Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2005, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 20. APRlL 2005
Fréttir DV
Faðir og föðurafi Arons Pálma Ágústssonar hafa lítið af honum að segja. Ragnar
Ágústsson, afi Arons, segir feðgana hafa ákveðið að hætta afskiptum af máli
Arons þegar ekki var krafist framsals á honum eftir dóminn. Aron hefur hvorki
heyrt né séð Ágúst Ragnarsson, föður sinn, frá þrettán ára aldri.
Kristján fær
600 jwsund
á manuði
Kristján Ragnarsson,
fyrrverandi formaður
Landssambands íslenskra
útvegsmanna, hefur verið
kjörinn stjórnarformaður
Fiskeldis Eyjafjarðar, Krist-
ján fær 600 þúsund krónur í
mánaðarlaun fyrir for-
mennskuna. Fiskeldið á
reyndar í fjárhagserfiðleik-
um og tapaði 165 milljón-
um króna í fyrra, eða um
450 þúsund króntim á dag.
Fjórir aðrir eru í stjóm Fisk-
eldisins og fær hver þeirra
300 þúsund í mánaðarlaun.
Handtöku-
skipun á
síbrotamann
Handtökuskipun
verður gefin út á hendur
Ásgeiri Má Helgasyni þar
sem hann mætti ekki í
héraðsdóm f gær þegar
ákærur á hendur honum
vom þingfestar. Ásgeir er
ákærður fyrir fjölda
brota, þar á meðal fyrir
vopnalagabrot, þjófnað,
skjalafals og vopnað rán.
DV hefur áður greint frá
því þegar Ásgeir Már
réðst inn á Pétursböbb
vopnaður táragasbrúsa,
hótaði barþjóni staðar-
ins og heimtaði peninga.
Týnd gögn í
héraðsdómi
„Það er röng kennitala í
ákærunni," sagði lögfræð:
ingur ákærða við þingfest-
ingu í Héraðsdómi Reykja-
ness í gær. Fljótlega kom
dómarinn, Sveinn Sigur-
karlsson, æðandi inn í rétt-
arsalinn og leit út eins og
hann hefði hrækt á skóinn
sinn. „Ég bara finn ekki
þessi gögn,“ sagði Sveinn
og Kolbrún Sævarsdóttir,
settur saksóknari, svaraði:
„Við sendum alltaf afirit af
gögnunum, þetta hlýtur að
vera hérna." Þingfestingin
var greinilega að fara úr
böndunum þegar Sveinn
sagði: „Við verðum bara að
koma gögnunum til verj-
anda, en þessu er þá bara
slitið núna."
Faðir Arons Pálma telur ekkl
Föðurafi Arons Pálma Ágústssonar segir að hann hafi talið og telji enn að
Bragi Guðbrandsson, forstjóri Bamaverndarstofu, hafi farið rangt að þegar
hann ákvað að sækjast ekki eftir framsah Arons Pálma í kjölfar dóms yfir
honum. Hann segir föðurfjölskylduna lítið hafa af Aroni að segja í dag; faðir
hans hafi þannig ekki verið í sambandi við Aron frá því hann var þrettán ára.
„Ég er enn þeirrar skoðunar að
Bragi Guðbrandsson hafi gert
rangt þegar hann ákvað að fara
ekki fram á framsal á drengnum
strax," sagði Ragnar Ágústsson,
föðurafi Arons Pálma, í samtali við
DV í gær. Hvorki Ragnar né faðir
Arons Pálma, Ágúst, hafa haft
samband við hann frá því Aron
Pálmi fór af landi brott tólf ára
gamall. Ári síðar fékk Aron tíu ára
fangelsisdóm sem hann
afplánar nú f stofu-
fangelsi.
Reiðir Braga
Ragnar sem
er fyrrverandi
barnakennari
í Reykjavík
segir sig og iH, .
son sinn hafa
hætt afskipt-
um af máli Ar-
ons þegar í ljós 1
kom að Bragi
Guðbrands-
son, for-
stjóri
Barnaverndarstofu, ákvað í sam-
ráði við lögmenn í Texas að krefj-
ast ekki framsals Arons Pálma
þegar hann hlaut dóm í máli sínu.
Bragi hefur sjálfur sagt að það hafi
verið mat sitt og annarra að réttast
hefði verið að bíða með framsal
eftir að dómur féll í málinu; m.a.
til að styggja ekki yfirvöld í Texas,
sem þá laut stjóm George W.
Bush, núverandi forseta Banda-
ríkjanna. Feðgarnir hafi gefist
upp í kjölfarið auk þess
sem stirt hafi verið í
samskiptum milli
foreldranna.
Ekkert samband
„Við höfum ekki
Jj heyrt í Aroni Pálma
sfðan hann var fékk
dóminn, nema þá í
fjölmiðlum," segir
. Ragnar sem kvað son
sinn hafa ákveðið að
f hafa ekki frekari af-
skipti af málinu eftir
dóminn. „Við kusum að
hafa þetta svona, eins og
málum var fyrirkomið,"
bætir Ragnar við.
Hann segir
son sinn
ekki
„Við kusum að hafa
þetta svona, eins og
málum var fyrir
komið."
ræða mál Arons enda hafi hann
afgreitt það mál á sínum tíma.
