Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2005, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2005, Side 13
DV Fréttir MIÐVIKUDAGUR 20. APRlL 2005 73 Ölvaðir apar Hópur fullra apa gekk berserksgang í indverska þorpinu Baralapokhari. Aparnir komust í sérstakt heimabrugg sem blandað var maríjúanalaufum og átti að nota við trúarathöfn til heiðurs hindúguðinum Oriya. Þorpsbúar þurftu að grípa prik og önnur vopn til að hrekja apana í burtu og slösuðust fjórir þorpsbúar áður en aparnir gáfu eftir. Sumir apanna munu hafa lognast út af vegna drykks- ins. Þeir héldu hins vegar inn í skóginn þegar þeir rönkuðu við sér. Glæpsamleg stefnumót Lögregla í Rúmeníu handtók á dögunum George Hodoroaba, 23 ára, sem hafði gert það að leik sínum að bjóða konum á stefnumót á góðum veitingahúsum og stinga svo af áður en reikningurinn kom. Að sögn lögreglunnar hafði George boðið tugum kvenna í borginni Suceava út. Alltaf notaði hann sama bragðið. í lok málsverðarins sagðist hann þurfa að hringja áríðandi símtal og hvarf. í þrjú skipti fékk hann jafnvel lánaðan síma og hvarf með hann líka. Kúgaðiút kvenkost Indverski unglings- drengurinn Rajesh greip til þeirra ör- þrifaráða að eyða tveimur sólarhring- um í brunni til að fá for- eldra sína til að útvega sér brúði. Bragðið virkaði. For- eldrarnir tóku giftingartil- boði fjölskyldu frá ná- grannaþorpi. Rajesh, 18 ára, var verulega ósáttur við áhugaleysi foreldra sinna í að finna fyrir sig eiginkonu og neitaði að koma upp fyrr en búið væri að ganga í málið. Aðalástæðan fyrir því var að allir vinir hans voru þegar giftir. Gifting Rajesh fór fram sama dag og hann skreið aftur upp úr brunninum. Fjórtán ár eru liðin frá því fornmaðurinn Ötzi fannst grafinn í fönn eftir þúsunda ára legu. Sögusagnir eru nú á kreiki um að bölvun hvíli yfir honum eftir svipleg fráföll fólks sem hefur komið nálægt honum. Nýlegasta dauðsfallið var í vikunni. Málið er farið að hljóma eins og bölvunarsögur af píramídunum. f fyrradag lést austurríski vísindamaðurinn og háskólaprófessor- inn Konrad Spindler af ókunnum ástæðum, líklega einhvers konar innri kvillum. Konrad var sá maður sem hafði rannsakað fornmanninn Ötzi hvað mest frá því hann fannst gaddfreðinn í Ölpunum árið 1991. Konrad er fimmti maðurinn sem tengist fundi Ötzis sem deyr. ísmaðurinn fannst frosinn í Similaun-jöklinum nærri Ötzal- dalnum í ölpunum milli Austurríki og Ítalíu. Rannsóknir leiddu f ljós að hann hafði legið í sinni köldu gröf í um fimm þúsund og þrjú hundruð ár. Þýskur göngumaður að nafni Helmut Simon fann Ötzi þegar hann var ásamt konunni sinni á gangi um Alpana. í október í fyrra lést Helmut við svipaðar aðstæður og á svipuðum slóðum og ötzi hafði gert. Helmut lagði af stað í gönguferð í austur- rísku ölpunum en sneri aldrei aftur úr þeirri gönguferð. Hann fannst mörgum vikum seinna frosinn í hel og grafinn f snjó. Heilaæxli og snjóflóð Giinter Henn var réttarlæknir- inn sem sótti, rannsakaði og ákvarð- aði aldur Ötzis. Árið 1992 var Giinter í bíl á leið á ráðstefnu þar sem hann var bókaður til að halda fyrirlestur um nýjustu uppgötvanir sínar varð- andi ísmanninn. Þangað komst hann aldrei þar sem hann lést í um- ferðarslysi. Tveimur árum sfðar lést fjall- göngumaðurinn Kurt Fritz í snjóflóði þegar hann kleif á svæði sem hann þekkti mjög vel. Hann var sá eini sem lést af hópi manna sem var saman á ferð og varð fyrir flóðinu. Kurt tók þátt í að sækja Ötzi og var sá sem gróf í snjóinn til að afhjúpa andlit ötzis. Þá fékk kvikmyndatökumaðurinn Rainer Hoelzl, eini kvikmyndatöku- maðurinn sem festi uppgröft Ötzis úr jöklinum á filmu, heilaæxli nokkrum árum síðar og lést. Áður hlógu menn að sögum um bölvun vegna ötzi, sem tal- inn er hafa verið seið- karl. Þar á meðal var hinn nýlátni