Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2005, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 20. APRlL 2005
Fréttir DV
Ungliðar
takast á
„Við ætlum að reyna að
hafa þetta skemmtilegt,"
segir Einar Björgvin
Sigurbergsson gjald-
keri Hugins, félags
ungra sjálfstæðis-
mann í Garðabæ, en
ungliðar Samíylk-
ingarinnar í Hafnar-
flrði og Sjálfstæðis-
flokksins í Garðabæ munu
takast á um aðkomu ríkis-
ins að fjölmiðlum í kvöld.
Kappræðurnar eru fyrir-
hugaðar á Veitingahúsinu
A. Hansen og munu hefjast
klukkan átta. Einar, sem er
einn ræðumanna kvölds-
ins, segist búast við mikilli
stemningu.
Góð veiði
í Soginu
Góð bleikjuveiði hefúr
verið í Soginu nú í apríl
að því er veiðivefúrinn
votnogveidi.is hefur eftir
Ólafi Kr. Ólafssyni ár-
nefndarformanni. „Ef
menn eru ekki í allt of
vondu veðri og ekki aö
festa bílana í sköflum
eins og um daginn, þá
hafa menn verið að reyta
jafnt og þétt upp og þetta
er feiknafallegur fiskur,
margar bleikjur 3 til 4
punda og þær stærstu allt
að 6 pund," segir Ólafúr
við vomogveidi.is. Því er
bætt við að að eitthvað
hafi einng veiðst af sjó-
birtingi í Hvítá.
Frítt á
morgun
Þjóðminjasafn íslands
stendur fyrir fjölbreyttri
dagskrá á sumardaginn
fyrsta. Þar má nefna leik-
fangasýningu sem höfðar
sérstaklega til barna, boðið
verður upp á gamla leiki
og hlutavelta verður í safn-
búð. Fjölskylduleiðsögn
verður um safnið kl. 13 og
15 og eftir hana er tilvalið
að setjast niður í veitinga-
stofu og fá sér límonaði og
lummur eða aðrar veiting-
ar sem þar em í boði.
Þjóðminjasafn íslands er
opið kl. 11-17 á sumardag-
inn fyrsta og er aðgangur
ókeypis þennan dag.
Það er rólegt hjá okkur núna
segir Óttar Þór Jóhannsson
oddviti hreppsnefndar Gríms-
eyjarhrepps.„Það er búið að
vera hrygningarstopp hjá okk-
ur sem þýðir að við megum
ekki veiða innan þriggja
milna. Þá notar maður tæki-
færiö og dyttar að bátnum en
skýst |
út fyrir
þrjár mllurnar til að ná sér I
soðið. Annars er góð stemning
hérá eynni, unga fólkið er að
snúa aftur og það mikil bjart-
sýni í eyjaskeggjum."
Konur sem reka sumarbúðir fyrir mikið fatlað fólk rekast á veggi þegar þær óska
eftir fjárstyrkjum fyrir starf sitt á Eiðum. Aðalheiður Þóra Bragadóttir og Rakel Th.
Heiðarsdóttir segjast því verða af launum fyrir eigið framlag og þurfi að láta fatl-
aða fókið sjálft greiða flugfargjöld. Kirkjan hækkaði húsaleiguna um 37 prósent.
Fötluúum synjað nm
styrk til snmardvalar
Aðalheiður Þðra Bragadóttir og Rakel Th. Heiðarsdóttir hafa
orðið fyrir miklum vonbrigðum með undirtekir við beiðni
þeirra um fjárstyrki til að reka sumarbúðir á Eiðum fyrir mikið
fatlað fólk.
„Þetta er ömurlegt," segir Aðal-
heiður Þóra Bragadóttir, forstöðu-
þroskaþjálfi á sambýlinu í Fýlshól-
um 11. Aðalheiður og Rakel Th.
Heiðarsdóttir ráku í fyrrasumar
sumarbúðir fýrir fatlaða á Eiðum og
hyggjast endurtaka leikinn í sumar.
í fyrra fengust talsverðir fjárstyrk-
ir til rekstursins en í ár hafa Aðal-
heiður og Rakel nær alls staðar kom-
ið að lokuðum dyrum þar sem þær
hafa óskað eftir fjárstyrkjum. Allir
styrkir sem þær hafa fengið hafa ver-
ið fiá fýrirtækjum, öll sveitarfélög
hafa sagt nei.
Fá vörur en litla peninga
„Við erum einmitt að velta fyrir
okkur hvernig standi á þessu," segir
Aðalheiður vonsvikin. Sótt var tim
styrki til fjölmargra fyrirtækja og op-
inberra aðila. Aðeins tvö fyrirtæki
hafa að sögn Aðalheiðar ljáð máls á
að veita fjárstyrki að þessu sinni:
„Allir aðrir hafa ýmist synjað okk-
ur eða einfaldlega ekki svarað," seg-
ir Aðalheiður en tekur um leið fram
að þetta eigi aðeins við um peninga-
styrki. Nokkur fyrirtæki hafi lofað
ýmsum vörum sem nýtast eigi í
sumardvölinni; bæði matvörum og
hreinlætisvörum.
„Við verðum að fara þá leið að
láta fólkið greiða sjálft fyrir flugið.
En á móti ætlum við að lækka gjald-
ið fyrir hvern einstakling úr 60 þús-
und kr. í 55 þúsund á viku. Síðan er
reyndar afsláttur ef fólk dvelur leng-
ur en eina viku," segir Aðaiheiður.
