Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2005, Blaðsíða 11
DV Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ2005 11
Laxinn
heimskari
Þorskur er talsvert gáf-
aðri en lax, samkvæmt
rannsóknum í Noregi á at-
ferli eldisfiska. Á meðan
laxinn syndir hring eftir
hring í eldiskvíunum leitar
þorskurinn sífellt að út-
gönguleiðum. 10 sinnum
líklegra er að þorskur
sleppi en lax. Nú er verið að
rannsaka hvort þorskurinn
reyni að eyðileggja netin til
að sleppa út. Mikilvægt
þykir að eldisþorskur sleppi
ekki út þar sem hann getur
valdið erfðamengun á nátt-
úrulega stofninum og
stuðlað að hnignun teg-
undarinnar.
Stefán tekur
við í ágúst
Stefán Mar Gunnlaugs-
son, sem vann kosningu til
Hofsprestakalls
við Vopnafjörð
fyrir skemmstu,
mun taka til
starfaáHofi 1.
ágúst næstkom-
andi. Sigurður,
sem starfar hjá
Biskupsstofu
sem verkeíhisstjóri Kirkju-
daga, lýkur ekki störfum
fyrr en í lok mánaðarins og
sagði Steinunn Arnþrúður
Björnsdóttir, starfsmaður
Biskupsstofu, að Sigurður
yrðj upptekinn allt þar til
Kirkjudagar hefjast en þeir
munu standa yfir helgina
24. til 25. júní.
Af nýjustu fundargerð
bæjarráðs Mosfellssbæj-
ar má ráða að verkefni
ráðsins eru æði fjölbreytt
og krefjandi. Undir lið
tvö á síðasta fundi ráðs-
ins var lagt fyrir bréf frá
Krabbameinsfélaginu
varðandi ljósabekki í
íþróttamannvirkjum. í
fimdargerð kemur fram
að meirihluti Sjálfstæðis-
flokks íbæjarráðinu
samþykkti með þremur
atkvæðum að svara bréf-
ritara þess efnis að ljósa-
bekkir séu ekki í íþrótta-
mannvirkjum Mosfells-
bæjar. Minnihlutinn sat
hjá við ákvörðunina.
Með dóp við
dansleikinn
Dagskrá sjómannadags-
ins fór vel frem á Patreks-
firði samkvæmt lögreglu.
Einn var þó handtekinn
með 10 e-töflur og smáræði
af hvítu efni skammt frá
sjómannadansleiknum.
Líklegt má telja að efnin
hafi verið ætluð til sölu.
Eigandi efnanna er frá Pat-
reksfirði en samkvæmt lög-
reglu hefur hann ekki kom-
ið við sögu í tengslum við
fíkniefnamál áður. Honum
hefur verið sleppt úr haldi.
Lagt var hald á fíkniefnin
og má eigandinn þeirra bú-
ast við refsingu.
Óskar Long segir alrangt að hann hafi puttabrotið Selmu Ósk Þórsdóttur. Jón
Bjarni Baldvinsson var á staðnum og segir Selmu hafa verið mjög drukkna og látið
ófriðlega við gesti og gangandi. Óskar er hættur að selja fíkniefni og selur nú hús-
gögn við góðan orðstír. Selma stendur við frásögn sína.
Tóku mig aí því að
eg er strakur
Óskar Long segir Selmu hafa átt upptök að slagsmálum sem
brutust út á föstudagskvöldið síðastliðið fyrir utan skemmtistað-
inn Ópus í Reykjavík. Jón Bjarni Baldvinsson segist hafa gengið í
milli en þá hafi Selma slegið sig hka. Jón Bjarni segir lögregluna
hafa hlustað á Selmu segja að Óskar hafi lamið sig og umsvifa-
laust tekið Óskar í vörslu sína. Óskar leitaði aðstoðar á slysadeild
eftir átök sín við lögreglumenn.
Óskar áréttaði við
lögreglumennina að
hann hafi ekki átt
upptök að ófriðnum
en engum togum
skipti að lögreglu-
mennirnir snöruðu
honum inn í bílinn og
óku á brott.
upp út af þessu,“ segir Jón Bjarni
Baldvinsson, kunningi þeirra Óskars
og Selmu. „Ég fór svo að reyna að
átta mig betur á þessu og sá að Ósk-
ar er ekki svo stór og sterkur og ólík-
legt að hann sé mikið í barsmíðum,“
bætir Jón Bjarni við.
Vinkona segir Selmu
geðvonda
Haft var samband við eina af vin-
konum Selmu, en sú vildi ekki láta
nafns síns getið af ótta við að Selma
mundi koma fram hefndum. Vin-
konan segir Selmu hafa verið mjög
drukkna og í ferlegu skapi. Hún hafi
slegið til nánast allra sem á vegi
hennar urðu og sennilega hafi hún
sjálf brotið á sér fingurinn um nótt-
ina. Hún segir Selmu hafa breyst
mikið og nú sé orðið erfitt að treysta
hermi. Hún segi ósatt og sé geðvond
og viðskotaill.
„Lögreglan tók náttúrulega Óskar
af því að hann er strákur," segir Jón
Bjami Baldvinsson. Jón segir Óskcir
hafa áréttað við lögreglumenn að
hann hafi ekki átt upptök að ófriðn-
um en engum togum hafi skipt að
lögreglumennimir snömðu honum
inn í bílinn og óku á brott.
