Bræðrabandið - 01.05.1985, Qupperneq 20
að halda tengslum, hvetja til áframhald-
andi náms, miðla fróðleik um Biblíuna og
heimsfréttum sem tengjast endurkomunni.
Einnig eru hugmyndir um að byrja með
stutt námskeið sérstaklega fyrir
nemendur Biblíubréfaskólans. 3á, það er
margt hægt að gera með góðu tæki og
framtíð Bibíubréfaskólann er mjög björt,
sérstaklega þar sem við vitum að
frelsarinn sjálfur - Oesús Kristur
-starfar með okkur.
Kær kveðja
Þröstur B. Steinþórsson ■
Skýrsla Bókaforlags
Frá síðasta aðalfundi hafa eftir-
taldar bækur frá okkur komið inn á
bókamarkaðinn hérlendis:
SÖGUR BIBLÍUNNAR. Tíunda og síðasta
bindið af þessum vinsæla bókaflokki kom
til landsins vorið 1982 og var þar með
náð þeim langþráða áfanga að geta boðið
allt settið af þessum fallegu og góðu
bókum, en útgáfa þeirra hófst 1968.
Þessar bækur hafa verið fjárhagslegur
grundvöllur Bókaforlagsins nú um 14 ára
skeið, en hafa einnig skilað miklu af
góðu lesefni til þjóðarinnar, ungra sem
gamalla.
TRÚFASTIR VINIR. Þessar gullfallegu
bækur fyrir yngstu börnin gátum við líka
sett á markaðinn sumarið 1982 og hafa
þær reynst sannir og góðir vinir allra,
sem hafa komist í snertingu við þær.
Þetta fimm bóka sett var prentað í
Finnlandi fyrir fleiri þjóðir í einu.
Við komumst að bestu kjörunum með því að
taka allar bækurnar í einu í stóru
upplagi og vonumst við eftir að geta
komið þessum góðu bókum inn á sem flest
heimili, sem hafa yfir börnum að ráða
svo þau fái notið þess boðskapar, sem
þær hafa að geyma. Hverju setti fylgir
litabók með sama nafni, enda eru
myndirnar eftir fyrirmyndum úr bókunum.
Einnig höfum við látið gera þrjár
hljómsnældur, sem allt efni bókanna er
lesið inn á. En á bakvið heyrist
viðeigandi tónlist, dýra-, manna- og
náttúruhljóð. Bjalla hljómar svo í
hvert skipti sem fletta á við blaði til
áframhaldandi lesturs, svo ólæs börn
geta notið þess að skoða myndirnar og á
þann hátt lifað sig inn í það efni sem
lesið er fyrir þau.
Þá er unnið að því að setja efni
bókanna á 5 videospólur í þeirri von að
geta á þann hátt borið kristileg áhrif
inn á heimilin í gegnum sjónvarpið.
RÖKKURSÖGUR. 1 4. bindið af þessum
vinsælu bókum kom út 1983. í þessari
bók eru margar af "gömlu góðu sögunum"
sem urðu svo kærar mörgum sem þær lásu.
Því miður er þessi ágæta barnabók nú nær
uppseld.
RÁÐLEGGINGAR varðandi rAðsmennsku
kom út á árinu 1984 og fara hér á eftir
nokkur orð úr formála hennar:
""Hugmyndin um ráðsmennsku ætti að
hafa hagnýtt gildi fyrir allt fólk Guðs.
. . . Hagnýt gjafmildi mun veita andlegt
líf þúsundum þeirra sem játast sannleik-
anum aðeins að nafninu til og sem nú
harma sitt andlega myrkur. Það mun
umbreyta þeim frá sjálfselskufullum,
ágjörnum tilbiðjendum Mammons í einlæga,
trygga samstarfsmenn Krists í frelsun
syndara."
Með slíka umbreytingu í sjónmáli,
ættu allir að rannsaka þessa bók í
einlægni og biðja um að við mættum
leiðast inn í fyllri og ríkari reynslu
með Drottni.""
DROTTINN KEMUR. Þessi bók kom 1984
til að fylla í það skarð sem myndaðist
þegar morgunvökubókin Daglegt líf var
uppseld. Eins og nafnið ber með sér,
fjallar þessi hugvekjubók um síðustu
tíma þessa jarðlífs og endurkomu
Drottins okkar og frelsara. í henni er
að fá huggun, uppörvun og leiðbeiningu
fyrir Guðs fólk, sem lifir nú á tíma
endalokanna. Efnið er blátt áfram,
opinskátt og vekjandi og ætti að stuðla
að sannri vakningu til að íhuga nánar og
dýpra þau dýrmætu sannindi að konungur-
inn er að koma til að sækja sína.
Mætti lestur þessarar bókar stuðla
að því að sem flestir verði viðbúnir að
mæta frelsaranum á þeim mikla endur-
lausnardegi, sem er svo nálægur.
15 SMARIT. Af þessum ritum komu þau
fimm fyrstu í fyrra: Nýtt líf, Gleymdur
dagur, Blekkingarleikurinn, óvæntir
atburðir og Hið óhagganlega eftir George
E. Vandeman.
20