Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2005, Síða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2005, Síða 33
DV Menning MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 2005 33 Fabúla í Hveragerði Stöllurnar í Norsk-íslenska Skjallbandalaginu Inc. halda áfram tónleikahaldi sínu í Hvera- gerði. Föstudaginn 22. apríl er komið að því að Fabúla stigi á svið í kirkjunni í Hveragerði í konsert- röð Skjallbandalagsins. Margrét Kristín Sigurðardóttir eða Fabúla kom fyrst fram á sjónarsviðið þeg- ar hún sendi frá sér plötuna Fabula - Cut my strings haustið 1996. Var hún tilnefnd til til íslensku tónlist- arverðlaunanna þá um haustið. Fabúla tók þátt í forkeppni Eurovision á íslandi árið 2001 með laginu Röddin þín sem hafnaði í þriðja sæti. Platan Kossafar á ihnni kom út á því ári og vakti verðskuld- aða athygli og hlaut einnig tilnefn- ingu til íslensku tónlistarverðlaun- anna. Á tónleikunum í Hveragerðis- kirkju mun hún flytja töluvert af nýju efni, en einnig lög af geisla- plötunum Cut My Strings og Kossafar á ilinni. Hljómsveit Fabúlu skipa Jökull Jörgensen, bassi, Birkir Gíslason, gítar, Erik Quick á trommur og Margrét Krist- ín (söngur, píanó og orgel). Sveita- synir hita upp fyrir Fabúlu. Yfirlýst markmið Kvölds í Hveró er að auka fjölbreytni í menningu á svæðinu, opna augu almennings fyrir þeim möguleika að íslensk popptónlist eigi ekki síður heima í kirkju en klassíkin og gefa ungu og hæfileikaríku tónlist- arfólki af Suðurlandi tækifæri til að hita upp fyrir þá listamenn sem fram koma. Miðaverð er 1500 krónur. Frek- ari upplýsingar má finna á www.kvoldihvero.go.is, www.ton- list.is og í síma 692 8531. Sala á miðum fer fram í Hljóðhúsinu á Selfossi og við kirkjudyr. Margrét Kristín Sigurðardóttir eða Fabúla. Það er vor í Listaháskólanum og nú eru nemendur að sýna sig og sanna með opinberum flutningi og sýningum á verkum vetrarins. Vorhátíð Listaháskólans er brost- in á. Ung tónlistarkona hélt sér- kennilega útskriftartónleika á laug- ardag í Klink og bank, en þar verður tískusýning nemenda fýrsta og ann- ars árs við fata- og textilhönnunar- deild skólans að kvöldi sumardags- ins fýrsta. Hrina vortónleika nem- enda hefur staðið yfir og lýkur her- legheitunum ekki fyrr en í lok maí með útskriftarhátíð skólans. Nýjasta tíska Vegna tískusýningarinnar í Klink og Bank er fjöldi erlendra blaða- manna staddur hér á landi. Fellur sýningin í Klink og bank saman við Face North-módelsamkeppnina. Sýning fata- og textílhönnunardeild- arinnar vakti mikla athygli í fýrra. Deildin leggur sérstaka áherslu á samstarfvið atvinnulífið ogvillkynna nemendum þau viðhorf og aðstæður sem þar er að mæta. Markmiðið er að búa nemendur undir störf í alþjóð- legu umhverfi - að þeir Kti á allan heiminn sem sitt framtíðarstarfsum- hverfi. Vlð deildina kenna fjölmargir erlendir gestakennarar sem að starfa í erlendum tískuhúsum, s.s. Yves Saint Laurent, Louis Vuitton, Sonia Rykiel og Martine Sitbon. Fagstjóri fata- og textflhönnnar er Linda Björg Ámadóttir. Apótekarinn En það er fleira flott en föt. ís- lenska óperan og Listaháskóli ís- lands starfa saman að Óperustúdíói annað árið í röð. Nú er það hið sígilda gamanverk Haydn, óperan Apótekarinn, sem verður frumsýnt í íslensku óperunni þann 29. aprfl. en sýningar standa til 10. maí. íslenska óperan og íslandsbanki gerðu með sér samstarfssamning í haust sem felur í sér að íslandsbanki kostar verkefnið að