Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2005, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2005, Blaðsíða 16
76 ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ2005 Sport DV Gull f Aþenu Manu Ginobili var allt löllul landsliði Argentlnu sem tryggði sér gullverð- launin á síðustu Ólym- píuleikum. Reuters Argentínumaðurinn Manu Ginobili hjá San Antonio hefur farið á kostum í úrslitakeppni NBA og er að skipa sér sess sem einn besti leik- maður deildarinnar. Samherjar jafnt sem andstæðingar Ginobilis í deildinni sammála hann sé einstakur leikmaður og algjör lykilmaður í liði sínu Leikstíll Ginobilis er um margt mjög sérstakur og hann ereinn afillviðráð- anlegustu leikmönnum deildarinnar sökum fjöl- hæfni sinnar. óútreiknanlegur iHiKmanui Lið San Antonio hefur verið eitt besta liðið í NBA á síðustu árum, en hefur oft verið sakað um að leika tilþrifalítinn og leiðinlegan varnarbolta. Annað hefur svo sannarlega verið uppi á teningn- um í úrslitakeppninni undanfarið, þar sem liðið tók öflugasta sóknarlið deildarinnar, Phoenix Suns, í bakaríið með hröðum og skemmtilegum sóknarleik undir dyggri forystu Manus Ginobili. Ginobili kom inn í NBA-deildina sem nýliði árð 2002, eftir farsælan leikferil í heimalandi sínu og á Ítalíu, þar sem hann léfc, með Kinder Bol- ogna. Með Bologna vann Ginobili meistaratitil og var kosinn verðmæt- astí leikmaðurinn í deildinni árið Hann var valinn í annarri umferð nýliðavalsins í NBA árið 1999 og var næstsíðastí leikmaðurinn sem var valinn það ár. Ginobili áttí engu að síöur eftir að verða fljótur að láta að sér kveða í NBA-deildinni eins og annars staðar, en hann var lykilmaö- ur á varamannabekknum hjá San Antonio þegar liðið varð NBA-meist- ari árið 2003 og ljóst var að sá argentínski yrði ff amtíðarmaður í lið- inu. ■ Sigurvegari Það að vera í sigurliði er ekkert nýtt fyrir Ginobití, því auk þess að hafa verið sigursæll með liði Bol- ogna á Ítalíu, fór hann fyrir liði Argentínu á HM árið 2002, þegar það varð í öðru sætí og bætti um betur á Ólympíuleikunum í Aþenu síðasta sumar og vann gullverðlaun- in. Eins og áður sagði hefur hann einnig náð að landa NBA-meist- aratittínum með San Antonio og því er ljóst að hér er á ferðinni sannur sigurvegaii. Kaldhæðni örlaganna er sú að það var ein- mitt Mike D’Antoni, sem nú er aðalþjálfari Phoenix Suns, sem uppgötvaði Ginobili í Evrópu á j sínum tíma, en hann var þá að- ' stoðarmaður hjá San Antonio. Það er ekki síst fyrir stórleik Ginobilis sem San Antonio rúll- aði tíði Phoenix upp í úrslita- keppninni og því hlýtur D'Ant- oni að hafa liðið nokkuð ein- kennilega þegar hann sá Argent- ínumanninn fara illa með tíð sitt, leik eftir leik. Góður liðsmaður Leikstíll Ginobilis er um margt mjög sérstakur og hann er einn af ill- viðráðanlegustu leikmönnum deild- arinnar sökum fjölhæfni sinnar. Þessi örvhentí skotbakvörður er ágætur skotmaður utan af velli, en er hættulegastur þegar hann keyrir inn í teig andstæðinganna af mikilli áræðni og getur þar ýmist skorað eða sótt villur. Það sem gerir hann í raun hættu- legastan sem leikmann er ótrúleg hæfni til að spila uppi félaga sína ef hann á sjálfur ekki möguleika á að skora, því auk þess að vera hæfileik- aríkur skorari, en hann sannur liðs- maður sem hefur engan áhuga á töl- ffæði sinni, heldur vill aðeins hjálpa tíði sínu að vinna leiki. Óútreiknanlegur Til marks um það hve skæður Ginobití er í sóknarleiknum, segja félagar hans í San Antonio að þeir skilji ósköp vel af hvetju andstæð- ingar hans finni ekki svör við leik hans, því þeir hafi þau ekki einu sinni sjálfir. „Manu er ótrúlegur leikmaður. Maður veit aldrei hvað hann kemur tíl með að gera í sóknarleiknum, því hann getur keyrt inn í teiginn, skor- að og sótt villur, fúndið félaga sína eða þá refsað þér fyrir utan. Eg held að það sem gerir hami að svona góð- um leikmanni sé hvað hann er gjör- samlega óútreiknanlegur," sagði Tim Duncan, félagi hans hjá San Antonio, sem hefur notíð góðs af sköpunargleði Argentínumannsins. Gerði þjálfarann gráhærðan „Þegar ég sá Manu sptía fyrst, vissi ég að þar væri á ferðinni mjög sérstakur leikmaður," sagði MUce D'Antoni þjálfari, sem hefur þurft að horfa upp á hann skora 48 stig gegn liði sínu í vetur og það sem verra er, sjá hann slá lið sitt Phoenix gjörsam- lega út af laginu í úrslitakeppninni. „Iiann er fljótur, skynsamur og úrræðagóður leikmaður, sem leikur vel á úrslitastundu. Það er nokkuð sem ekki er hægt að kenna.“ Gregg Popovich, þjálfari San Ant- onio, er sagður hafa fengið flest gráu hárin á höfðinu eftir að GinobUi hóf að leika með liðinu, því hann á oft erfitt með að horfa upp á sirkustíl- þrif þess argentínska. Popovich er mjög íhaldssamur þjálfari ög er ekki mjög hrifinn af leikmönnum sem tefla tæpt f leikj- um, en erfitt er að gagnrýna Gin- obUi fyrir tilþrifin sem hann sýnir leik eftir leik, hafa orðið tíl þess að hann er einn dáðasti leikmaður liðsins. Ótrúleg tilþrif Ginobití hefúr verið frábær í úr- slitakeppninni og eftir að hafa verð settur á bekkinn í fyrstu umferðinni gegn Denver tíl að breyta sóknarleUc liðsins, var hann settur aftur í byrj- unarliðið og hefur verið stórkostleg- ur síðan. TU að gefa hugmynd um tUþrifin sem hann hefur sýnt í úrslitakeppn- inni, áttí hann meðal annars send- inguna á Tim Duncan sem tryggði sigurinn í síðasta leiknum gegn Seattle í imdanúrstítum Vestur- defldarinnar, hittí þriggja stíga skotí ff á miðju í fyrsta leiknum við Phoen- ix og bættí við einu gráu hári á höfuð þjálfara síns Greggs Popovich undir lok amiars leiksins, þegar hann keyrði inn í teig Phoenix, tók bolt- ann aftur fyrir bak og skoraði með ótrúlegu sirkus-sniðskotí. Þessi tíl- þrif komu félaga hans Tony Parker þó engan veginn á óvart. „Þið hefðuö átt að sjá þegar hann sparkaði boltanum ofan í ffá miðju," sagði Parker glottandi, „ÞAÐ var flott." baldur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.