Bræðrabandið - 01.05.1985, Blaðsíða 14

Bræðrabandið - 01.05.1985, Blaðsíða 14
Varðandi búrekstur Hlíðardalsskóla hefur komið fram að framlag til skólans er aðallega í formi framleiddrar vöru. Hús og tæki eru orðin slitin en þó starfræk - og má þar þakka fyrirmyndar umgengni bústjórans. Nefndin hefur lánað skólanum búr sem ætluð eru fyrir hænsni, en mætti einnig nota fyrir kanínur eða loðdýra- rækt. Nefndin telur mikilvægt að einblína ekki á þá sauðfjárræktun sem á staðnum er heldur að möguleikar séu á f jölbreyttari rekstri - sérstaklega með tilliti til þeirrar grósku sem er í landbúnaði á íslandi. Varðandi útirækt og gróðurhús Hlíðardalsskóla hefur eftirfarandi komið fram: Gróðurhús hafa ekki fengið það viðhald sem nauðsynlegt er. Nú er svo komið að skipta verður um þak í þeim tveim húsum sem þarna eru. Annað viðhald er einnig nauðsynlegt. Garður hefur verið ruddur um 8000m2 þar af 4000m2 þar sem hitalögn er undir. Ekki hefur enn tekist að fá það framlag frá gróðurrækt sem þarf að vera en nefndinni þykir full ástæða til að skólinn reyni enn að koma því í betra horf. Nú hefur verið ráðinn starfmaður við húsin og áætlanir um endurnýjun á þaki húsanna komnar á rekspöl. Rekstrarnefnd. ■ Reykjavík. A undanförnum þrem árum hefur kpnnunarnefnd unnið að undirbúningsvinnu fyrir nýskipaða byggingarnefnd Barna- skólans í Reykjavík. Nýlega var birt greinargerð um stöðu byggingarmála skólans í Reykjavík, í safnaðarblaðinu, Bræðrabandinu nr. 3, 1985, og fylgir hún þessari skýrslu. Nemendafjöldi skólanna síðast liðin 3 ár hefur verið sem hér segir: BARNASKÓLINN í: 82-83 83-84 84-85 Reykjavík 11 13 14 Keflavík 13 ___ _______ Alls. 24 13 14 Kennarar skólanna hafa verið sem hér segir: í Reykjavík 82- 83: Oeanette Snorrason Oddný Þorsteinsdóttir 83- 84 Oeanette Snorrason Oddný Þorsteinsdóttir Kristinn Ólafsson 84- 85 Lilja Sveinsdóttir Oeanette Snorrason í Keflavík: 82-83 Ólafur V. Þóroddsson Skýrsla barnaskólanna í upphafi síðasta tímabils voru tveir barnaskólar starfræktir, þ.e. í Reykjavík og Keflavík. Skólinn í Keflavík var starfræktur veturinn 1982-83 en hefur ekki starfað síðan vegna kennaraskorts. Skólinn í Reykjavík hefur haldið göngu sinni áfram þó í mjög ófullnægj- andi húsnæði sé. Mjög brýnt er að huga að kennurum fyrir skólana okkar almennt og svo varanlegu skólahúsnæði fyrir skólann í Efling barnaskólans í Reykjavík ásamt endurreisn annarra barnaskóla, eftir því sem hægt er, er eitt af mikilvægasta verkefni Sjöunda dags aðventista á íslandi. Sérstaklega er brýnt að skólinn á höfuðborgarsvæðinu verði myndarlegur og ætti hann að verða sameiginlegt átak allra safnaðarmeðlima á landinu. Þessi skóli gæti jafnast á við Hlíðardalsskóla að mikilvægi og haft ómetanleg áhrif til góðs og til eflingar söfnuðinum, ekki aðeins í Reykjavík heldur um allt land. Slíkur skóli gæti átt sinn þátt í uppeldi og menntun framtíðarstarfsmanna. Mættum við bera gæfu til þess, með Guðs hjálp, að stíga afgerandi skref í þessa átt á þessum aðalfundi. Erling B. Snorrason ■ 14

x

Bræðrabandið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.