Bræðrabandið - 01.11.1980, Qupperneq 15
Frá stcirfinu
Basar Systrafélagsins Alfa í
Reykjavík var haldinn að Hallveigar-
stöðum 12.október kl.2 e.h. Basarinn
gekk vel vegna góðrar þátttöku safn-
aðarsystkina nú sem fyrr. Seldar
voru alls kyns handavinnuvörur og
kökur fyrir kr. 950.050
peningagjafir kr. 110.000
Alls kr. 1.060.050
Flóamarkaðurinn gekk einnig vel.
Hann var haldinn 9..nóvember að
Ingólfsstræti 19. Þar komu inn
190.000. Kostnaður við þetta allt
verður í kringum 100.000. Það eru
auglýsingar og húsaleiga að Hall-
veigarstöðum. Við sem höfum haft
með þetta að gjöra viljum þakka
alla aðstoð og hjálp við þessi störf.
Starfsemi Systrafélagsins hefur
eins og þið vitið fengið nýtt hús-
pláss. Herbergin sem við fengum
þurftum við að standsetja, mála,
veggfóðra og fleira. Hér vil ég
koma á framfæri þakklæti til Sigríðar
Guðmundsdóttur og Kristrúnar, dóttur
hennar, fyrir peningagjöf að upphæð
kr. 25.000 og er það styrkur til
systrafélagsins vegna lagfæringa á
vinnuplássi okkar. Þetta allt viljum
við þakka af alhug og vitum að Guð
blessar alla sem gefa og starfa í trú.
Stjórnin.
I
I
I
Miðstöð Samtakanna
við Skólavörðustíg 16A
SKRIFSTOFUR — VERZLUN — PRENTSMIÐJA
Með Guós hjálp hefi e'g
ákveðió ad leggja fram til
kaupa á þessu hásnœði
Árið 1980 Árið 1981 Árið 1982
Kr.......... Kr........... Kr..........
Undirskrift
Um leið og við þökkum kærlega bæði
stór og góð framlög sem þegar hafa
borist, viljum við hvetja þá sem hafa
ákveðið að vera með í þessu átaki en
hafa enn ekki gert það, að senda fram-
lag sitt sem fyrst, því enn vantar
nokkuð upp á það sem stefnt er að og
nauðsynlegt er til að greiða afborgun-
ina núna um áramótin. Aftur hjartans
þökk og Guð blessi hvern og einn bæði
þá sem gefið hafa og þá sem áforma að
gera svo.
VILTU
KOMAST Á MÓT?
■■■
Tvær stúlkur í Suður-Eþíópíu
gengu í fjóra daga til þess að komast
á sumarmót í Hangeda í Wolyetta héraði
Suður-Eþíópíu. Þær vildu ekki missa
af blessunum mótsins og félagslegum
samverustundum með trúsystkinum.
Orgelsjóður ReykjavíkursafnaÓar
Staðan í október 1980 1.353.941
Guðríður Magnúsdóttir 5.000
N.N. 20.000
jónína H.Snorradóttir 50.000
Samtals: 1.428.941
ORÐSENDING FRÁ BRÆÐRABANDINU .
Þeir sem fá blaðið sent til útlanda
eru vinsamlega beðnir að greiða póst-
burðargjaldið gkr. 1900 hafi það ekki
verið gert þegar.
BBfEDRflBflnDl
Ritstjóri og ábyrgðarmaður
ERLING SNORRASON
Utgefendur
S. D ADVENTISTAR A ÍSLANDI
15