Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2005, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2005, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ2005 Fréttir DV Regína gjaldþrota Kvikmyndafélagið Regína hefur verið tekið til gjaldþrota- skipta og skiptafund- ur auglýstur. Frá þessu greinir í Lög- birtingablaðinu. Fé- lagið sem var stofnað íkringumgerð myndarinnar Regínu var dótturfyrirtæki fslensku kvikmyndasamsteypunnar sem þegar hefur verið gerð gjaldþrota. Margrét Ömólfs- dóttir, annar handritshöf- undur og tónlistarhöfundur Regínu segir málið ekki tengjast sér eða öðrum sem unnu undir Kvikmyndafé- laginu Regínu. Það sé alfarið á ábyrgð Islensku kvik- myndasamsteypunnar. Ríkið hækkar dagpeninga Frá og með 1. júní tóku gildi nýjar reglur um greiðslur til ferðalaga ríkis- starfsmanna sem ákvarð- aðar voru af ferðakostan- aðamefitd. Töluverð hækkun hefur orðið í dag- peninga- og gistiliðnum fyrir ferðalög innanlands, á meðan greiðsla fyrir ekna kílómetra lækkar. Ferðalög erlendis standa í stað. Nú fá ríkisstarfs- menn greiddar 16.500 kr fyrir gistingu og fæði £ einn sólarhring en fengu áður 13.100 kr. Ef eingöngu er gist fást nú 10.800 kr en 7.500 kr fengust áður. Akstursgjaldið sem greitt er frá ríkinu lækkar úr 62 krónum í 60 krónur á kfló- metrann. Minnaféíað fylgjast með sjómönnum „Stjómvöld veija margfalt meira fé í að fylgjast með störf- um sjómanna en fer í rannsóknir á brot- um á samkeppnis- málum allra fýrir- tælq'a á íslandi. Þessi forgangsröðun stjómvalda er galin og segir sína sögu um ástand mála,“ sagði Sigurjón Þórðarson alþingismaður £ sjómanna- dagsræðu sinni á Siglufirði. Sigurður telur það öfugsnú- ið að meiri fjánnunir em lagðir f að fylgjast með störf- um sjómanna en að rann- saka stærstu efnahags- og fikniefnabrot þjóðarinnar. segir Ingvar Þór Óskarsson sjómaöur frá Dalvlk,„Ég stunda reyndar ekkert sjóinn I augna- blikinu þvi ég er kominn í fæö- ingar- Landsíminn varað m*m»~**‘******* eignast mitt fyrsta barn, mynd- arstúlku. Sjómannadagurinn varsvo haldinn hátiðiegur hér um helgina og heppnaðist vel. Veðrið reyndist betra en spá var og það hjálpaöi tífi Svo skelltu þeir skemmtanaglöðustu sér á sjómannadagsball á Ólafsfirði. Ég lætþað nú eiga sig enda ný- bakaöur fjölskyldufaðir." Hnífakonan Stella Björk Guðjónsdóttir var dæmd til fimmtán mánaða fangelsisvist- ar fyrir að stinga mann sinn, Kristmund Þorsteinsson, í nóvember. Þau hafa verið í stormasömu sambandi í átta ár og segir Kristmundur þetta vera enn eitt áfallið. Hann á erfitt með að sætta sig við að Stella sé tekin frá honum í þrjá mánuði. Stella Björk Guðjónsdóttir er kona á fertugsaldri sem stakk mann sinn Kristmund Þorsteinsson á síðasta ári. Hmfstungan átti sér stað eftir mikið ölæði aðfaranótt 15. nóvember á síðasta ári. Dómur yfir Stellu féll í Héraðsdómi Reykjavíkur og hljóðaði upp á fimmtán mánaða fangelsisvist. Þar af eru tólf skilorðs- bundnir, svo að Stella þarf að sitja í fangelsi í þrjá mánuði. Krist- mundur eiginmaður hennar er miður sín yfir dómnum. „Guð minn almáttugur, ég er mjög sleginn yfir þessu," segir Kristmundur, eiginmaður Stellu Bjarkar Guðjóns- dóttur. „Mér lfst alls ekki vel á þennan dóm,“ segir hann og segir þetta enn eitt áfall fyrir þau i lffinu. DV hefur fjallaö um málið að und- anfömu og hefur komið ff am að Krist- mundur og Stella lifa nú i sátt og sam- lyndi og hafa greftrað málin af sinni hálfu. Vonin var skilorð Kristmundur segir þau hafa vonast eftir mjög vægri refsingu. Sú virðist ekki vera raunin eftir dóm Péturs Guð- geirssonar héraðsdómara i gær. „Hún hefði getað fengið þyngri dóm. Maður veit aldrei hvemig fer með svona mál. Við vonuðumst að sjálfsögðu eftir sldl- orði eingöngu," segir hann og finnst þeim ákæruvaldið vera að stía þeim í sundur. „Við erum að melta