Konrad Spindler. Er ég næstur? Allir höfðu þessir menn verið í beinni snertingu við líkamsleifar Ötzis. Það sama áfti þó ekki við um Dieter Warnecke. Hann stjórnaði leiðangrinum sem sótti lík Helmut Simon. Dieter lést úr hjartaáfalli klukkustund eftir jarðarför Helmuts. Áður hlógu menn að sögum um bölvun vegna ötzis, sem talinn er hafa verið seiðkarl. Þar á meðal var hinn nýlátni Konrad Spindler. Að sögn þýska dagblaðsins Die Neue eru hins vegar þeir sem unnið hafa STAÐREYNDIR UM ÖTZI Kyn: Karlmaður Aldur: 45 ára Hæö: um 160 sm. Líftlml: Bronsöldin Uppruni: Suður-Tíról (ítölsku Alparnir) Lýti: ör líkt og eftir nálarstungu Eldfæri: Steintegundir og gróður til að fram- kalla eld Vopn: Exi, rítingur, bogi og örvar Dauðdagi: Sár af völdum vopna; ofkæling við eða komið nálægt Ötzi á ein- hvern hátt farnir að spyrja sig hvort þeir séu næstir. Vélrænt kynlíf Þýski uppfinningamað- urinn Michael Harriman segist hafa fundið upp full- komnustu kynh'fsdúkku veraldar. Michael, mennt- aður flugvirki, segir dúkkurnar sínar hafa þar til gerð hjörtu sem slái hraðar á meðan á samræðinu stendur. Þá andi þær einnig hraðar og hitarar inni í þeim hækka „líkamshita" þeirra. Fæturnir hald- ist aftur á móti kaldir, rétt eins og í raunveruleikan- um. Einnig er hægt að fá dúkkurnar með fjarstýr- ingu fyrir vissar líkams- hreyfingar. Verð á strípaðri gerð er um tæp hálf milljón og hægt er fá auka- hluti gegn hærri greiðslu. Fjöldamorða minnst í Bandaríkjunum Sex ár frá Columbine í dag minnast íbúar bandaríska bæjarins Littleton þess að sex ár eru liðin frá fjöldamorðunum í Col- umbine sem talin eru vera þau verstu sem hafa átt sér stað í skóla í Bandaríkjunum. Þennan morgun árið 1999 gengu vinirnir Eric Harris og Dylan Klebold að Columbine-skólanum með þær áætíanir í huga að sprengja tvær bensínsprengjur í matsal skólans og skjóta svo þá sem hlypu út. Talið er að sprengjurnar hefðu getað banað allt að fimm hundruð manns. Þegar sprengjumar spmngu ekki klyfjuðu drengirnir sig með haglabyssum og sjálfvirkum skammbyssum og hófu skothríð á samnemendur sína og kennara. Átján mínútum síðar lágu tólf samnemendur Erics og Dylans í valnum og einn kennari. Skömmu síðar tóku vinirnir Eric og Dylan eigin líf. Voðaverk Eric og Dylan ætluðu að sprengja og skjóta en sprengjurnar virkuðu ekki. Minningarathöfnin I dag kemur degi á eftir minningarathöfn vegna fórnarlambanna sem fómst í hryðjuverkum í Oklahoma City í Oklahoma. Þar létust hundrað sex- tíu og átta manns þegar sprengja var sprengd fyrir utan Alfred P. Murray- alríkisbygginguna. Danir losna við sígarettuna Yfirfæra fíknina á jórtur- gúmmíið Farið er að bera á því að Danir sem notað hafa níkótíntyggjó til að hætta að reykja séu farnir að leita sér hjálpar til að losna undan tyggjóinu sjálfu, að sögn danska blaðsins Ekstra Bladet. Torsten Sonne hjá hjálparlínunni Stopline, sem aðstoðar fólk sem reynir að hætta að reykja, segir fólk vera byrjað að hringja inn vegna þess að það getur ekki hætt að tyggja. Þess vegna hefur Stophne komið af stað sérstakri línu fyrir nikótíntyggjófíkla, ásamt hinni dönsku Hjartaheill og fleiri hags- munaaðilum, að sögn Torstens. Hann telur að full þörf sé fyrir slíka línu. Tahð er að um tuttugu þúsund Danir séu háðir tyggjóinu og þeim eigi eftir að íjölga. Erfiður ávani Margir nýta sér reykingalyf til aö hætta aö reykja en gleyma, að þvl er virð- ist, að hætta á reykingalyfjunum. Torsten bendir einnig á að marg- ir gleymi því að nikótí'ntyggjóið sé gott hjálparmeðal til að hætta að reykja. Það sé hins vegar ekki eitt- hvað sem komi bara I staðinn fyrir tóbakið. Hér sé um lækningalyf að ræða og því þurfi að umgangast það sem slíkt og aldrei nota það lengur en þrjá mánuði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.