í fyrra komu meðal annars Kalli
Bjarni, Yasmin Olsen og hljómsveit-
in Skítamórall og skemmtu dvalar-
gestum á Eiðum. „Þau gáfu öll sína
vinnu. Við ætlum að reyna eins og
við getum að fá svona gott fólk aftur
í heimsókn til okkar," segir Aðal-
heiður.
Kirkjan hækkar húsaleiguna
Meðal kosmaðarliða við sumar-
dvölina er leiga á Kirkjumiðstöð
Austurlands á Eiðum sem er mjög
hentugt húsnæði fyrir fatlaða. Þar
hefúr leigan verið hækkuð frá því í
fyrra úr 80 þúsund krónum á viku í
110 þúsund krónur.
Ekki náðist í séra Jóhönnu Sig-
marsdóttur, sóknarprest á Eiðum,
sem er starfsmaður Kirkjumiðstöðv-
ar Austurlands. Davíð Baldursson
prófastur er formaður stjómar húss-
ins. Davíð segist ekki þekkja þetta til-
tekna mál. „En ég veit að við erum að
minnsta kosti ekki að græða á þessu.
Okkar gróði felst í því að efla það fólk
sem þama dvelst," segir hann.
Aðalheiður segir það einnig valda
vonbrigðum að ekki fáist ódýr akstur
hjá Ferðaþjónustu fatlaðra í Fljóts-
dalshéraði eins og venjan sé að veita
þessu fólki í sínum heimabyggðum.
„Það kostar fimm þúsund krónur að
flytja hvem og einn þá tíu mínútna
leið sem er frá flugvellinum og að
Eiðum," upplýsir hún.
Vinna launalaust
Aðalheiður segir að í fyrra hafi
verið 28 manns í sumardvölinni
sem staðið hafi í alls þrjár vikur.
Hún segir 43 þegar hafa sótt um
dvöl í sumar. Margir þeirra séu
mikið fatlaðir og þungir í meðför-
um og þeim fylgi hjólastólar. Þeir
þurfi fylgd í flugvélinni og mikla að-
stoð þegar á staðinn sé komið. Þess
vegna þurfi þær Rakel að ráða sjö
starfsmenn með sér á staðinn og
greiða þeim laun. Sjálfar reikni þær
„Við notum okkar eigið
sumarfrí og okkar eigin
bíla í þetta svo það er
óneitanlega dálítið
svekkjandi að geta
ekki greitt sjálfum sér
laun."
ekki með öðru en að koma út á
núlli: „Við notum okkar eigið sum-
arfrí og okkar eigin bfla í þetta svo
það er óneitanlega dálítið svekkj-
andi að geta ekki greitt sjálfum sér
laun. En það em margir sem treysta
á okkur. Margt af þessu fólki á ekki í
mörg önnur hús að venda með
sumardvöl því aðrir slíkir staðir
taka ekki við þeim sem eru ósjálf-
bjarga. Við ætlum ekki að bregðast
þeim." gar@dv.is
Baugurbýður
í veislu
Hið árlega sjávarréttahlaðborð
Kvenfélagsins Baugs verður haldið í
Grímsey þann 7. maí. Hvert heimili
á eynni mun matreiða einn sjávar-
rétt þar sem fengur úr netum hús-
bændanna verður í aðalhlutverki
svo það er tilvalið fyrir sælkera og
ferðaunnendur að nýta þetta tæki-
færi og bóka sér far með flugi eða
ferju til Grímseyjar. Einnig verður
dansleikur í félagsheimilinu þar
sem hljómsveitin Salt og pipar leik-
ur fyrir dansi svo það er um að gera
að grípa dansskóna með.
Bóndinn á Miðhrauni segir virkjunaráform upphaf deilnanna
Ólafur vildi ekki virkja bæjarlæk
„Þetta mál er nú til komið vegna
þess að hér stóð til að virkja Grímsá,
á landi okkar beggja, sem við fyrr-
verandi eigandi lands Ólafs vorum
búnir að ákveða að ráðast í,“ segir
Sigurður sem hafði hugsað sér að
nýta rafmagnið úr litlu virkjuninni
við Miðhraun II í fiskþurrkun sem
hann rekur ásamt sauðfjárbúskap á
jörð sinni.
Sigurður segir Ólaf Ólafsson í
Samskipum hafa lagst gegn því að
virkjað yrði nema að uppfylltum skil-
yrðum sem Sigurður gat ekki sætt sig
við, svo sem eins og að fiskþurrkunin
færi ekki fram utandyra yfir sumar-
tímann og að framleiðsla fyrirtækis-
ins yrði ekki aukin ff á því sem nú er.
„Ég gat ekki sætt mig við þetta
enda er þetta fyrirtæki okkar atvinna
hér með búskapnum," segir Sigurð-
ur sem í kjölfar neitunar um að
þrengja að fyrirtæki sfnu fékk þá til-
boð frá Ólafi um land í staðinn fyrir
virkjunarréttinn, sem Sigurður hafit-
aði svo. Virkjunin hefur ekki enn ris-
ið sökum þessa.
„Þessi sami maður vill ekki sjá að
við aukum tækifæri okkar hér á að
stímda okkar framfærslu með því að
virkja hér en er síðan að græða á tá
og fingri á Kárahnjúkavirkjun með
því að selja þeim oh'u og flytja fyrir
þá,“ segir Sigurður en Ólafur er einn
stjórnarmanna í Ohufélaginu ESSO
auk þess að vera stjómarformaður
Samskipa.
ófafur Ólafsson Nágrann-
inn I Miðhrauni II segir and-
stöðu Ólafs við virkjun áriná-
grenni bæjanna vera ástæöu
þess að hann þurfi nú að
mæta honum fyrir dómi.