Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2005, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2005, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNl2005 Fréttir DV Súkkulaði- pylsavann Fyrsta súkkulaðipylsa, sem vitað er um í heimin- um, vann fyrstu verðlaun í alþjóðlegri pylsusamkeppni í Berlín um helgina. Hug- myndasmiðurinn Jörg Staroske sagði að hugmynd- in um að gera pylsu með súkkulaði hafi komið til hans skyndilega eftir svefn- lausa nótt, þegar hann reyndi að fá hugmyndir fyrir keppnina. Verðlaunapylsan er ekki bara með súkkulaði- bitum heldur líka appelsínu- berki. Flestir helstu slátrarar Þýskalands tóku þátt í keppninni og lögðu pylsur í dóm sérfræðinga. Skipaðað mæta í afmæli Borgarstjórinn í bæn- um 9 de Julio í Argentínu, fyrirskipaði að allir verka- menn í bænum skyldu mæta í afmælisveislu hans. Bærinn er einn sá fátækasti í landinu og sjö- tíu prósent verkamanna vinna fyrir bæinn. Verka- mennimir eru óánægðir með að vera skipað að mæta og fyrir að þurfa að borga sig inn f þokkabót. Dregið var af launum þeirra sem ekki gátu stað- greitt aðgöngumiðann. Móðir bæjarstjórans kom honum til vamar: „Fólkið elskar Huguito minn, það vill samfagna honum á afinælisdaginn, en við verðum að safria pening- um til að geta borgað fyrir matinn og drykkinn." Jacksoná Michael Jackson var fluttur á gjör- gæsludeild á spítala í fyrrakvöld. Hann þjáist af bakmeiðsl- um sem hafa hrjáð hann yfir réttarhöldin yfir honum, sem haldin em vegna ákæm um kynferðisofbeldi gegn þrettán ára krabbameins- sjúklingi. Talsmaður Jacksons segir meiðsli hans alvarleg og ástandið ekki batna út af álaginu sem hann er undir. Hann þurfti tvisvar að fara á spítala um helgina. Söngvarinn fékk vökva í æð því óttast var að hann þjáðist af vökvaskorti. Bóluefnivið ebólu Vísindamenn hafa fundið bóluefni sem ver apa fyrirebólu- og Mar- burg-veirunum. Niður- stöðumar gefa vísbending- ar um að hægt sé að verja menn fyrir veirunum. Ebóla- og Marburg-veir- umar valda miklum hita og blæðingum og drepa níu af hverjum tíu semsýkjast. í Angóla hefur Marburg-veiran valdið skæðum faraldri og í Kongó hafa fúndist ný til- felli ebólu. Hingað til hafa ekki verið til bóluefni við þeim, en í nýju prófúnun- um hefur ein sprauta nægt til að hindra smit til apa. Lúdmíla Pútína, eiginkona Vladimirs Pútíns Rússlandsforseta segist aldrei ræða vinnuna við hann. Hún segir að hann hrósi sér aldrei og að það hafi leitt til þess að hun sé hætt að elda fyrir hann. Hún segir forsetann halda tvær gullnar reglur um konur: Konan verður að gera allt á heimilinu og að það á aldrei að hrósa henni. Pútín hrósar eiginkonunni aldrei Vladimir Pútín kemur seint heim á kvöldin og þá er rétti tíminn til að bera fjölskyldumálin undir hann. Þetta segir eiginkona hans, Lúdmfla, í viðtali við rússneska ríkisfréttastofu. Hún segir hann kresinn á mat og neiti að borða það sem honum þykir vont. „Hann hrósar mér aldrei og það hefur þýtt að ég er alveg hætt að elda,“ segir Lúdmíla. „Það er mjög erfitt að elda fyrir hann og hann neitar að borða matinn ef honum líkar hann ekki.“ Hún segir að Rúss- landsforseti hafi alla þeirra sambúð verið að leggja fyrir hana einhvers konar próf. „Mér Kður alltaf eins og hann sé að fylgjast með mér og at- huga hvort ég hafi tekið réttar ákvarðanir," segir hún. Pútín bann- aði konu sinni að nota kreditkort þar sem hann óttaðist að hún myndi falla fyrir „vestrænum freistingum". Gerði grín að strák á spítala Pútín er þekktur fyrir svartan húmor, að sögn eiginkonu hans. Einu sinni sagði hann við strák sem lá fótbrotinn á spítala eftir umferð- arslys: „Þetta ætti að kenna þér að brjóta ekki umferðarreglurnar.