Óskar segir sjálfur að Selma hafi
átt upptökin að slagsmálunum fyrir
utan skemmtistaðinn Ópus í Reykja-
vík á föstudagskvöldið var. „Selma
var þarna fýrir utan og var alveg
blindfull. Við fórum að rífast og hún
tók til við að slá mig alveg á fullu,"
segir Óskar og er ósáttur við þau
ummæli Selmu að hann hafi verið
að lúskra á henni:
Menn sjaldan teknir án
ástæðu
Lögreglan í Reykjavík gat ekki
tjáð sig um atvikið í smáatriðum en
tók fram að afar sjaldgæft væri að
menn rötuðu í fangageymslur án
þess að einhver forleikur kæmi til.
„Það er passað upp á þessa hluti og
ef þessi ungi maður hefur endað í
fangageymslum hér þá hafa skýrslur
verið teknar og málið er í sínum
eðlilega farvegi," segir vakthafandi
upplýsingafulltrúi hjá Lögreglunni í
Reykjavík.
Selma æsti Jón upp
„Selma kom heim til mín fyrir
nokkrum mánuðum og sagði mér að
kærastinn hennar væri alltaf að
lemja sig og náði að æsa mig mikið
Óskar Long „Hún segir
ósatt um mig. Ég er
hættur / neyslu og er
breyttur maður."
Selma Þórsdóttir
Stendur við frásögn
sína og segir Óskar
vera ofbeldismann.
tTT'-----ieS--" 1
Selma stendur við sína
frásögn
Aðspurð segist Selma standa við
frásögn sína frá því í gær. „Hann er
búinn að hringja í mig og hóta því að
kæra mig,“ segir Selma. Hvers efnis
sú kæra er mun þó ekki liggja ljóst
fyrir. Selma segir ennþá að Óskar
hafi átt upptök að slagsmálunum á
föstudagskvöldið. „Lögreglan kom
svo og tók hann og hann
streittist á móti þannig
að þeir þurftu að slást
við hann til þess að
koma honum inn í
bílinn. Selma viU
einnig árétta það að
hún sé 17 ára en ekki
19, eins og fram kom
í gær.
sigtryggur@dv.is
Bátalíkanasafnið í Keflavík
Leyfðu Ljósálf en ekki Eleonoru
| Örn Erlingsson og Guðmundur
Rúnar Hallgrímsson Útgerðamenn
irnir færu bátalíkanasafninu höfðing-
legargjafir að sögn menningarfulltrú-
ans Valgerðar Guömundsdóttur.
Fékk gefins líkan af
sokknu skipi
Á sjómannadaginn bárust báta-
líkanasafninu í Duushúsum í
Reykjanesbæ óvæntar gjafir þegar
Örn Erlingsson útgerðarmaður og
skipstjóri gaf því kínverskt líkan af
Guðrúnu Gísladóttir KE 15, sem
liggur á hafsbotni við Noregsstrend-
ur. Auk þess gaf hann myndasögu í
ramma af þeim breytingum sem
Örn KE 13 hefur gengist undir.
Þá gaf Guðmundur Rúnar Hall-
grímsson útgerðarmaður og skip-
stjóri líkan af Happasæl KE 94 sem
listamaðurinn Grímur Karlsson
smíðaði á sínum tíma. Nú stendur
Bátafélagið fýrir söfnun á bátalíkön-
um og hefur sett sér það markmið
að ná 100 líkönum í safnið. Bátalík-
anasafiúð er það stærsta sinnar teg-
undar á landinu og eru flest líkönin
smíðuð af Grími Karlssyni.
Við sama tilefni færði Ólafur
Björnsson fyrrverandi útgerðarmað-
ur safninu að geisladisk með sögu
Baldurs KE 97 frá upphafi til enda.
Valgerður Guðmundsdóttir, menn-
ingarfulltrúi Reykjanesbæjar, segir
þetta höfðinglegar gjafir og þakkar
fyrir vilja þessara manna til að halda
merki sjómennskunnar á lofti.
„Höfum ekki rátt á því að
hafavit fyrirfólki"
„Við höfum ekki rétt á því að
hafa vit fyrir fólki," sagði Guðrún
Kvaran, einn þriggja aðalmanna í
mannanafnanefnd. Nefndin hafn-
aði nú nýverið nöfnunum Annalísa
og Eleonora. Hins vegar voru nöfn-
in Ljósálfur og Spartakus sam-
þykkt. „Annalísa samræmist
ekki íslenskum beygingarregl-
um. Stafsetningin á nafninu
Eleonora er á skjön við ís-
lenskt málfar og hefur ekki
unnið sér nægilega hefð í
málinu." í stuttu máli má
segja að nefndin telji hefð
vera fýrir nafni beri 10-15
ein-
stak-
lingar
það
eða að það hafi komið fram í
manntalinu árið 1910.
Nöftiin Spartakus og Ljósálfur
uppfylltu allar kröfur nefndarinnar.
„Spartakus beygist eins og Júlíus, því
var nafnið samþykkt. Sjálfráða ein-
staklingur bað um að fá
nafnið Ljósálfur sam-
þykkt. Ef um nafn á
barni hefði verið að
ræða hefðum við
líklega haft sam-
band við foreldr-
ana og gengið úr
skugga um að þau
væru viss í sinni sök.
Ef nöfn samræmast ís-
lenskum réttritunar- og
beygingareglum eru þau
yfirleitt samþykkt."