkar. Við ættum að velja gjafir sem veita vinum okkar raunverulegt gagn. Ég mæli með bókum, sem auka skiln- ing manna á orði Guðs og glæða áhugann á því að gera vilja hans. Gefið lestrar- efni fyrir hin löngu vetrarkvöld. Marga skortir lestrarefni um hinn tímabæra sannleika. Hér eru opnir möguleikar til að verja peningum á hyggilegan hátt. Börnin þurfa að hafa heilnæmt lestrarefni. Peningum sem margir verja til að kaupa gagnslaus leikföng og sælgæti er betur varið til að kaupa ^óðar bækur. Hátíðarhald jóla og nýárs ætti að miða að því að gleðja bágstadda. Það er Guði þóknanlegt að þeim sé hjálpað, sem hafa fyrir mörgimi að sjá. Foreldrar ættu ekki að líta svo á að það sé syndsamlegt að hafa jólatré í kirkjunni til ánægju fyrir meðlimi hvíldardagsskólans. Það getur orðið til blessunar. Látum hugann beinast að góðverkum. Tilgangur slikra sam- koma ætti aldrei að vera sá einn að fólk skemmti sér. Þótt sumir kunni að vilja breyta slíku í kæruleysislegt gaman, getur það orðið öðrum mjög gagn- legt. Ég er fullviss um það að hægt er að koma á saklausu gamni í stað hins, sem hefur siðspillandi áhrif. Viljið þið ekki hefjast handa kristnu bræður og systur og skipuleggja þetta svo að það sé ekki þurrt og óað- laðandi - heldur fullt af saklausri ánægju sem hefur á sér innsigli himins- ins. Ég veit að hinir fátækari munu sjá ljós r þessu. Hinir velstæðu ættu einnig að sýna því áhuga og gefa í hlutfalli við það, sem Guð hefur gefið þeim. Mættu bækur himinsins sýna að þessi jól verði betri en þau hafa verið nokkru sinni áður vegna gjafa þeirra, sem færðar verða verki Guðs til upp- byggingar rrki hans." The Adventist Home bls.477-483.

x

Bræðrabandið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.