hluta til. Þátttak- endur í Óperustúdíóínu eru nem- endur í tónlistarskólum á höfuð- borgarsvæðinu og hafa krakkarnir sótt námskeið í leikrænni tjáningu hjá Kára Halldóri í Listaháskólanum að undanförnu. í framhaldi af því taka nú við æfingar í Óperunni und- ir handleiðslu Ingólfs Níels Árna- sonar leikstjóra og Kurt Kopeckys hlj ómsveitarstj óra. Einsöngvarar í sýningunni eru Jóna Fanney Svavarsdóttir, Ólafi'a Línberg Jensdóttir, Guðbjörg Sand- holt, Sólveig Samúelsdóttir sem skipta með sér tveimur aðalkven- hlutverkunum. Erlendur Elvarsson og Þorvaldur Þorvaldsson syngja að- alkarlhlutverkin og Jón Leifsson mun einnig taka þátt í æfingum sem staðgengill Þorvalds. Kórinn skipa 12 manns. Alls verða 6 sýningar á Apótekaranum í Óperunni og er að- gangur ókeypis. Draumur um hús Hrina tónleika hefur staðið allt frá 1. apríl og er auðveldast að kynna sér framboð og tónleikastaði á vef skólans: www.Ihi.is. Sýningum útskriftarnemenda af leiklistarbraut á Draumleik í samstarfi við Leikfélag Reykjavíkur í Borgarleikhúsi fer brátt að ljúka. Lengi vel var útskriftarsýning Myndlista- og handíðaskólans nokkur viðburður í vorkomunni. Nú verður útskriftarsýning nema úr myndlistardeild og hönnunar- og arkitektúrdeild skólans í Listasafni Reykjavíkur í Hafharhúsi og opnar þann 7. maí. öll þesi athafnasemi nemenda við skólann dreifist um borgina á meðal annars þá þrjá staði sem skól- inn starfar nú á. Verður efnt til um- ræðufundar á föstudag í fýrirlestra- sal skólans í Laugarnesi og hefst hannkl. 16. Gjörningadagar Þessa vikuna standa yfir Gjörningadagar í Nýlistasafriinu á Laugaveginum og mun það vera í annað sinn sem efnt er til sérstakra hátíðabrigða sem snú- ast um geminginn. Þegar hafa komið fram stúlknakór og í kvöld verður spuni. Er stefnt á fundi kl. 21 þar sem lagt verður á ráðin. Ætti spuninn að hefjast um hálfri klukkustund síðar. Að sögn Magnúsar Jenssonar hefur verið spuni í Klink og Bank einu sinni í mánuði f vetur og á sú starfsemi sér upphaf í spuna- kvöldum fyrir margt löngu á 22. Menn mæta með tækin sín og eru allir velkomnir, bæði sem þátttakendur og áheyrendur. Á fimmtudag kl. 16 verður síð- an dansleikhúsverkið Hver ertu stúlkukind? eftir Sveinbjörgu Þórhallsdóttur sýnt. „Verkið fjall- ar um krakka á mótunarárunum eða unglingsámnum og hvernig þau em að tikka inn,“ segir Sveinbjörg, „Við notum hina ýmsu texta og meðal annars texta úr gömlum dagbókum. Tónlistin er í höndum Ólafar Arnalds sem ljáir okkur rödd sína og hún spil- ar á fiðlu, víólu og fleira life og stjórnar músikkinni með tölvu og hún tekur virkan þátt í per- fortnansinum. Einstaklega skemmtilegur listamaður sem er á síðasta ári í tónsmíðum í Lista- háskólanum. Búningarnir em í höndum Helgu Lilju Magn- úsdóttur sem er nemi í textíl í listaháskólanum." Dansarar eru nemendur af framhaldsbraut Listdansskóla íslands. Verður verkið flutt öðm sinni föstudaginn 22. aprfl kl. 18.30. Á undan Stúlkukindinni kl. 18 verður flutt Hljóð/Orkuverk eftir Magneu Ásmundsdóttur. Dag- skránni þann daginn lýkur svo með uppákomu með í/Ð-hópn- urn sem er skilgreint afkvæmi spunakvöldanna - svokallað hljómsveitaratriði. Á laugardagkl.17 munu lista- mennimirÁsdfs Sif Gunnarsdótt- ir, Baldur Björnsson, Massi Bjarna, Ólafur Lárusson og Sara Björnsdóttir fremja gjöminga af ýmsum lengdum og stærðum. Dagskránni lýkur svo þá um kvöldið með með tónleikum Sæ- borgarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.