Bræðrabandið - 01.05.1985, Blaðsíða 26
e^FRÁ STARFlNU^a
BIBLÍUSPURNINGAKEPPNIN
Þá hafa úrslit ráðist í fyrstu
Biblíuspurningakeppni Æskulýðsdeildar-
innar. Keppt var í 3 lotum þar sem
fjögur lið leiddu saman hesta sína. Eins
og svo oft í keppni var þessi krydduð
spennu, fjöri og sviftingum, en á sama
tíma var alvarleiki, og þekking keppenda
og áheyrenda á Biblíunni jókst.
í vetur var keppt fyrst í Markúsar-
guðspjalli, þá 1. Mósebók og núna siðast
í Postulasögunni. Eftir fyrstu umferð
voru ungmennafélög Árnessafnaðar og
Suðurnesja mjög jöfn með 260 og 265
stig. í annari umferð fór Árnessöfnuður
langt fram úr og hafði samanlagt 515
stig á meðan Ungmennafélag Reykjavíkur
var með 420 stig og Ungmennaf él ag
Suðurnesja 410 stig. En aftur áttu
breytingar eftir að eiga sér stað því í
lokaumferðinni fékk Ungmennafélag
Suðurnesja 300 stig og skaust á toppinn
með 710 stig samanlagt en Ungmennafélag
Reykjavíkur fylgdi fast á eftir með 685
stig. Ungmennafélagar Árnessafnaðar
voru þá með 630 stig samanlagt og lið
Hlíðardalsskóla, sem mætti ekki til
leiks í lokakeppninni rak lestina með
245 stig samanlagt.
Safnaðarmeðlimir gáfu veglegan
farandskjöld, sem kallast L0G0S, en það
er grískt orð sem þýðir 0RÐIÐ og stendur
jafnt fyrir Biblían og Oesú en bæði eru
þýðingamiklar opinberanir á Guði og
leiðarljós í lífi okkar manna auk þess
sem Oesús er konungur okkar og frelsari.
Þennan skjöld fékk Ungmennafélag
Suðurnesja afhentan t.il varðveislu fram
á næsta vor þegar úrslit verða ráðin á
ný. En næsta vetur verður keppt úr
eftirtöldum bókum Biblíunnar:
í nóvember 1985 - Lúkasarguðspjall
í febrúar 1986 - II Samúelsbók
í apríl 1986 - Opinberun Oóhannesar
Það er ósk okkar að þessi keppni megi
hvetja okkur öll, unga sem eldri, til
þess að læra og festa vel í minni Guðs
orð. Því eins og Páll sagði Tímóteusi
þá er "sérhver ritning innblásin af Guði
og nytsöm til fræðslu, til umvöndunar,
til leiðréttingar, til menntunar, í
réttlæti, til þess að sá sem tilheyrir
Guði, sé albúinn og hæfur gjör til
sérhvers góðs verks." 2Tm 3.16,17.
Þröstur B. Steinþórsson,
æskulýðsfulltrúi
H3ÓNASÆLA - ÖLFUSB0RGUM
Fyrsta hjónamót safnaðarins var í
Ölfusborgum, Hveragerði, helgina 12-14
apríl og tókst í alla staði vel. Sól og
heiður himinn gladdi mótsgesti, ef þeir
voru inni, því úti var sterkur vindur og
kaldur. Fjórtán hjón voru þar allan
tímann og áttu góðar stundir. Mikið var
sungið, horft á kvikmynd um þroska
fósturs, hlustað á ræður og spjallað
saman í litlum hópum. En á mótinu var
fjallað um tjáskipti, boðskap Elía,
fjölskyldubænir og leiðir til að styrkja
hjónabandið og gera það ánægjulegra. Vil
ég þakka þeim Maríu Björk Reynisdóttur,
Ólafi Þóroddssyni, Sigríði Kristjáns-
dóttur og Ármanni Sigurjónssyni kærlega
fyrir mikla og góða vinnu við undirbún-
ing mótsins.
Áformað er að hafa annað hjónamót
(eða hjónasælu eins og við köllum það) á
næsta ári og er undirbúningur þegar
hafinn. Eygló Guðsteinsdóttir, Róbert
Brimdal, Sigurborg Pétursdóttir og 3ón
Holbergsson munu starfa að undirbúningi
þess. Vonast ég til þess að sjá enn
fleiri hjón þá því hjónasæla er svo
sannarlega stórkostleg.
Þröstur B.Steinþórsson, æskulýðsleiðtogi
* * * * *
"Sá sem er fastar, ákveðnar og
réttlátar meginreglur holdi klæddar
mun hafa lifandi áhrif á félaga
sína og hann mun hafa áhrif á aðra
með kristindómi sínum. Margir
greina ekki eða meta hve mikil
áhrif hvers og eins eru til góðs
eða ills. . ." -DL 122
Ritstjóri og ábyrgðarmaður
ERLING B. SNORRASON
Útgefendur
S. D. AÐVENTISTAR Á ÍSLANDI
26