Bræðrabandið - 01.11.1980, Qupperneq 10

Bræðrabandið - 01.11.1980, Qupperneq 10
ER ÞAÐ EKKI EINKENNILEGT að við biðjum svo sjaldan um það að lyndis- einkunn okkar breytist, - en svo oft um að krinqumstæður okkar breytist? Alla vikuna eigum við að hafa hvíldardaginn í huga og undirbúa helgi- hald hans, samkvæmt boðorðinu. ÞÓ ætti ekki að halda hvíldardaginn af þvi einu, að það sé lagalegt fyrirmæli. í öllu því, sem snertir framför í Guðs verki, þurfa sigrarnir að vinnast í fjölskyldulífinu. Það er þar, sem undirbúningur hvíldardagsins á að hefjast. Alla daga vikunnar verða foreldrar að hafa í huga að heimilið á að vera skóli, þar sem börnin læra að hafa viðbúnað fyrir himneska heimilið. Bæði orð og verk þeirra ættu að vitna um þetta. Jafn- vel ekkert orð, sem börnin hafa ekki gott af að heyra, ætti að líða þeim af vörum. Foreldrar, vandið daglegt líf ykkar svo, eins og því sé lifað fyrir augliti Guðs. Hann hefur gefið ykkur börnin til þess að ala þau upp fyrir sig. Alið upp þennan litla söfnuð í heimili ykkar þannig, að allir séu undir það búnir að tilbiðja Guð í helgidómi hans á hvíldardeginum. Kvöld og morgna ættuð þið að bera börn ykkar fram fyrir hann, sem hefur endurleyst þau. Kennið þeim að það sé heilög skylda og forréttindi þeirra að elska Guð og þjóna honum. Enda þótt undirbúningur hvíldar- dagsins eigi að gerast alla vikuna, á föstudagurinn þó að vera sérstakur undirbúningsdagur. Fyrir munn Móse talaði Drottinn svo til israels: "Á morgun er hvíldardagur, heilagur hvíldardagur Drottins. Bakið það sem þér viljið baka og sjóðið það, sem þér viljið sjóða, en allt það, sem af gengur, skuluð þér leggja fyrir og geyma til morguns." "FÓlkið fór á víð og dreif og tíndi og þeir möluðu það í handkvörnum eða steyttu það í mortéli, suðu því næst í pottum og gjörðu úr því kökur, en það var á bragðið eins og olíu- kökur." 2.MÓs.16,23} 4.MÓs.ll,8. JÚ, það var ýmislegt, sem þurfti að gera til að matbúa brauðið, sem ísraels- mönnum var sent af himnum. Samkvæmt boði Drottins, átti þetta að gerast á föstudeginum, undirbúningsdeginum. Þetta var prófraun á fólkið. Með því vildi Guð leiða í ljós, hvort menn vildu hdlda hvíldardaginn heilagan. Margir þarfnast leiðbeiningar um það hvernig á að koma fram á guðsþjón^ ustu hvíldardagsins. Það er ekki við- eigandi að koma fram fyrir auglit Guðs í þeim fötum, sem menn ganga í daglega. Allir ættu að gæta þess að klæðast sér- stökum fötum á hvíldardögum, þegar farið er í hús Guðs. Enda þótt við höfum ekki áhuga fyrir hégómlegum skrautfatnaði, megum við á hinn bóginn ekki sýna smekkleysi í ytra útliti. Guðs börnum ber að vera snyrti- leg bæði hið innra og ytra. Á hvíldar- deginum ættum við ekki að laga til föt- in okkar eða gera við þau, ekki að mat- reiða eða verja honum til skemmtanalífs á nokkurn hátt. Fyrir sólsetur ætti allt tímanlegt starf að vera lagt niður, og allt í heimilinu fært í lag. For- eldrar, útskýrið starf ykkar og tilgang^ inn með því fyrir bömum ykkar og venj- ió þau við að taka þátt í öllum undir- búningi með ykkur, svo hægt sé að halda hvíldardaainn samkvæmt boðorðinu. Við ættum að temja okkur nákvæmni hvað viðvíkur byrjun og endi hvíldar- dagsins. Munum eftir því, að hvert augnablik er heilagt. Ef mögulegt er ættu atvinnurekendur að gefa vinnandi fólki sínu frí frá hádegi á föstudögum að vetrinum, svo að tími vinnist til undirbúnings hvíldardeginum og hægt séað bjóða dag Drottins velkominn í ró og næði. Þá er það eitt enn, sem ekki má gleymast að gera á undirbúningsdeginum og það er að færa í lag hvað eina sem kann að vera í ólagi manna í milli. Hvort sem það nú er milli bræðra í söfnuðinum eða milli fjölskyldumeðlima 10

x

Bræðrabandið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.