Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2005, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2005, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNl2005 Fréttir DV Skorradals staðfest íbúar Skorradalshrepps höfnuðu sameiningu við nágranna sína í Borgarfirði um helgina. Kosið var um sameiningu við Borgar- fjarðarsveit, Borgarbyggð, Hvítársíðuhrepp og Kol- beinsstaðahrepp. íbúar þeirra hreppa höfðu sam- þykkt sameiningu við Skorradalinn. Alls greiddu 43 af 49 atkvæðisbærum íbúum Skorradalshrepps atkvæði. 26 sögðu nei og felldu sameininguna með 60,5 prósent atkvæða. Hin sveitarfélögin geta enn sameinast með 3.500 íbúa. Boðið meira dóp og segja oftar nei Samkvæmt niður- stöðum rannsóknar heil- brigöisyfirvalda í Bret- landi er fimm sinnum líklegra að þariendum nemendum séu boðin eiturlyf nú, en fyrir 15 árum. Samt sem áður hefur fjöldi nemenda í neyslu ekki aukist. „Svo virðist sem áróður í skól- unum sé að virka,“ sagði David Regis, yfirmaður rannsóknarinnar. Samt sem áður hefur u.þ.b. þriðjungur bama á bil- inu 14 til 15 ára neytt kannabisefna. Hlutfjárútboð Mosaic hafið Illutafjárútboð í breska tískufyrirtækið Mosaic hófst í gær í Kauphöll ís- lands. Hlutafjárútboðið mun standa til föstudagsins 10. júní en fyrirhugað er að skrá hluti félagsins á aðal- lista Kauphallar íslands seinni hluta þessa mánað- ar. Rúmlega níutíu þúsund hlutir eru til sölu á genginu 13,6 fyrir hvern hlut. Akurey rarbær Þetta er annaö málið á stuttum tíma þarsem Barnaverndarnefnd Akureyrarbæj- ar gengur fram afmikilli hörku. Auður Dagný Gunnarsdóttir var greind með þunglyndi fyrir tuttugu árum. Auð- ur Dagný hefur misst forræði yfir fimm ára gömlum dóttursyni sínum vegna þess en hún hefur alið hann upp frá fæðingu. Hún segist ætla að berjast með kjafti og klóm fyrir drengnum og að það hafi verið eins og hjartað væri rifið úr henni þegar hún missti drenginn í hendur yfirvalda á Akureyri. „Mér líður mjög illa að hafa hann ekki og sakna hans mjög mik- ið. Ég er ákveðin í að gera allt til að fá hann aftur," segir Auður Dagný Gunnarsdóttir sem hefur alið upp barnabarn sitt allt frá því það fæddist. í mars síðastliðnum voru þau hins vegar aðskil- in á mjög dularfullan hátt með lygum, blekkingum og að því er virðist afar furðulegum vinnubrögðum barnaverndarnefndar eftir því sem Auður segir. Hún er miður sín yfir barnsmissinum og ætlar að gera allt til að fá það aftur. „Hann fór í heimsókn í sveitina til afa síns í mars en þegar ég kom og ædaði að sækja hann sat hann læst- ur inni í bíl og afi hans neitaði að láta mig hafa hann aftur, sagðist vera með beiðni frá barnaverndar- nefnd um að ég mætti ekki fá hann,“ segir Auður Dagný Gunnarsdóttir sem hefúr alið barnabarnið sitt upp í ást og umhyggju á heimili sínu á Akureyri í fimm ár. Sertdur í fóstur „Ég talaði við féló daginn eftir en þau könnuðust ekki 'Við neina beiðni, sögðu þetta vera lygi. En samt get ég ekki fengið hann aftur þar sem b.arnaverndarnefnd segir mig óhæfa til að ala hann upp vegna fyrri veikinda minna en ég var greind með þunglyndi árið 1985. Það eru auðvitað bara fordómar og ekkert annað. Er hægt að nefna éin- hvern sem hefur ekki lent í-veikind- um eða öðrum erfiðleikum í lífinu?" Drengurinn hefur því dvalið hjá afa sínum, Friðjóni Friðjónssyni, allt frá því í mars. Sú vist mun þó brátt taka enda þar sem bamaverndaryfir- völd á Akureyrihafa, að sögn Auðar Dagnýjar, ákveðið að senda dóttur- son hennar í fóstur fyrir sunnan þann 14. júní, þrátt fyrrir að hans bíði um- hyggjusamt heimili á Akureyri. „Ég er í ágæúsíbúð, er í sambúð með frábærum manni og er fjárhags- lega vel stödd þannig að ég skil ekki af hverju ég get ekki fengið að hafa hann áfram," segir