Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2005, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2005, Síða 10
7 0 ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ2005 Fréttir DV Kostir & Gallar Ólafur Örn þykir vera traustur, jafnlyndur og skemmtilegur. Hans helstu gallar eru hversu feiminn hann er og óframfærinn. „Ólafur er stórglæsileg persóna, hann er algjör perla. Hann er fyrir- myndardrengur, bæöi innan sem utan vallar. Hann er skemmtilegur, mjög gefandi fyrir liösfélaga sfna. Hann er llka frábær knatt- spyrnumaöur. Hans helsti galli er sá að hann er ekki nógu frekur inni á fót- boltavellinum. Hann á aö biöja um boltann miklu oftar. Annars á ég erfitt meö aö finna galla við hann." Lúkas Kostic, fyrrverandi þjálfari Óiafs Arnar. „Helsti kostur Ólafs er I raun hversu ótrúlega góður drengur hann er. Þaö er ótrúlega þægi- legtaö umgangast hann, hann er ákaflega jafn- lyndur og traustur. I raun er allt gott viö hann, hann hefur alltaf verið afskaplega góöursonur. Ég á erfitt meö aö koma auga á galla hans. Kannski er helst hægt að finna honum til foráttu að hann mætti vera frekari. Annars er hann nánast galla- laus f flesta staði" Stefanía ólafsdóttir, móðir ólafs Arnar. „Ólafur er mjög rölegur og þægilegur f um- gengni. Hans helsti kost- ur er llklega sá aö þrátt fyrir mikla velgengni I boltanum er hann alltaf meö báöar fætur á jöröinni og er mikil fyrirmynd fyrir upprenn- andi knattspyrnuiökenndur. Hann er mikill kvikmyndaspek- ingur og grallari. Sumu fólki þykir Ólafur vera frekar lokaöur og feiminn þegar það er aö kynnast honum. Það gæti veriö hans helsti galli, en svo þegar fólk hefur kynnst honum þá hverfur feimninn. Erfitt er aö finna aöra galla á kappanum." Ólí Stefán Flóventsson, lelkmaöur Grindavíkur og góður vinur. Ólafur varð nýlega þrltugur. Hann er at- vinnumaður í knattspyrnu og leikur með Brann I Noregi. Hann spilaði I hjarta Is- lensku varnarinnar gegn Ungverjum og fékk dæmdar tvær ósanngjarnar víta- spyrnurásig. Erlingur Erlingsson pantaði bækur fyrir 37 Bandaríkjadali á netinu í apríl 2004. Hann fékk í gær 5.000 króna sekt fyrir að gefa upp rangar upplýsingar í tolla- skýrslu. Þær urðu til þess að ríkið varð af 611 krónum. Sveinn Andri Sveinsson lögmaður undrast ferli sem málin þurfa að fara í gegnum. Ríkið tapaði 50 þúsund krónum einungis á málsvarnarlaunum hans i þessu máli. Ríkið eyddi 50 þúsundum í 600 króna skialafalsmái „Það fer enginn að reyna að græða 611 krónur með skjalafalsi," segir Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Erlings Erlingssonar, sem sakfeldldur var fyrir tollalagabrot upp á 611 krónur. Mál af þessu tagi varða flest tollalagabrot og skjalafals. Sveinn Andri er mjög ósáttur við meðferð þessara mála og segir þau eiga að enda með sektum, ekki rándýrri málsmeðferð hjá ríkinu. Mál Erlings lyktaði með sektar- greiðslu í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Erlingi var gefið að sök að hafa falsað tollaskýrslu sína þegar hann pantaði bækur fyrir rúma tíu dollara af uppboðsvefnum ebay í aprfl 2004. Erlingur var sýknaður af ákæru um skjalafals en sakfelldur fyrir tollalagabrot og gert að greiða 5000 króna sekt. Sveinn Andri Sveinsson lögmaður Erlings segir málið furðulegt og að greinilega sé einhverju ábótavant í forgangsröð- un mála hjá lögreglunni. „Þetta er alveg stórfurðulegt mál og það er ljóst og þessu hefði mátt ljúka með sektarákvæðum hjá Tollstjóra ef þau væru fyrir hendi," segir Sveinn Andri. 611 króna skjalafals „Sakfelling byggðist á tolla- lagabroti sem var til komið vegna mistaka við toll- skýrslugerð," segir hann. Erlingur Er- lingsson, her- málasérfræðingur og starfsmaður bandaríska sendiráðsins, pantaði sér bækur fyrir 37 doll- ara á ebay. Þegar kom að því að gera tollaskýrslu hafði mis- skilningur milli Erlings og seljanda gert það að verkum að hann sendi tollayfirvöldum á íslandi vidausar upplýsingar. Hann taldi bækurnar hafa kostað 17 dollara en ekki 37. Erlingi var hins vegar gefið að sök að hafa breytt upphæðinni í tölvu, áður en hann prentaði kvittun fyr- Uppboösvefurinn Ebay Islendingar þurfa aö vara sig