Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2005, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 2005
Fréttir DV
Ótti vegna 47
barna
Félags- og
fjölskyldusviði
Vestmanna-
eyja hefur frá
áramótum borist 31 til-
kynning vegna 47 barna. 5
tilkynningar voru vegna
vanrækslu barna, 4 vegna
ofbeldis og 23 vegna
áhættuhegðunar barna. í
marsmánuði bárust 9 til-
kynningar vegna 21 barns.
1 tilkynning barst vegna
vanrækslu barna, 1 vegna
ofbeldis og 7 vegna áhættu-
hegðunar barna.
fi£YKiiAN£S8A, n
500 milljón-
um lægri
reikningur
Á bæjarstjórnarfundi hjá
Reykjanesbæ í gær var
lagður fram til fyrri um-
ræðu ársreikningur bæjar-
ins fyrir árið 2004. í stað
734 milljóna króna nei-
kvæðrar rekstrarniðurstöðu
í samstæðureikningi sem
áætíuð hafði verið, meðal
annars vegna mikilla fram-
kvæmda í sveitarfélaginu
og stóraukins kostnaðar
vegna endurreiknaðra líf-
eyrisskuldbindinga, reynist
rekstrarniðurstaðan vera
neikvæð um 210 miUjónir
króna. Reikningurinn er því
504 milljónum lægri en
upphaflega var ætiað.
Er fullreynt
með lausn
Arons Pálma?
Ásmundur Páll Hjaltason,
bæjarfulltrúi f Fjaröarbyggö.
„Ég trúi ekki ööru en hægt sé
aö leggja meira á sig við að
ná honum hingaö, og þá eftir
pólittskum leiðum. Þaö tók
ekki langan tima aö fá Bobby
Fischer hingaö og þvi er
spurning hvort hann þurfi ekki
bara aö komast í Vildarklúbb
Davíös Oddssonarsvo eitt-
hvað fari aö gerast. Þaö er
grafalvarlegt ef rfkisstjórnir
gæta ekki hagsmuna þegna
sinna á erlendum vettvangi.“
Lögreglan á ísafirði hvatti þingmenn til að kjósa Ingibjörgu Sólrúnu án þess að
vita af því. Ingibjörg hafði keypt auglýsingu á frípóst Vísis og brá þingmönnum
þegar þeir voru farnir að senda stuðningsyfirlýsingu við Ingibjörgu til vina og
vandamanna fyrir mistök. Einar Karl Haraldsson, stuðningsmaður Össurar, segir
Ingibjörgu í blindingsleik.
Netnotendur dreifðu óafvitandi
Þröstur Emilsson efnisstjóri Vísis Telur
auglýsingu Ingibjargar ekki siðlausa.
Þingmönnum allra flokka brá í brún þegar yfirlýsing til stuðn-
ings Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur fylgdi tölvupósti frá lögregl-
unni á ísafirði. Lögreglan var þó ekki ábyrg fýrir þessari nýju
kosningabrellu heldur hafði Ingibjörg keypt auglýsingu af vísi.is
sem fylgir hverjum sendum tölvupósti. Fjöldi kvartana hafa
borist Vísi þar sem fólk kvartar undan því að vera orðið hluti af
kosningabaráttunni án þeirra leyfis.
„Ég er notandi að vísir.is-póst-
kerflnu og finnst það ágætt en mikið
brá mér þegar ég heyrði utan úr bæ
að ég sé óafvitandi að dreifa kosn-
ingaáróðri fyrir Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur í hvert sinn sem ég sendi
tölvupóst," sagði reiður notandi til
dæmis í kvörtun til Vísis og bætti
við: „Ég stórefast um að það sé í lagi
að svona lagað sé gert að manni for-
spurðum, en ef svo er þá er það aila
vega verulega siðlaust."
Ingibjörg alla leið
Auglýsingin sem notandinn á við
er textí sem birtist fyrir neðan skeyt-
ið „Allir sem skrá sig í Samfylking-
una fyrir 15. apríl fá að kjósa næsta
formann. Kannaðu málið á
http://www.ingibjorgsolrun.is Ingi-
björg Sólrún - Alla leið!“
Þetta voru skilaboðin sem Lög-
reglan á ísafirði sendi án þess að
ætla það þingmönnum ailra flokka á
Alþingi. DV hefur heimildir fyrir því
að nokkrir þingmenn hafi haft sam-
band við lögregluna og fengið þær
skýringar að um mistök væri að
ræða.
Blindingsleikur
Einar Karl Haraldsson er stuðn-
ingsmaður Össurar og telur þessi
vinnubrögð Ingibjargar ekki til
sóma. „Þetta er einhvers konar
blindingsleikur og vekur upp spurn-
ingar um rafrænar aðferðir í stjórn-
málum. Þeir sem senda póst vita
ekki að þeir eru að dreifa áróðri fyrir
Ingibjörgu eins og best sést á ísfirsku
lögreglumönnunum. Mér finnst
svona aðferðir ekki passa í stjórn-
málaflokki."