„Nei, enda lítum við á þetta sem
afgreitt mál úr því sem komið er,"
segir Ragnar sem vonast þó eðli-
lega til að sonarsonur hans losni
sem fyrst úr prísund sinni. „Einu
afskipti mín af máli hans nú í
mörg ár voru þegar ég skrif-
aði undir bænaskjal vegna
máls hans í fyrra," segir
afinn sem á þeim tíma
sem málið kom upp
setti sig í samband við
utanríkisráðuneytið í
von um aðstoð.
Kanabarn
„Ég hef lítið haft af
honum að segja frá því
hann var barn enda
bjuggu foreldrar hans
ekki saman og því lítið
samband," segir Ragn-
ar sem fékk þó
barnabarnið
í heim-
sókn
stuttu áður en Aron hlaut tíu ára
dóm fyrir læknisleik. „Hann var
ósköp ljúfur þótt hann hafi nátt-
úrulega verið orðinn mikið Kana-
barn enda búinn að búa úti frá því
hann var barn," segir Ragnar sem
kveðst litla kærleika bera til
Bandaríkjanna, sérstaklega eftir
meðferð þeirra á Aroni Pálma. Að-
spurður hvort afinn hafi áhuga á
að hitta Aron, sem stefnir á að
flytja til íslands um leið og færi
gefst, sagði Ragnar: „Jú, ég væri
auðvitað til í það."
Ekki náðist f Ágúst Ragnars-
son í gær en faðir hans
sagði son sinn ekki
áhuga á að
ræða mál Arons.
helgi@dv.is
hafa
Faðirinn Ágúst
Ragnarsson,
faðirArons
Pálma Ágústs-
sonar. Hefur ekki
séð son sinn frá
þvfhann var
þrettán ára og
ekki beitt sér f
máiihansfrá
sama tfma.
vúja
Aron Pálmi Enn f
stofufangelsi ÍTexas.
Hefur ekki séö föður
sinn f nærtfu ár.
■
Yndislequr maður með viskíglas
Svarthöfði samgleðst Kristínu
Báru Haraldsdóttur en hún er dóttir
Haralds Birgis Hreggviðssonar mat-
reiðslumanns í Reykjavík. Kristfn
Bára hefur náð þeim áfanga í lífi
sínu að krækja í eitt mesta kvenna-
gull síðari ára, stjömuna úr 24,
Kiefer Sutherland. Þau hittust á
knæpu á Laugaveginum þar sem
Kiefer var að drekka viskí úr flösku
en Kristín Bára bara að horfa á með
vinkonunum.
í viðtali við DV í gær segir Kristín
Bára að í fyrstu hafi hún ekkert verið
sérstaklega hrifin af Kiefer þegar
hann reyndi við hana með aðra
Svarthöfði
hönd á viskíglasinu og hina á rassin-
um á henni. Þegar glasið var hálft
stóðst Kristín ekki lengur mátið, féll í
stafi og síðan í fang HoIIywood-leik-
arans. Saman fóm þau á svítuna á
Hótel 101. Þar var h'f og fjör á meðan
Kiefer kláraði míníbarinn.
Síðan hafa þau Kristín Bára og Ki-
efer verið í sambandi og hún flogið til
hans út oftar en þrisvar. Ef trúa skal
fréttum DV hefur Kiefer verið í tygjum
við fleiri ungar stúlkur á meðan á
viskídrykkju hans hér stóð því í næstu
Hvernig hefur þú það?
Ég hefþað Ijómandi fínt. Eftir að hafa farið I gegnum ítarlegar læknisrannsóknir kemur í Ijós
að ég er við bestu heilsu," segir Bogi Agústsson forstöðumaður fréttasviös Ríkisútvarpsins.
Bogi var sem kunnugt er fluttur á spítala í miðju „Fréttastjóramálinu" vegna slappleika.„Ég
fékk kransæðastíflu fyrir fimm árum og sllkir menn taka enga sénsa. Ég er á leiðinni I iikams-
rækt til að halda skrokknum við. Þetta er lítil líkamsrækt sem heitir Gáski."
viku flýgur hálfur flugvélarfarmur af
ungum stúlkum út til hans í
Hollywood. Ein úr hópnum orðar það
svo: „Þetta er yndislegur maður sem
finnst gaman að drekka viskí."
Svarthöfði veit hvað klukkan slær
þegar kemur að viskíi. Sjálfur drakk
hann það um tíma og þá af stút á
knæpum eins og Kiefer nú. Alltaf
jafii yndislegur og kvennablómi svo
af bar. Einu sinni eftir ferð til ísa-
íjarðar lenti hann í sömu sporum og
Kiefer nú. Kynntist ísfirskum blóma-
rósum sem hann reyndi að selflytja
til Reykjavíkur í Fokker Friendship
fram eftir næsta sumri. Stundum
eina og stundum fleiri í kippum.
Þannig að Svarthöfði veit hvemig
Kiefer og stúlkunum líður. Þökk sé
viskíinu. Svarthöfði varð eins og
Kiefer Sutherland. Svo yndislegur
undir áhrifum.
Lffið er alltaf sjálfu sér l£kt. Hvort
sem er í Hollywood eða á ísafirði.
Allt sem þarf er viskí af stút.
Svarthöfði