dóminn og áfallið sem honum fylgdi núna," bætir hann við og segist vart skilja hvers vegna lífið þurfi að ganga svona. Dómur Péturs þykir hins vegar vægur miðað viö alvarlega hnífshmgu. Hann útskýrði dóminn á þá leið að Kristmundur hefði gert „verulega á hlut“ Stellu áður en til hnífstungunnar kom. Hnífstunga á rúmstokknum Atburðarásin er í stuttu máli sú að Stella og Kristmundur sátu að snæð- ingi inni í svefnherbergi sínu að Kleppsvegi 66. Efdr heiftúðugt rifrildi og barsmíðar stakk Stella eiginmann sinn í bakið. Hnífurinn fór fimm senti- metra inn í bak Kristmundar og þótti það, samkvæmt dómsorðum, gleði- efhi að Ómar nokkur samloka væri í íbúðinni, því hann kynni skyndihjálp. Ómar samloka brá á það ráð að setja dömubindi á stungusárið, því það væri bara smáskeina. Hann hafði rangt fyrir sér því stungan olli því að hægra lunga Kristmundar féll saman. Hann hringdi sjálfur á sjúkrabfl eftir að hafa yfirgefið íbúðina. Stuttu seinna kom lögreglan og handtók Stellu. Sævar Ciesielski hefur búið á Kleppsvegi og verið nágranni Stellu og Kristmundar. Hann varð vitni að árás- inni: „Það hefur mikið gengið á hjá þessu fólki. Hann vildi gera allt til að hlífa konunni," sagði Sævar stuttu eft- ir atburðina. Áföllin dynja yfir Að sögn Kristmundar hafa þau verið án allra vúnuefna í þrjá mánuði og ætía að halda því áfram. Lögmaður Stellu, Jón Höskuldsson, staðfesti að þau væru á réttri braut í lífinu og hefðu snúið blaðinu við. „Lögreglan er náttúrulega bara að vinna sína vinnu en ég hef sagt lög- reglunni hvemig málin standa hjá okkur," segir Kristmundur og þykir skrýtið að velgengni þeirra sé hundsuð fyrir dómi. „Við erum edrú og erum að byggja okkur upp fyrir komandi tima. Þetta er náttúrulega al- gjört sjokk,“ segir Kristmundur. Hann segir erfitt að málið þurfi að skjóta upp kollinum í dómsal Héraðsdóms Reykjavfloir. „Vonandi hjálpar þetta okkur samt enn frekar," segir Krist- mundur. „Það koma áföll í lífnu en maður verður að taka því eins og maður. Ég mun reyna að lifa án Stellu í þijá mánuði en það verður erfitt," segir hann. Lfldegt er að Kristmundur sjái Stellu fyrr en hann væntir, þar sem flestir fá reynslulausn eftir tvo þriðju vistarinnar að gefinni góðri hegðun. gudmundur@dv.is Gamla knattspyrnustjarnan George Best með glóðarauga á báðum Barinn af ofsareiðri ástkonu Hið 58 ára gamla, fyrrverandi knattspyrnugoð hjá Manchester United og landsliði Englands, George Best, fékk heldur betur að finna fyrir reiði ástkonu sinnar á sunnudagskvöldið þegar hann kom heim af Derby-veðreiðunum. Þannig vildi til að Best, sem hefur staðið sig vel í edrúmennskunni upp á síðkastið, kom draugfullur heim af veðreiðunum en Best hefur lengi átt við áfengisvandmál að stríða. Ástkonan, Ros Hollidge, tók á móti knattspyrnugoðinu þegar hann dröslaðist heim í áfengis- vímu, með hnefana á lofti. Ljóst þykir að reiði hennar hafi verið töluverð því það stórsér á hin- um aldna knattspyrnusnillingi og ber hann þess merki svo ekki verð- ur um villst. Best er nefnilega með stórt glóðarauga á báðum augum eftir átökin og því óvíst að hann hafi borið hendur fyrir höfuð sér. Best hefur ekki verið við eina fjölina felldur í kvennamálum en athygli vakti gifting hans og hinnar tuttugu og ijögurra ára Alex, sem hélt upp á fimmtugsafmælið með kappanum fyrir stuttu, en þau skildu fyrir viku. Ros Hollidge, sem er þónokkuð eldri en Alex, er sú síð- asta sem orðuð hefur verið við kappann, en spurningin er hvort það samband nái að þróast eftir at- burði helgarinnar. Drykkja Bests er þekkt um alla Evrópu og lét hann eitt sinn hafa eftir sér, þegar hann var spurður hvert allir fjármunir hans hefðu farið, að allir hans peningar hefðu farið í flottar konur, flotta bíla og brennivín, en restin í vitíeysu. tj@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.