Auður Dagný. Dóttirin með geðræn vanda- mál . „Dóttir mín er ekki talin hæf til að ala upp barnið sjálf vegna þess að hún er mjög þunglynd og þurfti meðal annars að dvelja á geðdeild mestan hluta marsmánaðar. Hún hefur heldur engan áhuga á að fá bárnið sjálf. Hún vill frekar að það fari í fóstur og alist upp úti í bæ held- ur en hjá mér. Hún veit hvaða til- finningar ég ber í hans garð og öfugt og virðist ekki höndla þær. Við töl- um ekki saman núna. Hún hefur margsinnis gengið í skrokk á mér og hótað að drepa mig. Ég var flutt í lögreglubíl á sfysadeild eftir að hún réðst á mig síðast daginn fyrir skír- dag.“ Ætlar að sækja um forræði Auður Dagný segist tilbúin að fara í þetta mál af fullu afli og æúar hún sér að sækja um forræði yfir Friðbirni. „Mér líður mjög illa að hafa hann ekki og sakna hans mjög mikið. Ég er ákveðin í að gera allt til að fá hann aftur," sagði Auður sem líkti aðskilnaði sínum við Friðbjörn við að hjartað væri rifið úr henni. „Pabbi hans, Guðmundur Kári Daníelsson, æúar einnig að sækja um forræði yfir honum, hann er engan veginn sáttur við gang mála. Ég styð hann heilshugar í því og finnst það æðislegt," segir Auður, jafnvel þótt Guðmundur Kári hafi ekki komið nálægt uppeldi sonar síns frá fæðingu. Óhæf og hraðlygin Friðjón Friðjónsson, afa drengs- ins, var mikið niðri fyrir þegar DV ræddi við hann um stöðu mála í gær. „Þetta er haugalygi. Ekki trúa því sem hún segir. Ég tók hann ekki bara til að taka hann, hún er óhæf." Frið- jón segir að samkvæmt sinni vit- neskju hafi ekki gengið vel hjá Auði að ala barnabarn sitt upp og neitaði því um leið að Friðbjörn væri á leið suður í fóstur. „Ég segi ekki neitt, nema að þetta er allt haugalygi. Hún er hraðlygin," sagði Friðjón fjúkandi illur yfir símtali blaðamanns. „Þú ferð ekki með þetta lengra því þá er mér að mæta,“ voru lokaorð hans við blaðamann. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir tókst ekki að ná í fulltrúa hjá barnavernd- arnefhd á Akureyri í gær. johann@dv.is Heilbrigðisstarfsmenn í Noregi anda léttar Hermannaveiki fannst í þremur vatnsbólum í Noregi Hermannaveiki hefur greinst í kælikerfi þriggja fyrirtækja í Fred- rikstadt í Noregi. Öyvind Werner Jo- hansen, yfirmaður heilbrigðismála í bæ á svæðinu, staðfesti þetta. „Við getum ekki fullyrt að bakteríumar sem fundist hafa í kælikerfunum séu þær sömu og sjúklingarnir hafa greinst með. Næst á dagskrá er að bera þessar bakteríur saman með DNA-rannsóknum.“ Þessi faraldur greindist fyrst fyrir tveimur vikum. Engin ný smit hafa borist spítalanum í Fredrikstadt síð- an í síðustu viku. Yfirmenn þar á bæ vonast til þess að hafa náð völdum á sjúkdómnum. Póstþjónusta Bandaríkjanna greindi firá því í gær að tveir starfs- menn í útibúi í Norfolk hefðu smitast af hermannaveikinni. Þessir starfs- menn unnu við flokkun pósts og hef- ur þeim hluta hússins þar sem þeir störfuðu verið lokað. Ennfremur var greint frá því að rannsókn væri hafin á málinu og ættu niðurstöður að liggja fyrir snemma í næstu viku. „Það sem liggur á I einkalífinu er að flytja heim til Islands," segir hinn margreyndi landsliðsmarkvörður, Guðmundur Hrafnkelsson. Igærkvöldi lék hann sinn 403. og jafnframt síðasta landsleik fyrir Islands hönd.„Ég mun flytja frá Þýskalandi á næstu misserum, í hús sem égáí Kópavogi. I vetur mun ég svo leika með Aftureidingu, það leggst afar vel í mig." 8000-18000 manns greinast með hermannaveiki á ári hverju í Banda- ríkjunum. ',!T—'»ssí « í H,/ landspítau ) FOSSVOGI Inngangur 1.hæ6 Upplýsingar ® * Landspítalinn Starfsmaöur Land- spítala greindist með hermannaveiki núá dögunum. Enn hefur ekki tekist aö finna upptök smitsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.