Bræðrabandið - 01.05.1985, Blaðsíða 15
Skýrsla æskulýðsdeildar
"Lát engan líta smáum augum á æsku
þína, en ver fyrirmynd trúaðra, í orði,
í hegðun, í kærleika, í trú, í hrein-
leika, ver þú, þangað til ég kem,
kostgæfinn að lesa úr Ritningunni,
áminna og kenna." 1Tm 4.12,13.
Það er ekki hægt að leggja of mikla
áherslu á að ungmennafélögin séu sterk
og virk. Þegar plantan er ung, þarf hún
að vaxa og þroskast í skjóli með góðan
stuðning, þá mun hún síðarmeir geta
staðið af sér storma lífsins. Reynslan
hefur sýnt að þau ungmenni sem taka
virkan þátt í sterku ungmennafélagi
verða síðar máttarstólpar safnaðarins.
Þau ungmenni sem ekki eru hluti af
þessum sterka hóp er miklu meiri hætta
búin. Því er það ábyrgð eldri safnaðar-
meðlimanna að taka þátt í æskulýðs-
starfinu, hlusta, leiðbeina, hvetja,
vera sannur félagi hinna yngri.
í mörg ár, má segja að aðeins eitt
ungmennafélag hafi verið starfandi.
Flest ungmennin hafa verið á Reykjavík-
ursvæðinu og þau ungmenni sem voru í
öðrum söfnuðum tóku þátt í því starfi
eftir því sem mögulegt var. En núna eru
3 sterk ungmennafélög starfandi. í
Reykjavík, í Árnessöfnuði og á Suður-
nesjum. Er það vonandi að þessi 3
ungmennafélög haldi áfram að vera virk,
og að ungmennafélögum fjölgi.
FÉLAGSSTARF
Fyrir utan hefðbundið félagsstarf,
(l.des á HDS, heimboð, leikjakvöld og
ungmennasamkomur) hefur verið reynt að
hafa reglulegt uppbyggingarstarf, en
hver garðyrkjumaður veit að ungar
plöntur þurfa skjól og stuðning reglu-
lega. Það er lítið gagn í óreglulegum
stuðningi sem kemur e.t.v. helst þegar
veðrið er gott. Af þessu uppbyggingar-
starfi má nefna þetta:
1. Bænastundir. Fyrir utan andlegan
þroska þátttakenda má nefna að
sums staðar leiddu þessar
bænastundir unga fólksins til
þess að eldri safnaðarmeðlimir
fóru að mynda bænahópa. Einnig
má geta þess að vegna þátttöku í
bænahóp hefur einn ungur maður
tekið skírn.
2. Helgarferðir. Þeim hefur
fjölgað mjög á síðast liðnum
tveim árum og verið skipulagðar
ýmist af æskulýðsdeildinni eða
einstaka ungmennafélögum.
3. Spurningakeppni milli ungmenna-
félaganna. Tilgangurinn er sá
að a) efla þekkingu á Biblíunni;
b) þjálfa hugann í utanbókarlær-
dómi og c) eiga góðar stundir
saman. Stefnt er að því að
þessi keppni verði haldin ár
hvert.
UNGMENNAMÓT
Ungmennamót hefur verið haldið hvert
sumar. Árið 1982 í Grímsey; 1983 við
Leirárskóla, nálægt Akranesi; 1984 í
smalakofa í Svartárbotnum, nálægt
Hveravöllum. Sú breyting varð á
sumarið 1983 að þáttaka á ungmennamótinu
var takmörkuð við unglinga. Sætti sú
breyting töluverðri gagnrýni eldra fólks
en tilgangurinn var að fá fleiri
ungmenni til að sækj'a mótið og nota
tímann til að ræða mál er snertu
samskipti ungmenna við Guð, hvort annað
og foreldra. Tókst það í alla staði
vel. Ekki er það ætlunin að þátttaka
ungmennamóta í framtíðinni verði
takmörkuð þannig, en þó tel ég að slíkt
megi vel endurskoða.
INNSÝN
Síðast liðin tvö ár hefur Innsýn
komið út reglulega, 10 sinnum á ári.
Hafa margir einstaklingar hjálpað við
útgáfu þess og efnisöflun. Helsta
vandamál útgáfunnar er fjárhagsgrund-
völlurinn. Upplag blaðsins er lítið og
erfitt að innheimta áskriftargjöld. Hægt
er að styrkja fjárhagsgrundvöllinn með
15