á út- búningi tollaskýrslu við pantanir af netinu. „Lögreglan hefur nóg annað að gera en að hella sér í svona mál. Þetta er bara dæmi- gert fyrir vitleysuna segir Sveinn Andri Sveinsson. ir bókunum út, og þar með svikist meðvitað um að borga 611 krón- urnar í rfldssjóð. Undrast vinnubrögð „Þú getur ímyndað þér hvað rfldð græðir á þessum málum," segir Sveinn Andri. Rfldð greiddi helming verjendalauna Sveins Andra og hljóðaði sú upphæð upp á 50.000 krónur. „Rfldð er að ná inn 5.000 krónum, fy en augljóslega að tapa ** 45.000 krónum á mál- inu," segir Sveinn Andri og á þá einungis við uppgefinn kostnað. Ef málið væri einkamál þá kostaði þingfestingin ein og saman 3.900 krónur, samkvæmt upplýsingum Héraðs- dóms Reykjavíkur. „Svona málum á augljósíega að lykta með sektum, án þess að málsmeðferð þurfi að koma til," segir Sveinn Andri. í síðasta mánuði var Gunnar Bjarki Guðnason sektaður um 25.000 krónur fýrir að svíkjast um að borga 345 krónur með því að Sveinn Andri Sveins- son Skilur ekki hvers vegna rfkið höfðar mál fyrir óviljandi tollalaga- brot upp á 611 krónur. falsa tollaskýrslu á fjarstýringu sem hann keypti á Ebay. Lagaramminn gallaður „Það er ekki heimilt að sekta fólk vegna svona mála. Lagaramm- inn leyfir það ekki," segir Júlíus Georgsson, lögfræðingur hjá toll- gæslusviði tollstjórans í Reykjavík. „Mál þar sem smáupphæðir eru til rannsóknar skipta tugum hjá okk- ur. Þó þau séu smá í sniðum þá er sama vinna lögð í þau,“ segir Júlí- us. Sveinn Andri vill meina að margt sé athugavert við forgangs- röðun í sakamálum hjá lögreglu- valdinu. „Maður veltir fyrir sér hvað margt er furðulegt í rflds- rekstri. Lögreglan hefur nóg annað að gera en að hella sér í svona mál. Þetta er bara dæmigert fyrir vit- leysuna." gudmundur@ dv.is Ótakmarkað niðurhal Ogvodafone reynist afar takmarkað Fyrrverandi grýtir bíl Rétt fyrir klukkan sex á laugardagskvöldið barst lögreglunni í Kefla- vík tilkynning um mann sem var að grýta bfl í Njarðvfloim. Þegar lög- reglan kom á staðinn reyndist maðurinn vera í miklu æðiskasti. Bifreið- in reyndist vera fyrir utan hús fyrrverandi eig- inkonu mannsins og virðist sem eitthvað hafi slegist á vinskapinn á milli þeirra og maðurinn látið reiði sína bitna á bflnum. Bflinn var töluvert skemmdur eftir grjótkastið. Taldi sig hafa ótakmarkað niðurhal OgVodafone Segja gamla skilmála hafa verið senda sjálfvirkt til Jóns og um mistök hafi verið að ræða sem kippt verði strax i liðinn. „Það svolítið skrítið að fá aðvör- un sem vísar í klausu í skilmála sem er ekki í skilmálanum sem ég fékk sendan frá þeim," segir Jón Söring Magnússon sem taldi sig hafa að- gang að ótakmörkuðu niðurhali hjá OgVodafone þegar hann gekk í þjónustuna Ogl hjá fyrirtækinu. Þar er auglýst ótakmarkað niðurhal en klausa í samningnum tekur þó fram, að fari menn yfir 40 gígabæt í niðm- hali áskilji fyrirtækið sér að synja rétthafa um þjónustuna. „Málið er þannig að þegar ein- hver viðskiptavinur skráir sig í þjón- ustu hjá OgVodafone í Ogl pakkann og skráir netföng fær viðkomandi aðili skilmála senda á skráð netfang. Þessi skilmálar eru 12 talsins og ekk- ert er minnst á takmörkun á erlendu niðurhali í þeim skilmálum. Síðan fer viðkomandi glaður út á netið og hleður niður ótakmarkað. Þegar þessi viðskiptavinur er kominn yfir 40 gígabæt fær hann sent bréf í pósti sem vísar í skilmála sem hann hefur ekki séð áður," segir Jón Söring Hjá OgVodafone fengust þau svör að um mistök hefði verið að ræða og þeir skflmálar sem Jón vísar til að hafa fengið væru gamlir. „Það voru ekki vísvitandi sendir út þeir skilmálar sem innihalda ekki öll fimmtán atriðin," segir Gísli Þor- steinsson, almannatengslamaður hjá OgVodafone. „Svo virðist sem úrelt sfða hafi verið send sjálfkrafa á þá sem stofna nýtt netfang en þessu verður kippt í Uðinn strax," segir GísU og bendir á að rétta skilmála sé að finna á heimasíðu OgVodafone. „Þetta ætti samt ekki að gerast," bætir GísU við. Jón Soring Magnússon Fékkaðvörun frá OgVodafone fyrir að nota ofmikið niðurhal i þjónustu sem auglýsir ótakmarkað niðurhal.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.