Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2005, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2005, Side 10
10 MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 2005 Fréttir DV Helgi þykir mjög hugmyndaríkur og sjálfsöryggið skín afhonum þegar hann kemur fram. Hann er mjög opinn og vinur vina sinna. Helgi er ávallt hress og þykir fínn söngvari. Helgi er mjög atorkusamur en stundum færist hann ofmikið í fang. Mörgum finnst hann ekki nægilega einlægur og sækja takta sina ofmikið til þekktra einstaklinga. „Helgi er vinur vina sinna. Hress og virkilega skemmtilegt aö vera með honum i hljómsveit. Hann hefur ótrúlegan hæfileika sem er að semja nýja texta uppi á sviði. Ég veit ekki með galla. Hann getur verið svotítiö kinki, sérstak- lega efhann hefur verið lengi á lausu, en það er jafnt kostur sem galli." Halldór Smárason, vlnur Helga úr hljóm- sveitinni Appollo. „Helgi erbara hress og skemmtilegur. Það er gott að vinna með honum og hann ergífurlega sjálfsör- uggur. Stundum segir hann þó hluti án þess að hugsa. Það getur verið galli." Gunnhildur í Djúpu lauglnnl. „Hann er náttúrulega hress og skemmtilegur ná- ungi. Mjög drifandi, opinn, fjölhæfur og hugmynda- rlkur. Það má segja að hann sé samt stundum of drifandi fyrirsjálfan sig. Hann tekur stundum ofmikið að sér og nær ekki að klára." Anæll Níelsson, skólafélagl og vinur. Helgi ÞórArason er fæddur 12. desemberáriÖ 1986. Hann var í grunnskóla á Isafiröi og fór svo IMenntaskólann þar. Hann tók þátt í Idol Stjörnuleit ogernú annar stjórnenda þáttarins Djúpu laugarinnar. Hann hefur alltaf sungiÖ mikiÖ og varformaröu nemendafélagsins í sfn- um skóla. Merktu 511 fugla í gær höfðu verið merktir 511 fuglar í Einarslundi ffá því merkingar hófust á staðnum 24. mars, samkvæmt frétt hornafjardar.is. Merktir voru 502 skógarþrestir, hrossagaukar, músarrindill, svartþröstur og hettusöngv- ari. Fuglarnir eru merktir með númeruðum fóthring úr áli. Fyrsta maríuerlan sást á Höfn í gærmorgun og litlu seinna birtist steindep- ill. Krían mun væntanleg á hverri stundu. Spóinn og þórshaninn eru sagðir koma ímaí. Salerni við ysta haf Bæjarstjóra Vesturbyggðar hefur verið falið af bæjarráðinu að leita verð- hugmynda nokkurra heimaaðila vegna fyrirhug- aðrar uppbyggingar snyrti- aðstöðu fyrir ferðamenn á Bjargtöngum og í Selárdal. Þegar munu liggja fyrir teikningar og gróf kostnað- aráædun. Sá fyrirvari er þó á framkvæmdinni að eftir er að ná samkomulagi við landeigendur um málið. Ólafur Ólafsson hyggst ekki fara í meiðyrðamál við Jónínu Benediktsdóttur vegna ummæla sem hún lét falla í Kastljósþætti fyrir skömmu um glæpsamlegt athæfi hans og Finns Ingólfssonar. Þjofkenndur Olalur segir Jónínu hurfa aöstofi „Ég met það svo að kröftum mínum sé varið í annað og betra en að eltast við Jðnínu Ben. Hún þarf örugglega á aðstoð annarra að halda í sínum málum en mér. Það að fá yfir sig lögsókn er ekki til þess fallið að byggja hana upp,“ segir Ólafur Ólafsson starfandi stjórnarformaður Samskipa í samtali við DV, aðspurður hvort hann hygðist fara í meiðyrðamál við Jónínu Benediktsdóttur. Uppi hafa verið getsakir um að Ólafur væri að velta fyrir sér mála- ferlum á hendur Jónínu eftir að hún fór hörðum orðum um það sem hún kallar siðleysi í viðskiptalífinu á ís- landi í Kasdjósþætti á sunnudags- kvöldið. Hún vdl meina að ýmsum vildarvinum ríkisstjórnarflokkanna hafi verið fengin fyrirtæki á silfurfati og nefndi hún nöfn Ólafs og Finns Ingólfssonar forstjóra VÍS í því sam- bandi. Finnur er staddur úti á landi og ansaði ekki skilaboð- Ólafur Ólafsson Metur það svo að lögsókn á hend- L ur Jónínu sé ekki til þess I fallin að byggja hana upp. 0 Alvarlegar ásakanir Jórnna nefndi meðal annars, en hún kom víða við, að þeir Finnur og Ólafur væru meðal þeirra sem hefðu hagnast allt að því glæpsamlega við sölu Búnaðarbankans. Einnig þegar Sambandið leið undir lok - að þeir hafl þá komið gríðarlegum verð- mætum undan þegar SÍS var tekið til gjaldþrotaskipta. Mikil viðbrögð hafa orðið við framgöngu Jónínu í þessum þætti og hefur meðal annars Valgerður Sverrisdóttir átalið Ríkis- sjónvarpið á heimasíðu sinni fyrir að hafa hleypt Jónínu í þáttinn. Þeim ættí að hafa verið fulljóst hvaða