Eina tekjulindin
En hvað segja umsjónarmenn
vefsins sem seldu Ingibjörgu Sól-
Einar Karl Har-
aldsson, stuðn-
ingsmaður Össur-
ar Segirlngibjörgu I
blindingsleik.
rúnu hina umdeildu
auglýsingu? í svarinu við fyrirspurn
reiða notandans hér fyrir ofan segir
Þröstur Emilsson, efnisstjóri Vísis,
að ein auglýsing sem keypt er á frí-
póst sé alis ekki siðlaus verknaður.
„Eigendur Vísis munu eftir sem áður
selja auglýsingar inn á Vísi, enda
ljóst að auglýsingar á Frípósti eru
ein tekjuleiða til að halda útí þessari
þjónustu, notendum að kostnaðar-
lausu."
Ég stórefast um að
það sé i lagi að
svona lagað sé gert
að manni forspurð-
um, en efsvo er þá er
það alla vega veru-
lega siðlaust/
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
frambjóðandi til formanns
Notar óheföbundnar aðferðir I
kosningabaráttu sinni.
Róbert Guð-
mundsson
Sendibllstjórinn
sem skráður var
I Samfylkinguna
gegn eigin vilja.
Hann segir / Hún segir
„Mér fmnst þetta mál allt sam-
an voðalega sorglegt og skil
satt best að segja ekki hvers
vegna er ekki löngu búið að
ná honum heim. Viö lögöum á
okkur mikla vinnu viö aö
koma Bobby Fischer hingaö
og hún skilaði sér, því ekki að
gera eins eða betur við Aron?
Mér finnst ánægjulegt hvað
Ágúst Ólafur Ágústsson hefur
veriö duglegur viö þetta mál
inni á þingi, þar mættu fleiri
taka hann sér til fyrirmyndar.
Stuðningsmaður Össurar skráði Róbert Guðmundsson í Samfylkinguna
Sendibílsstjóra laumað án vitundar í Samfylkinguna
Margrét Gauja Magnúsdóttir,
formaður ungra jafnaðarmanna
Hafnarfirði.
„Ég tók það skýrt fram að ég vildi
ekki vera skráður í Samfylkinguna,“
segir Róbert Guðmundsson sendi-
bílstjóri á Hellu sem skráður var í
flokkinn gegn eigin vilja. „Það var
einhver Siggi sem hringdi í mig og
spurði hvort ég vildi vera stuðnings-
maður Össurar," segir Róbert sem
svaraði því játandi en tók skýrt fram
að hann vildi alls ekki vera skráður í
flokkinn. í gær bárust svo fréttír um
að 7.000 nýir meðlimir hefðu gengið
í flokkinn og fór Róbert þá að gruna
að hann væri kannski einn af þeim.
„Ég hringdi svo í dag og fékk staðfest
að ég væri í flokknum og kjörseðlar
væru á leið til mín í
pósti,“ segir Róbert
sem keyrir sendibíl á
Hellu.
Róbert segir nokk-
uð ljóst að þetta hafi
komið frá einhverjum
Árni Björn Ómarsson
Kosningastjóri Össurar
kannast ekki við einhver
á hans vegum skrái fólk
gegn þeirra vilja.
stuðningsmönnum Össurar í
Hveragerði enda hafi fyrrnefndur
Siggi búið þar einhvern tíma.
„Maður spyr sig hvort þessir 7.000
stuðningsmenn hafi verið fengnir
á þennan hátt,“ segir Róbert
sem
nennir
ekki að
vera flokks-
bundinn. „Ég
kaus einhvern-
tíma Framsókn-
arflokkinn, það
var meira að
segja fyrir tíma Guðna
þegar ég var ungur og ný-
kominn með kosninga-
rétt."
Árni Björn Ómarsson kosn-
ingastjóri Össurar segir Hvera-
gerði vera erfiðan bæ fyrir Öss-
ur. „Það eina sem ég veit er að
Árni Gunnarsson kosn-
ingastjóri Ingibjargar er
aðalmaðurinn þar," segir
Ámi Björn sem kannast
ekki við neinar kvartanir
vegna svipaðra mála.
Hringt var í Róbert
úr gsm síma klukk-
an hálf ellefu að
kvöldi en Árni
segir að ekki sé
notaður gsm
sími til þess að fá
fólk í flokkinn hjá
þeim. „Það eru
auðvitað margir
sem eru að styðja
sinn mann en eru
ekkert endilega á okk-
ar vegum, ég kannast
ekki við þetta mál,“
segir Árni Björn að lok-