“ Lúdmíla nær ekki alltaf þessum svarta húmor og kaldhæðni forset- ans. „Ég hef einfaldan og vinalegan húmor. Ég get ekki sagt að það eigi við um alla fjölskyldumeðlimi," seg- irhún. Spyr hann aldrei um vinnuna Lúdmíla lýsir því í viðtalinu hvernig bóndi hennar sé þegar hann kemur heim undir miðnætti á hverju kvöldi, þá hlammar hann sér í sófann og fær sér rússneska kefir- jógúrt. Hún lýsir manninum, sem hún kynntist þegar hann var stúdent í Sankti Pétursborg en hún flug- freyja, sem gangandi alfræðiorða- bók. Hún spyr hann aldrei um vinn- una frekar en hún gerði þegar hann „Mér líður alltafeins og hann sé að fylgjast með mér og athuga hvort ég hafi tekið réttar ákvarðanir" var í leyniþjónustunni, KGB. Þau eiga tvær dætur, Kötyu, nítján ára og Möshu, sem er tvítug. Lúdmíla er stolt af dætnmum og segist oft spjalla við þær langt fram á nótt. Hún segist láta allt eftir þeim í sam- bandi við áhugamál þeirra og menntun. Ekki hrifin af femínistum Eiginkona Rússlandsforseta er ekki hrifin af femínistum. „Aggressífur femínismi er að mínu mati kvenremba," segir hún. „Hann kemur sér bara illa fyrir okkur kon- ur. Mér h'ður alltaf illa þegar það ger- ist á fundum eða samkomum, að konur byrja skyndilega að segja nei- kvæða hluti um karlmenn í þeirra viðurvist." Hún er á móti róttækum aðferðum sem hún telur aldrei við hæfi. Hún lítur á sitt hlutverk sem forsetafrú, að standa við hlið eigin- mannsins og hugsa fyrst og fremst um það hvernig hún varpi ekki skugga á verk forsetans. Þegar hún er spurð hvers hún óski honum til handa segir hún: „Að hann verði glaður maður." Vladimir og Lúdmfla Pútín Lúdmlla stendurþétt viö hliö eiginmannsins og virðir regiur hans um konur sem eiga að vinna öll heimilisverkin. 1 í ' Noregskóngur til starfa eftir aðgerð Forstjóri sænsku lyfjastofnunarinnar Sprækur kóngur veiðir lax Haraldur Noregskon- ungur er kominn á stjá á ný eftir hjartaaðgerð. Hann byrjaði í gær að vinna á ný eftir veikindaleyfi. Harald- ur fór í veiði um helgina og landaði níu kílóa þung- um laxi. Harald- ur lék á als oddi þegar hann hitti blaðamenn. Hann sagði brandara, hló og gerði að gamni sínu. Kóngurinn sýndi listir sín- ar með veiði- stöng og lýsti því hvernig hann dró níu kílóa lax á land úr ánni á föstudagskvöldiö. „Þetta var fínn lax en þetta var ekki sá sem ég var að elta. Draumurinn var að fá einn yfir tuttugu kíló," sagði kóngur og hló. Laxinn átti í fullu tré við hann og dró hann út í ána. Kóngurinn fékk enga hjálp og tók lax- inn inn einsamall. „Þetta verður fínn reyktur lax um jól- in,“ sagði veiðistjóri árinnar við norska fjölmiðla. Haraldur kóngur Fór á stjá og veiddi lax. Missti vinnuna fyrir að ráða klámstjörnu Sextíu og fjögurra ára gamall forstjóri sænsku lyfjastofnun- arinnar hefur sagt upp starfi sínu eftir að það komst upp að hann hefði ráðið tæp- lega þrituga danska klámstjömu sem ráð- gjafa. Stjaman hefur verið í vinnu í rúmt ár sem ráðgjafi og sér- fræðingur í fíkniefnamisnotkun. Klámstjarnan hefur leikið í mörgum grófum klámmyndum og komið fram bæði í Hustler og Playboy-karlablöð- unum. Aðdáendur hennar hafa einnig stofnað klúbb um hana. Talsmaður lyfj astofnunarinnar segir að hún hafi ekki verið ráðin sam- kvæmt hefðbundn- um leiðum og að for- stjórinn hafi einn séð um ráðninguna. Eng- inn viti hvaða hæfnis- skilyrði hún hafi upp- fyllt fyrir starfið. „Við viljum ekki gefa upp hvemig við komumst að því að hún væri klámstjama," sagði talsmaðurinn Karin Ljuden við Expressen. Lögreglan rannsakar einnig meint brot forstjór- ans, sem lét lyíjastofnunina borga ferðalög klámstjömunnar milli heim- ilis hennar í Kaupmannahöfn og skrif- stofttnnar í Uppsölum. Klámstjaman danska reynir að halda í starfið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.