málflutning hún myndi viðhafa! í Kastíjósþættí á mánu- dagskvöldið urðu svo þau óvenjulegu tíðindi að Sigmar Guðmunds- son umsjónarmaður Kastíjóssins las upp yfirlýsingar frá Ólafi og Finni en hvorugur þáði boð um að koma í þáttinn og svara ásök- unum Jónínu. Ólafur tekur ekki þátt í umræðu á þessu plani „Finni Ingólfssyni og Ólafi Ólafssyni var boðið að svara ummælum Jón- ínu enda lét hún þung orð falla,“ segir Sigmar Guð- mundsson. Hann segir það ekki einsdæmi að lesnar hafi verið upp yfirlýsingar í þættinum þó vissulega sé það fátítt. „Þeir vildu ekki koma að sinni en að okkar mati var full ástæða til að lesa frá þeim yfirlýsingu þar sem ásakanir Jónína Benediktsdóttir Öllspjótstanda nú á henni eftir að hún lét gamminn geysa IKastljósi. Hún er nú stödd í Bandarlkjun- um. Jónínu í beinni útsendingu voru gríð- arlega alvarlegar. Boð okkar til þeirra um að koma í þáttinn stend- ur hins vegar enn og vonandi sjá þeir sér fært að mæta.“ Aðspurður hvers vegna Ólafur hafi ekki þegið boð Sigmars segir Ólafur: „Ég hef persónulega ekki áhuga á að taka þátt í umræðu um viðskipti á þessu plani en skor- ast ekki undan því annars að ræða þau mál og þær spurn- ingar sem að mér snúa á opinberum vettvangi." Ýmis spjót standa nú á Jónínu en ekki tókst að ná tali af henni í gær. Hún er nú stödd í Banda- rfkjunum. Yfirlýsing Finns Yfirlýsing Finns er á eina leið en hann talar um málflutning Jónínu sem uppspuna og ósannindi: „í Kastijósi Sjónvarpsins síðastíiðið sunnudagskvöld var dengt yfir þjóð- ina ótrúlegri blöndu af samhengis- lausum fullyrðingum, dylgjum, ósannindum og hreinum uppspuna um nafngreinda menn og fyrirtæki. Þar á meðal kom undirritaður við sögu en einnig fýrirtækið sem ég er í forsvari fyrir og var reyndar ranglega útnefndur eigandi að! Það hljóta fleiri en ég að spyrja sig á hvaða leið við erum í þjóðmálaumræðunni þegar það þykir ekki lengur tiltöku- mál að saka fólk um stórfelld afbrot á opinberum vettvangi án þess að flugufótur sé fýrir ávirð- ingunum." jakob@dv.is Finnur Ingólfsson Ekki náðist í Finn en ásakanir Jónlnu Benediktsdóttur á hendurhonum eru með þeim hætti aö hann hlýtur að hugleiða meiöyröamái á hendur henni. Viðskiptaráðherra ofbýður vitleysan og dylgjurnar sem bornar eru á borð fyrir alþjóð Valgerður vill koma böndum á Ríkissjónvarpið Kastljósþáttur Sjónvarpsins, þar sem Jónína Bene- diktsdóttir fór mik- inn og fór þungum orðum um aÚt að því glæpsamlega hegðan stjórnvalda við einkavinavæðingu, til dæmis sölu Bún- aðarbankans, hefur valdið miklu upp- námi. Þannig hefúr Valgerður Sverris- dóttir viðskiptaráð- herra sett fram á ____ síðu sinni þunga gagnrýni á Ríkissjónvarpið og verð- ur ekld betur séð en að hún vilji gera það ábyrgt fyrir orðum viðmælenda sinna og að þangað verði í framtíð- inni valdir sérstaklega viðmælendur með tilliti til þess hvað þeir kunni að Sigmar Guðmundsson Færákúr- ur frá Valgerði Sverrisdóttur fyrir að hleypa Jónínu Benediktsdóttur I Kastljósið. segja. Þess ber að geta að Valgerður var á þeim tíma viðskipta- ráðherra þegar Bún- aðarbankinn og Landsbankinn voru seldir - en sú sala sæt- ir nú mikilli gagnrýni. „Mér er ómögulegt að skilja hvaða hvatir ráða því að Sjónvarp- ið kýs að senda út þátt eins og þann sem landsmönnum var boðið upp á í gærkveldi, þ.e. drottningarviðtal í Kastíjósi við Jónínu Ben. Ef svarið er að þátturinn hafi verið í beinni út- sendingu þá er þáð ekkert svar. Þeir sem hafa fylgst með skrifum Jónínu Benediktsdóttur vita um afstöðu hennar til mála. Er allt leyfilegt þegar Framsóknarflokkurinn annars vegar eða menn honum tengdir, eða sagðir tengdir? Það er augljóslega verið að reyna að hafa áhrif á umræðuna í þjóðfé- laginu," segir Valgerður og bætir því við að henni ofbjóði vitieysan og dylgjurnar sem bornar eru á borð fyrir alþjóð. BogiÁgústsson, forstöðumaður fréttasviðs Ríkisútvarpsins, sagði Kastijósið heyra undir Rúnar Gunnarsson, dagskrárstjóra inn- lendrar dagskrárgerðar, og vísaði á hann. En Rúnar reyndist hins vegar á fundi og var ekki hægt að fá svör hans við þessum alvarlegu ávirðing- um ráðherrans. Valgerður var gestur Kastijóssins í gærkvöldið í kjölfar gagnrýni sinnar. er

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.